Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 30
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þeir sem eru duglegir að ganga úti í kuldanum, stunda skíði eða skauta eða aðrar vetrar
íþróttir þurfa sérstaklega að gæta
að húðinni þar sem hún er ekki
varin. Kuldinn, myrkrið og minni
raki í lofti getur orsakað þurrku
bletti í andliti. Á þessum árstíma
þarf að huga vel að húðinni og nota
rétt andlitskrem. Helst ætti að nota
vörur fyrir viðkvæma húð. Margir
eiga sér uppáhaldsandlitskrem og
vilja ekki nota neitt annað. Snyrti
fræðingar eiga auðvelt með að
leiðbeina viðskiptavinum um hvað
sé best fyrir þeirra húðgerð og við
spurðum Mekkín Ragnars
dóttur, sérfræðing hjá
Madison ilmhúsi,
hvernig best
væri að verja
húðina.
Þegar
Mekkín
var spurð
hvort
rétt væri
að nota
sömu
andlits
krem að
sumri eða
vetri svaraði
hún: „Það fer
eftir húðgerð og
hvernig krem er
verið að nota. Ef kremið
hefur sértæka virkni er
farsælast að ráðfæra sig
við fagmann um það
hvernig og hvenær er best
að nota kremið en aftur á móti er
óhætt fyrir flesta að nota hlutlaus
rakakrem kvölds og morgna allan
ársins hring, það er krem á borð við
Hýdrófíl án olíu, sem fæst í flestum
lyfjaverslunum. Rétt eins og við
þurfum að huga að sólarvörn þegar
sólin skín gildir það sama þegar
frostið bítur í kinnar. Þannig geta
sum krem beinlínis verið skaðleg í
sól og sum hentað illa í köldu lofti.“
Mekkín segir að yfirleitt þurfi
feitari krem í kulda og frosti. „Feit
krem henta þó ekki öllum húð
gerðum, þannig reynist það flókið
að halda húðinni við á veturna.
Satt best að segja leita ég enn að
hinu fullkomna vetrarkremi sem
hentar íslenskri veðráttu og inni
heldur nokkurs konar frostvörn,
Forðist þurra húð í frostinu
Kuldinn undanfarna daga gerir það að verkum að húðin verður þurr og viðkvæm. Mekkín
Ragnars dóttir snyrtifræðingur gefur hér ýmis góð ráð til að halda húðinni í betra jafnvægi í vetur.
Mekkín
Ragnarsdóttir
snyrtifræðingur
gefur góð ráð
um umhirðu
húðarinnar.
þannig að rakinn hreinlega frjósi
ekki í húðinni. Sennilega upp
lifa flestir ójafnvægi í húðinni yfir
vetrartímann þar sem við förum út
í frostið og inn í upphituð hús og
bíla mörgum sinnum á dag. Húðin
er svo magnað líffæri og er alltaf að
reyna að aðlagast umhverfi sínu en
þetta reynist húðinni um megn,“
segir hún og bætir við að það sé
ávallt erfitt að mæla með einni vöru
sem hentar öllum.
„Sem fagmaður vil ég að viðkom
andi komi til mín í húðgreiningu
áður en lengra er haldið. Það eru
þó nokkrar vörur sem ég tel gott að
eiga og þá sérstaklega þegar verjast
skal veðuráreiti hvort sem um
sólargeisla eða frost og vind er að
ræða. Kremið CityShield frá Sepai
sem fæst í Madison ilmhúsi
er þunn formúla sem
hentar öllum húð
gerðum og hentar
sérlega vel
undir farða.
Kremið er
gert til þess
að verjast
hvers kyns
umhverfis
áreiti sem
flýtir fyrir
ótíma
bærri
hrörnun
húðarinnar.
Ég er ein
mitt í nánum
samskiptum við
framleiðendur Sepai og
á mér þá von að þróa hið
fullkomna frostvarnar
krem fyrir okkur hér á
norðurhveli jarðar. Einn
ig get ég nefnt Eight Hour Cream
frá Elisabeth Arden, Embryolisse
LatCréme og áðurnefnt Hýdrófíl
án olíu. Þetta eru allt ljómandi
fín krem sem verja húðina,“ segir
Mekkín.
Hún bendir á að góður raki sé
mikilvægari en allt þegar kemur
að vali á kremi. Þegar við eldumst
missir húðin hæfni sína til þess
að halda í og binda raka, því má
segja að rakinn sé lykillinn að æsku
húðarinnar. Í þessu sambandi ber
að nefna að hyaluronicsýra ætti að
vera ofarlega á lista í innihaldsefna
lýsingu kremsins. Munum einnig
að drekka nóg vatn!
Er verra að nota andlitsvatn til að
hreinsa farða en andlitshreinsi?
„Ég mæli ekki með því að sér
tilgert andlitsvatn sé notað eitt
og sér til þess að hreinsa húðina.
Mögulega hentar það þeim sem
nota mikinn farða dagsdaglega
en þá ásamt mildum farðahreinsi.
Algengt er að fólk noti of sterkar
sápur á andlitið og þvoi hrein
lega burt sýru og fitulag sem er
mikilvægur partur af varnarhjúp
húðarinnar og falli með því í víta
hring þar sem hreinlætisvörurnar
raska jafnvægi húðarinnar. Þá furða
ég mig oft á því hversu sterkir
andlitshreinsar eru á markaðnum.
Mitt ráð til flestra er að nota
mildan hreinsi og taka sér tíma í
að nudda formúlunni inn í húðina,
leyfa efninu að vinna áður en það
er skolað af með volgu vatni. Að
lokum mæli ég gegn því að húðin sé
skrúbbuð eða djúphreinsuð of oft
yfir vetrarmánuðina því hún þarf
á sínu náttúrulega varnarlagi að
halda í mesta frostinu.“
Það þarf að huga vel
að húðinni þegar
mikið frost er úti.
Við stöndum við bakið á þér
Hafðu samband og pantaðu tíma - við tökum vel á móti þér á Kírópraktorstofu Íslands.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-7
A
8
C
2
2
3
1
-7
9
5
0
2
2
3
1
-7
8
1
4
2
2
3
1
-7
6
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K