Fréttablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 23
Við bætist að Landsbankinn er
eini bankinn í álfunni sem er nú
að byggja yfir sig nýjar höfuð-
stöðvar. Þær eiga að kosta jafn-
virði um 100.000 kr. á hverja
fjögurra manna fjölskyldu í
landinu.
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega
góð kaup!
Verð frá:
3.690.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
0
2
D
a
c
ia
D
u
s
te
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Reykjavík – Við eðlilegar kringumstæður eða því sem næst væri nú einboðið að draga
úr eignarhaldi ríkisins á viðskipta-
bönkum. Slík staða var uppi árin eftir
1990 þegar ljóst þótti að í bankamálum
líkt og annars staðar ætti einkarekstur
jafnan betur við en ríkisrekstur. Úti í
heimi var einkabankarekstur reglan,
en blandaður rekstur tíðkaðist þó
sums staðar. Gömlu kommúnistaríkin
í Austur-Evrópu settu þessi ár alla
sína banka í hendur einkaframtaks,
ýmist erlendra manna eða innlendra,
enda var lítilli sem engri þekkingu
á heilbrigðum bankarekstri til að
dreifa í f lestum þessara landa þegar
þau losnuðu undan oki Sovétríkjanna
1989-1991.
Þegar Ísland var eitt eftir í okkar
heimshluta með yfirgnæfandi ríkis-
bankarekstur féllust menn loksins á
að tímabært væri að einkavæða gömlu
ríkisbankana þrjá, Búnaðarbankann,
Landsbankann og Útvegsbankann.
Málið snerist um að dragast ekki aftur
úr öðrum þjóðum í bankamálum.
Málið snerist einnig um að draga rétta
lærdóma af langri reynslu sem sýndi
að ríkisbankarnir höfðu ekki gefizt vel.
Útvegsbankinn hafði t.d. verið keyrður
út á yztu nöf 1985 vegna viðskipta sem
ríkir stjórnmálahagsmunir virtust
bundnir við.
Ný gögn utan úr heimi bentu til að
einkabankarekstur væri líkt og annar
rekstur yfirleitt hagkvæmari en ríkis-
rekstur þar eð arður væri vænlegra
leiðarljós í viðskiptum en atkvæði
kjósenda. Öllu þessu o.m.fl. var haldið
til haga í skýrslu sem ég samdi um
málið fyrir viðskiptaráðuneytið í
október 1992, Úr ríkiseigu í einkaeign.
Hún birtist skömmu síðar í Fjármála-
tíðindum, tímariti Seðlabanka Íslands.
Fölnaðar fyrirmyndir
Ólíkt því sem virtist vera um 1990 eru
nú ekki uppi eðlilegar kringumstæður,
fjarri því. Tvennt hefur breytzt.
Í fyrsta lagi eru erlendar fyrirmyndir
í bankamálum nú að ýmsu leyti var-
hugaverðar í ljósi þess sem gerzt hefur
í bankaheiminum frá 2007. Bankar
hrundu, aðrir römbuðu á barmi
hengiflugs. Bankamenn reyndust hafa
brotið lög í stórum stíl þótt stjórn-
málamenn sem bankarnir höfðu stutt
með fjárframlögum og einnig saksókn-
arar áræddu ekki að hræra hár á höfði
þeirra. Stjórnmálamenn báru mikla
ábyrgð á þessum hremmingum þar eð
t.d. Bandaríkjaþing hafði aflétt eldri
hömlum sem um margra áratuga skeið
höfðu haldið bankarekstri í heilbrigðu
horfi yfirleitt. Þar eð bankamönnum
var ekki gert að sæta ábyrgð að lögum
hafa þeir margir skotið sér undan að
draga þá lærdóma af mistökum sínum
sem vert væri.
Misheppnuð einkavæðing
Í annan stað mistókst einkavæðing
ríkisbankanna hér heima herfilega
þótt til hennar væri stofnað á eðli-
legum forsendum að því er virtist.
Því var heitið að bankarnir myndu
lúta dreifðu eignarhaldi. Við það var
ekki staðið. Til stóð að laða traustan
sænskan banka – banka sem hefur
aldrei hlekkzt á – til starfa á Íslandi en
við það var ekki heldur staðið. Tveir
bankanna voru heldur afhentir inn-
lendum einkavinum sem þurftu ekki
nema nokkur ár til að keyra þá í þrot
eins og Þórður Snær Júlíusson lýsir nú
síðast í bók sinni Kaupthinking. Bókin
fjallar um einn bankanna þriggja,
en þeir voru allir eins í aðalatriðum
svo sem skýrsla Rannsóknarnefndar
Alþingis lýsir vel þótt umfang starf-
seminnar og þá um leið svikanna væri
e.t.v. ólíkt.
Það kann m.ö.o. að hafa verið stigs-
munur á bönkunum þrem en varla
nokkur umtalsverður eðlismunur.
Í réttri röð
Hér heima er nú uppi sami vandi og
víða annars staðar þótt Ísland hafi þá
sérstöðu að hafa dæmt bankamenn
og fáeina aðra sökudólga hrunsins
í samtals nærri 100 ára fangelsi.
Vandinn er sá að enginn kannast við
að bera nokkra ábyrgð á hruninu ef
frá er talinn einn stjórnmálamaður og
einn bankaeigandi sem sluppu bæði
og báðust forláts. Forherðing söku-
dólganna, þ.m.t. þeir sjö menn sem
Rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa
sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga,
er svo að segja alger. Litlu virðist skipta
þótt nýtt fólk hafi valizt til forustu í
stjórnmálum og bönkum. Forherð-
ingin virðist ganga í erfðir.
Tökum Landsbankann sem er nú
ríkisbanki. Bankaráðið, skipað ungu
fólki, hefur ákveðið að hækka svo
laun bankastjórans að jafnvel Samtök
atvinnulífsins hafa brugðizt ókvæða
við. Bankaráðið slengir launahækkun
bankastjórans eins og blautri tusku
framan í launþega sem eiga í erfiðum
samningum við vinnuveitendur um
kaup og kjör. Við bætist að Landsbank-
inn er eini bankinn í álfunni sem er nú
að byggja yfir sig nýjar höfuðstöðvar.
Þær eiga að kosta jafnvirði um 100.000
kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu
í landinu.
Gerum hlutina í réttri röð. Hreinsum
fyrst til á Alþingi í þeirri von að nýju,
skaplega skipuðu Alþingi verði betur
treystandi til að laga til í Landsbank-
anum og víðar. Bankarnir verða þá
fyrst tilbúnir til eigendaskipta að þeir
sem falið er að halda utan um einka-
væðinguna njóti trausts. Takist ekki
að endurreisa Alþingi í tækan tíma
mætti velja t.d. 20 manna eigendaráð
af handahófi úr þjóðskrá og setja yfir
bankasýsluna sem fer með hlut ríkisins
i bönkunum.
Bíðum með bankana
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
1
4
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
5
1
-D
D
D
8
2
2
5
1
-D
C
9
C
2
2
5
1
-D
B
6
0
2
2
5
1
-D
A
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K