Fréttablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 46
Breiðablik - Stjarnan 82-103 Breiðablik: Sanja Orazovic 27, Ivory Crawford 16/9 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 13, Sóllilja Bjarnadóttir 9, Björk Gunnarsdóttir 4, Hafrún Erna Haraldsdóttir 4, Telma Lind Ásgeirsdóttir 4, Maria Pala- cios 2, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 2, Birgit Ósk Snorradóttir 1. Stjarnan: Danielle Rodriguez 33/12 frá- köst/9 stoðs., Bríet Sif Hinriksdóttir 21, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 16/10 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 14, Ragnheiður Benónísdóttir 7/12 fráköst/7 stoðs., Auður Íris Ólafsdóttir 5, Veronika Dzhikova 5, Sólrún Sæmundsdóttir 2. Valur - Snæfell 83-72 Valur: Helena Sverrisdóttir 33/12 fráköst/7 stoðs., Heather Butler 27, Guðbjörg Sverris- dóttir 7, Hallveig Jónsdóttir 7, Ásta Júlía Grímsdóttir 4, Simona Podesvova 3/14 frá- köst/6 stoðs., Dagbjört Dögg Karlsdóttir 2. Snæfell: Kristen McCarthy 24/9 fráköst/7 stoðs./10 stolnir, Gunnhildur Gunnars- dóttir 15, Berglind Gunnarsdóttir 11, Katarina Matijevic 8, Angelika Kowalska 8, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir 3. Stjarnan og Valur mætast í úrslitaleik Geysi- sbikars kvenna á laugardaginn klukkan 13:30. Nýjast Geysisbikar kvenna HK - KA/Þór 28-29 Markahæstar: Díana Kristín Sigmarsdóttir 9/3, Sigríður Hauksdóttir 6/1 - Martha Her- mannsdóttir 8/3, Sólveig Lára Kristjáns- dóttir 7, Aldís Ásta Heimisdóttir 5. Efri Valur 26 Fram 25 Haukar 21 ÍBV 17 Neðri KA/Þór 17 Stjarnan 11 HK 7 Selfoss 4 Olís-deild kvenna Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit Tottenham - Dortmund 3-0 1-0 Son Heung-Min (47.), 2-0 Jan Verton- ghen (83.), 3-0 Fernando Llorente (86.). Ajax - Real Madrid 1-2 0-1 Karim Benzema (60.), 1-1 Hakim Ziyech (75.), 1-2 Marco Asensio (87.). Birna Berg til Þýskalands HANDBOLTI Birna Berg Haralds- dóttir er gengin í raðir þýska úrvals- deildarliðsins Neckar sul mer frá Århus United í Danmörku. Birna Berg skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Neckar sul mer sem er í 11. sæti þýsku deildarinnar af 14 liðum. Næsti leikur liðsins er gegn Metzingen á laugardaginn. Birna Berg, sem er 25 ára, hefur leikið sem atvinnumaður erlendis síðan 2013. Hún lék með Sävehof í Svíþjóð til 2015 þegar hún gekk í raðir Glassverket í Noregi. Birna færði sig svo yfir til Århus 2017. Skyttan skotfasta byrjaði að spila með Århus eftir áramótin en hún hafði þá verið frá keppni síðan í mars vegna hnémeiðsla. – iþs Komnar í bikarúrslit í fyrsta sinn Danielle Rodriguez átti frábæran leik þegar Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitaleik Geysisbikars kvenna með sigri á Breiðabliki, 82-103, í gær. Rodrigu- ez skoraði 33 stig, tók tólf fráköst og gaf níu stoðsendingar. Þetta er í fyrsta sinn sem Stjarnan kemst í bikarúrslit í kvennaf lokki. Þar mætir liðið Val sem sigraði Snæfell, 83-72, í hinum undanúrslitaleiknum. Valskonur hafa aldrei áður orðið bikarmeistarar kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Birna Berg á æfingu með íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KÖRFUBOLTI KR og Njarðvík eru sigur sælustu félögin í bikarkeppn- inni, en KR-ingar hafa lyft bikarnum 12 sinnum, síðast árið 2017, og Njarð- vík átta sinnum, síðast árið 2005. Stjarnan hefur hins vegar átt góðu gengi að fagna í keppninni undan- farinn áratug, en liðið hefur orðið bikarmeistari þrisvar sinnum á síð- ustu tíu árum. Fyrst árið 2009, síðan árið 2012 og loks árið 2015. ÍR státar svo af tveimur bikarmeistaratitlum (2001 og 2007). Stjarnan mætir til leiks með gott gengi liðsins eftir síðustu þrjá mán- uði tæpa í farteskinu. Síðan liðið tapaði fyrir Njarðvík um miðjan nóvember á síðasta ári hefur það farið með sigur af hólmi í tíu leikjum í röð. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, ítrekaði það hins vegar í samtali við Fréttablaðið að tölfræði, saga og fyrri afrek myndu ekki hjálpa liðinu á nokkurn hátt í leiknum gegn ÍR í dag. „Stjörnunni hefur vissulega geng- ið vel í bikarkeppni undanfarin ár og það hefur verið flottur bragur á okkar undanfarið. Það gefur okkur hins vegar ekkert forskot þegar út í þennan leik er komið. Við þurfum að eiga góðan dag til þess að fara í úrslitaleikinn sem er að sjálfsögðu stefnan. Við breytum engu í okkar rútínu frá hefðbundnum deildarleik sem er í mjög föstum skorðum. Það þarf andlegan og líkamlegan styrk til þess að vinna svona leik og ég tel okkur hafa það í okkar vopnabúri,“ segir Arnar. Borche Ilievski, þjálfari ÍR, sem hefur háð nokkrar rimmur við Arnar og Stjörnumenn á leiktíðinni hefur hins vegar verið að glíma við það að þó nokkur meiðsli hafa verið í leikmannhópi liðsins í vetur. Af þeim sökum hefur ekki náðst mikill stöðugleiki í spilamennsku liðsins. „Leikmenn sem hafa verið meiddir í vetur eru að skríða saman og leikurinn við Val á dögunum er sá fyrsti þar sem við erum með alla þá leikmenn sem við viljum stilla upp heilum á sama tíma. Við erum með sterkt lið sem er til alls líklegt ef allir leikmenn hitta á góðan leik. Það verður að gerast ef við ætlum að leggja sterkt lið Stjörnunnar að velli,“ sagði Borche. Njarðvík og KR hafa marga hild- ina háð í gegnum tíðina og það eru margar fallegar sögur og tengingar á milli liðanna. Leikmenn liðanna, sem eru margir hverjir afar reynslu- miklir, hafa mætt hvorir öðrum margoft á körfuboltavellinum og það verður líklega fátt sem mun koma á óvart í leik liðanna í kvöld. „Leikmenn og þjálfarar þessara liða þekkjast mjög vel og til dæmis hafa Logi Gunnarsson og Jón Arnór Stefánsson bæði mæst og leikið saman í landsliðinu í fjölda mörg ár. Jeb Ivey var leikmaðu Inga Þórs Steinþórssonar [þjálfara KR] þegar Snæfell varð Íslandsmeistari og fleira og fleira. Við erum með mjög sterkt lið á pappírnum og frammi- staða liðsins hefur verið mjög góð heilt yfir í vetur. Mér finnst þetta lið jafn sterkt og mögulega sterkara en það sem var sigursælt undir minni stjórn síðast þegar liðið vann titla. Við þurfum hins vegar að standa okkur á ögurstundu til þess að geta borið okkur saman við það lið,“ segir Einar Árni Jóhannesson, þjálfari Njarðvíkur. Góðvinur hans Ingi Þór, sem er við stjórnvölinn hjá KR, hefur í þó nokkur skipti farið með lið í Laugar- dalshöllina í undanúrslit og úrslit í bikarkeppni. Hann segir þetta alltaf jafn skemmtilegt og hlakkar til . „Við erum staðráðnir í að fara alla leið og vinna bikarinn, en til þess þurfum við að byrja á að vinna sterkt lið Njarðvíkur. Þeir fóru illa með okkur í deildarleik á dögunum og ég er búinn að liggja yfir þeim leik til þess að átta mig á því hvað fór úrskeiðis. Við munum breyta nálgun okkar í kvöld frá þeim leik, en það kemur svo í ljós hvort sú áherslu- breyting dugar til sigurs,“ segir Ingi Þór um kvöldið. hjorvaro@frettabladid.is Sigursælustu liðin mætast  Bikarvikan í körfubolta heldur áfram í kvöld en þá ræðst hvaða lið leika til úrslita í karlaflokki. Þar mætast fyrst Stjarnan og ÍR síðdegis og svo Njarðvík og KR, sigursælustu lið keppninnar, um kvöldið. Fulltrúar liðanna fjögurra í undanúrslitum Geysisbikars karla. Frá vinstri: Tómas Þórður Hilmarsson (Stjörnunni), Kristófer Acox (KR), Jeb Ivey (Njarðvík) og Sigurður Gunnar Þorsteinsson (ÍR). MYND/KKÍ KR og Njarðvík hafa samtals 20 sinnum orðið bikarmeistarar. 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 4 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 5 1 -B 6 5 8 2 2 5 1 -B 5 1 C 2 2 5 1 -B 3 E 0 2 2 5 1 -B 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.