Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 8
BANDARÍKIN Sannarlega má tala um
að fimbulkuldi hafi verið í norð-
austurhluta Bandaríkjanna í gær.
Víða var meira en 20 stiga frost. Í
bænum International Falls í Minne-
sota mátti lesa -39 á mælunum.
Bærinn er, ef til vill skiljanlega, oft
kallaður ýmist „Ískassi þjóðarinnar“
eða „Kalfossar“.
Stórborgir fengu einnig að finna
vel fyrir því. Frostið í Chicago fór í
32 stig, tæp þrjátíu í Detroit og Des
Moines og í fimmtán í St. Louis.
Weather.com greindi frá því að
miðað við vindkælingu hefði kuld-
inn verið líkt og 49 stiga frost við
hina svokölluðu Kalfossa og líkt og
42 stiga frost í Chicago.
Kuldamet féllu þó ekki á
umræddum stöðum. Við Kalfossa
hefur kaldast mælst 48 stiga frost,
33 í Chicago og 29,5 í Detroit. Svo
því sé haldið til haga var kuldametið
á meginlandi Bandaríkjanna sett í
Montana í janúar 1954 og var þá 57
stiga frost. Kuldamet Bandaríkjanna
í heild var sett í Alaska í janúar 1971,
62 stiga frost.
Allnokkur andlát voru stað-
fest í gær. Samkvæmt BBC varð til
dæmis maður fyrir snjómoksturs-
bíl í Chicago, annar fraus í hel í bíl-
skúr í Milwaukee og ungt par fórst
í bílslysi vegna hálku í norðurhluta
Indiana.
Daglegt líf í Illinois, Iowa, Minne-
sota, Norður- og Suður-Dakóta,
Wisconsin, Kansas, Missouri, Mont-
ana, Nebraska og víðar hefur raskast
töluvert vegna heimskautalægðar-
innar sem nú gengur yfir svæðið.
Skólar og vinnustaðir skelltu í lás,
pósturinn hætti að bera út og sam-
göngur voru víða í lamasessi svo fátt
eitt sé nefnt. Þúsundum flugferða
hefur til að mynda verið aflýst.
„Þetta eru AFAR HÆTTULEGAR
aðstæður. Ef maður er úti í jafnvel
fimm mínútur gæti maður fengið
kalsár. Það besta sem þið getið gert
í stöðunni er að takmarka útivist,“
sagði í yfirlýsingu frá skrifstofu
alríkisveðurstofunnar í Minnesota.
Dave Hennen á veðurstofu CNN
tók í sama streng. „Kaldasta veður
þessarar kynslóðar leitar nú suður
á bóginn,“ sagði hann á þriðjudags-
kvöld áður en mesta frostið skall á.
„Manndrápsveður“ var fyrir-
sögnin framan á Chicago Sun
Times. „Þetta er eins slæmt og það
gerist í þessum heimshluta,“ sagði
veðurfræðingurinn Mark Ratzer við
blaðamann þar á bæ.
Þetta mikla frost er til marks um
að nú sé tekinn við tími mikilla
öfga í veðri. Þessari skoðun lýsti
Crystal A. Kolden, prófessor við
Idaho-háskóla, í viðtali við The
New York Times í gær. Hún benti
á að undanfarin ár höfum við horft
upp á öfgar í skógareldum, felli-
byljum, hita og frosti. „Við þurfum
að hugsa út fyrir þann ramma sem
fortíðin sýnir okkur og undirbúa
okkur undir að ástandið nú verði
verra en við höfum áður séð,“ sagði
prófessorinn.
Og þótt forseti Bandaríkjanna
hafi gantast með á þriðjudag að
vegna heimskautalægðarinnar
væri svo sannarlega þörf á lofts-
lagsbreytingum, sem hann hefur
ítrekað lýst efasemdum um að séu
af mannavöldum, eru þessar sömu
loftslagsbreytingar ástæðan fyrir
veðuröfgum sem þessum að mati
Friederike Otto, prófessors í lofts-
lagsvísindum við Oxford.
