Fréttablaðið - 14.02.2019, Síða 23

Fréttablaðið - 14.02.2019, Síða 23
Við bætist að Landsbankinn er eini bankinn í álfunni sem er nú að byggja yfir sig nýjar höfuð- stöðvar. Þær eiga að kosta jafn- virði um 100.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Þorvaldur Gylfason Í DAG Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Verð frá: 3.690.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 2 0 2 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n f e b BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Reykjavík – Við eðlilegar kringumstæður eða því sem næst væri nú einboðið að draga úr eignarhaldi ríkisins á viðskipta- bönkum. Slík staða var uppi árin eftir 1990 þegar ljóst þótti að í bankamálum líkt og annars staðar ætti einkarekstur jafnan betur við en ríkisrekstur. Úti í heimi var einkabankarekstur reglan, en blandaður rekstur tíðkaðist þó sums staðar. Gömlu kommúnistaríkin í Austur-Evrópu settu þessi ár alla sína banka í hendur einkaframtaks, ýmist erlendra manna eða innlendra, enda var lítilli sem engri þekkingu á heilbrigðum bankarekstri til að dreifa í f lestum þessara landa þegar þau losnuðu undan oki Sovétríkjanna 1989-1991. Þegar Ísland var eitt eftir í okkar heimshluta með yfirgnæfandi ríkis- bankarekstur féllust menn loksins á að tímabært væri að einkavæða gömlu ríkisbankana þrjá, Búnaðarbankann, Landsbankann og Útvegsbankann. Málið snerist um að dragast ekki aftur úr öðrum þjóðum í bankamálum. Málið snerist einnig um að draga rétta lærdóma af langri reynslu sem sýndi að ríkisbankarnir höfðu ekki gefizt vel. Útvegsbankinn hafði t.d. verið keyrður út á yztu nöf 1985 vegna viðskipta sem ríkir stjórnmálahagsmunir virtust bundnir við. Ný gögn utan úr heimi bentu til að einkabankarekstur væri líkt og annar rekstur yfirleitt hagkvæmari en ríkis- rekstur þar eð arður væri vænlegra leiðarljós í viðskiptum en atkvæði kjósenda. Öllu þessu o.m.fl. var haldið til haga í skýrslu sem ég samdi um málið fyrir viðskiptaráðuneytið í október 1992, Úr ríkiseigu í einkaeign. Hún birtist skömmu síðar í Fjármála- tíðindum, tímariti Seðlabanka Íslands. Fölnaðar fyrirmyndir Ólíkt því sem virtist vera um 1990 eru nú ekki uppi eðlilegar kringumstæður, fjarri því. Tvennt hefur breytzt. Í fyrsta lagi eru erlendar fyrirmyndir í bankamálum nú að ýmsu leyti var- hugaverðar í ljósi þess sem gerzt hefur í bankaheiminum frá 2007. Bankar hrundu, aðrir römbuðu á barmi hengiflugs. Bankamenn reyndust hafa brotið lög í stórum stíl þótt stjórn- málamenn sem bankarnir höfðu stutt með fjárframlögum og einnig saksókn- arar áræddu ekki að hræra hár á höfði þeirra. Stjórnmálamenn báru mikla ábyrgð á þessum hremmingum þar eð t.d. Bandaríkjaþing hafði aflétt eldri hömlum sem um margra áratuga skeið höfðu haldið bankarekstri í heilbrigðu horfi yfirleitt. Þar eð bankamönnum var ekki gert að sæta ábyrgð að lögum hafa þeir margir skotið sér undan að draga þá lærdóma af mistökum sínum sem vert væri. Misheppnuð einkavæðing Í annan stað mistókst einkavæðing ríkisbankanna hér heima herfilega þótt til hennar væri stofnað á eðli- legum forsendum að því er virtist. Því var heitið að bankarnir myndu lúta dreifðu eignarhaldi. Við það var ekki staðið. Til stóð að laða traustan sænskan banka – banka sem hefur aldrei hlekkzt á – til starfa á Íslandi en við það var ekki heldur staðið. Tveir bankanna voru heldur afhentir inn- lendum einkavinum sem þurftu ekki nema nokkur ár til að keyra þá í þrot eins og Þórður Snær Júlíusson lýsir nú síðast í bók sinni Kaupthinking. Bókin fjallar um einn bankanna þriggja, en þeir voru allir eins í aðalatriðum svo sem skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis lýsir vel þótt umfang starf- seminnar og þá um leið svikanna væri e.t.v. ólíkt. Það kann m.ö.o. að hafa verið stigs- munur á bönkunum þrem en varla nokkur umtalsverður eðlismunur. Í réttri röð Hér heima er nú uppi sami vandi og víða annars staðar þótt Ísland hafi þá sérstöðu að hafa dæmt bankamenn og fáeina aðra sökudólga hrunsins í samtals nærri 100 ára fangelsi. Vandinn er sá að enginn kannast við að bera nokkra ábyrgð á hruninu ef frá er talinn einn stjórnmálamaður og einn bankaeigandi sem sluppu bæði og báðust forláts. Forherðing söku- dólganna, þ.m.t. þeir sjö menn sem Rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga, er svo að segja alger. Litlu virðist skipta þótt nýtt fólk hafi valizt til forustu í stjórnmálum og bönkum. Forherð- ingin virðist ganga í erfðir. Tökum Landsbankann sem er nú ríkisbanki. Bankaráðið, skipað ungu fólki, hefur ákveðið að hækka svo laun bankastjórans að jafnvel Samtök atvinnulífsins hafa brugðizt ókvæða við. Bankaráðið slengir launahækkun bankastjórans eins og blautri tusku framan í launþega sem eiga í erfiðum samningum við vinnuveitendur um kaup og kjör. Við bætist að Landsbank- inn er eini bankinn í álfunni sem er nú að byggja yfir sig nýjar höfuðstöðvar. Þær eiga að kosta jafnvirði um 100.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Gerum hlutina í réttri röð. Hreinsum fyrst til á Alþingi í þeirri von að nýju, skaplega skipuðu Alþingi verði betur treystandi til að laga til í Landsbank- anum og víðar. Bankarnir verða þá fyrst tilbúnir til eigendaskipta að þeir sem falið er að halda utan um einka- væðinguna njóti trausts. Takist ekki að endurreisa Alþingi í tækan tíma mætti velja t.d. 20 manna eigendaráð af handahófi úr þjóðskrá og setja yfir bankasýsluna sem fer með hlut ríkisins i bönkunum. Bíðum með bankana S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 1 4 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 5 1 -D D D 8 2 2 5 1 -D C 9 C 2 2 5 1 -D B 6 0 2 2 5 1 -D A 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.