Fréttablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 30
Ester Auðunsdóttir, ein af fjórum söngkonum Lyriku, og Stefán Þór Þorgeirsson í Bar-
bara eru spennt fyrir Valentínusar-
deginum. Þau klæða sig vafalaust
upp á í nafni ástarinnar og svara
hér nokkrum laufléttum spurning-
um og skemmtilegum spurningum
um tískuna.
Stefán
Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl?
Ég er oft að vinna með casual
og þægileg föt. Rúllukragapeysur
og prjónapeysur, sérstaklega yfir
vetrartímann. Þær fara líka vel
með Timberland eða jafnvel fínni
skóm.
Hvar kaupir þú fötin þín?
Ég kaupi föt aðallega erlendis, ég
er mest í Japan eða á Spáni þannig
að fatavalið er fjölbreytt.
Eyðir þú miklu í föt?
Ég eyði ekki mjög miklu í föt
heldur reyni að finna áhugaverðar
flíkur á skikkanlegu verði.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Uppáhaldsflíkin mín er svört
peysa frá Osaka í Japan sem er
heldur mínímalísk nema að á erm-
unum er plómu-emoji með Hipster
skrifað á plómuna.
Helsti veikleiki þegar kemur að
tísku og útliti?
Minn helsti veikleiki í tísku er
líklega tilhneigingin til að vera í
svörtu eða bláu, það væri gaman
að vera litríkari. Ég á mér engar
fyrirmyndir í tísku en það er mjög
gaman að ganga um Harajuku
hverfið í Tókýó og sjá allar flottu
týpurnar.
Hvað er fram undan?
Fram undan er útgáfa á japanskri
heimildaseríu sem ég tók síðasta
sumar.
Ester
Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl?
Einhvers konar fusion stíll.
Finnst mjög gaman að blanda
saman mismunandi stílum og svo
hef ég mjög gaman af fötum sem
eru nógu ljót til að vera flott.
Hvar kaupir þú fötin þín?
Í rauninni bara alls staðar, upp
á síðkastið hafa Spúútnik, Stefáns-
búð og Húrra Reykjavík verið í
uppáhaldi. Finnst samt mikilvægt
að reyna að forðast fast fashion
merki eftir bestu getu og kaupa
frekar færri og betri flíkur.
Eyðir þú miklu í föt?
Ég held að ég eyði ekki mjög
miklu í föt en útsölutíminn
reynir á.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Ég var að fá mér Henrik Vibskov
buxur sem eru í miklu uppáhaldi
einmitt núna.
Uppáhaldshönnuður?
Vivienne Westwood.
Helsti veikleiki þegar kemur að
tísku og útliti?
Það tekur mig oft óþarflega
langan tíma að setja saman outfit
og stundum tek ég sénsa í tísku sem
ganga ekki alveg upp.
Hvað er fram undan?
Eins og er þá er ég að taka
starfsnám í gullsmíði hjá Anna
María Design. En það sem er helst á
döfinni þessa dagana eru Valentín-
usartónleikar sem sönghópurinn
minn, Lyrika, heldur í Iðnó
fimmtudaginn 14. febrúar ásamt
kvartettinum Barbara.
Syngja um ástina
A capella sönghóparnir Lyrika og Barbari stilla saman
strengi sína á Valentínusardag og halda tónleika í Iðnó
klukkan 21. Þau munu syngja um ástina í tilefni dagsins.
Stefán Þór Þorgeirsson í Barbara og Ester Auðunsdóttir í Lyriku verða í Iðnó í kvöld að syngja ástarlög með
sönghópunum sínum. Tilvaldir tónleikar fyrir ástfangið fólk og alla aðra sem trúa á ástina. MYND/EYÞÓR
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
SMART FÖT, FYRIR SMART KONUR
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 6.900.- Kr. 8.990.-
Nýjar vörur
Kr. 8.990.- Kr. 6.900.-
FLEIRI LITIR
Verðhrun á útsöluvörum
Aðeins 6 verð, 1.000-6.000.-
“Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi
almennings að upplýsingum og ráðgjöf
um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,,
Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is
Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
4
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
1
-B
6
5
8
2
2
5
1
-B
5
1
C
2
2
5
1
-B
3
E
0
2
2
5
1
-B
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K