„Þótt ekki sé hægt að kenna lofts-
lagsbreytingum alfarið um þessar
öfgar er ljóst að þessar miklu breyt-
ingar hækka líkur á fjölda öfgafullra
atburða. Vegna þess er mikilvægt
að átta sig á hvaða ógn steðjar að
samfélagi þínu. Sú ógn hefði jafnvel
ekki verið til staðar ef ekki væri fyrir
loftslagsbreytingar,“ sagði Otto við
The New York Times.
thorgnyr@frettabladid.is
0
-10˚
-20
-30
-40
-50
-60
-70
-80
-90
-8˚ Reykjavík í gær
-89˚ í Vostok-rannsóknar-
stöðinni á Suðurskautinu 21.
júlí 1983. Kuldamet heimsins.
-15˚ St. Louis í gær.
-25˚ Des Moines í gær.
-26˚ Detroit í gær.
-32˚ Chicago í gær.
-38˚Grímsstaðir og
Möðrudalur 21. janúar
1918. Kuldamet á Íslandi.
-39˚ International Falls í gær.
-57˚ í Montana 20. janúar
1954. Kuldamet á meginlandi
Bandaríkjanna.
-62˚ í Alaska 23. janúar
1971. Kuldamet Bandaríkjanna.
✿ Fimbulkuldi
Manndrápsveður vestanhafs
Hættulegt frost var í norðausturhluta Bandaríkjanna í gær. Fór niður að fjörutíu stigum. Stórborgir lentu illa
í heimskautalægðinni og mældist frost til að mynda 32 stig í Chicago. Veðurfræðingar vara við útivist.
5
mínútur af útivist duga til að
fá kalsár, sagði í yfirlýsingu
frá skrifstofu alríkisveður-
stofunnar í Minnesota.
G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S
heilsudagar
21.01 – 03.02
EÐA 4.701 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 56.414 KR. - ÁHK 24,50%
49.985
EÐA 5.047 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 60.560 KR. - ÁHK 23,77%
53.990SAMSUNG
GALAXY A7
SAMA750BLA
6.0”
SUPER
AMOLED
1080X2220
24MP F/1.7,
ULTRAWIDE
8MP F/2.4,
5MP F/2.2
24MP F/2.0
4K VÍDEÓ
64GB
4GB
3x bak-
mynda-
vélar
borgaðu
með úrinu
GARMIN
VIVOACTIVE 3
0100176910
þér í einu og öllu
snjallúr sem hentar
TÆKNI Facebook hefur frá 2016
greitt fólki frá 13 til 35 ára allt að
20 dali á mánuði fyrir að hala niður
appi að nafni Facebook Research.
Appið fylgist með öllu sem notand-
inn gerir í síma sínum og sendir til
Facebook. Þannig er gögnum um
netnotkun og keppinauta Facebook
safnað í stórum stíl. Techcrunch
greindi frá.
Samkvæmt öryggissérfræðingi
sem miðillinn ræddi við getur
Facebook safnað einkaskilaboð-
um, myndum, tölvupóstum, leitar-
orðum, vafrasögu og staðsetningu
notanda með appinu.
Upplýsingafulltrúi Apple sagði
við Techcrunch að þetta væri
skýrt brot gegn skilmálum Apple.
„Facebook hefur notað aðild sína að
hönnunarverkefni okkar til þess að
dreifa gagnasöfnunarforriti til neyt-
enda. Þetta er skýrt brot gegn skil-
málum samkomulags Facebook og
Apple,“ sagði upplýsingafulltrúinn.
Facebook staðfesti í kjölfar birtingar
fréttarinnar að útgáfu appsins fyrir
iOS, stýrikerfi iPhone-síma Apple,
yrði hætt. Henni verður þó haldið
áfram fyrir Android.
Facebook festi kaup á fyrir-
tækinu Onavo 2014. Það hafði
þróað app að nafni Onavo Protect
sem þjónaði sams konar tilgangi.
Þannig gat Facebook komist að
því hvernig notendum líst á önnur
öpp og gat meðal annars spáð fyrir
um komandi vinsældir WhatsApp,
sem Facebook keypti síðar sama
ár. Apple bannaði það app í ágúst
síðastliðnum. – þea
Facebook
gerir út
njósnaapp
Appið brýtur gegn skilmálum Apple.
NORDICPHOTOS/GETTY
13-35 ára fólki var greitt
fyrir upplýsingar um alla
símanotkun sína.
Sem stendur er frost í Chicago það mikið að sé vatni skvett upp í loft frýs það
áður en það nær jörðu. Það sannreyndi þessi íbúi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-9
D
1
C
2
2
3
1
-9
B
E
0
2
2
3
1
-9
A
A
4
2
2
3
1
-9
9
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K