Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 44
Fyrir utan álag í
einkalífinu og á
vinnustaðnum teljum við
líklegt að menningin og
þær kröfur sem sam-
félagið gerir geti átt þátt í
því að fólk sé undir of
miklu álagi og kannski
eitthvað þar sem við
þurfum að endurhugsa.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Sífellt fleiri í samfélaginu heltast úr lestinni vegna tímabund-inna eða langvarandi veikinda.
Svo virðist sem hluti af þessum veik-
indum sé tilkominn vegna langvar-
andi álags bæði í starfi og einkalífi.
VIRK er starfsendurhæfingarsjóður
sem hefur það hlutverk að hjálpa
fólki sem þarf aðstoð við að komast
á vinnumarkað eftir veikindi eða
slys. „VIRK hefur verið starfandi á
ellefta ár og rúmlega 15.000 manns
hafa leitað til VIRK frá upphafi og
tæplega 9.000 hafa lokið þjónustu. Í
dag eru um 2.400 manns í þjónustu.
Árangurinn hefur verið mjög góður
en rúmlega 70% af þeim sem ljúka
þjónustu eru virk á vinnumarkaði;
í vinnu, í atvinnuleit eða námi við
útskrift,“ segir Ingibjörg Loftsdóttir,
sviðsstjóri rýnisviðs VIRK.
Metnaðarfullt verkefni
Stjórn VIRK ákvað á síðasta ári að
auka áherslu á forvarnir í starf-
seminni. „Okkur langar að hafa áhrif
í þá veru að fyrirbyggja brotthvarf af
vinnumarkaði.“
Fyrir ári var svo farið af stað með
forvarnarverkefni. „Við erum með
stýrihóp sem styður við verkefnið
en í honum eru aðilar úr stjórn
VIRK og fulltrúar frá velferðarráðu-
neytinu, Landlæknisembættinu og
Vinnueftirlitinu,“ segir Ingibjörg
sem sjálf er verkefnastjórinn.
Ákveðið var að þrískipta verk-
efninu. „Í fyrsta lagi viljum við rann-
saka ástæður þess að fólk hverfur af
vinnumarkaði vegna heilsubrests
og er stór rannsókn í undirbúningi
í samstarfi við Vinnueftirlitið og
fleiri aðila. Markmiðið er að finna
þær breytur sem valda því að fólk
hverfur af vinnumarkaði eftir
veikindaleyfi eða sem sagt hvernig
sá hópur sker sig frá þeim sem fer
í veikindaleyfi en á afturkvæmt til
starfa.“
Í öðru lagi var ákveðið að leggja
áherslu á fræðslu. „Við settum
síðuna www.velvirk.is í loftið til að
veita einstaklingum upplýsingar um
jafnvægi og vellíðan í lífi og starfi og
til að styðja við bakið á stjórnendum
og leiðtogum á vinnustöðum. Á
síðunni er m.a. fræðsla um góða
stjórnunarhætti og ýmis verkfæri
sem stjórnendur geta nýtt sér. Einnig
er þó nokkuð af upplýsingum sem
snúa að vellíðan og hvernig hægt sé
að halda streitu í skefjum.“
Brjálað að gera
Í þriðja lagi var ákveðið að hrinda af
stað vitundarvakningu í samfélag-
inu til að vekja fólk til umhugsunar
um álag almennt og einnig hvernig
sífelld notkun á rafrænum miðlum
getur aukið streitu. „Fyrir utan álag
í einkalífinu og á vinnustaðnum
teljum við líklegt að menningin og
þær kröfur sem samfélagið setur geti
átt þátt í því að fólk sé undir of miklu
álagi og kannski eitthvað þar sem
við þurfum að endurhugsa,“ segir
Ingibjörg.
VIRK fékk til liðs við sig auglýs-
ingastofuna Hvíta húsið sem vann
með þeim að vitundarvakningunni
„Er brjálað að gera?“. Farið var af
stað í desember með skemmtilegar
auglýsingar sem hafa vakið mikla
athygli en líklega kannast flestir við
konuna sem mætti of seint á tón-
leika dóttur sinnar bara til að upp-
götva að dóttirin var ekki á staðnum
því það gleymdist að sækja hana. Í
kringum áramótin voru síðan birtar
auglýsingar sem snúa að því að setja
mörk í vinnunni, nota skýr sam-
skipti og vera í núinu.
Brjálað að gera?
Er brjálað að gera? er vitundarvakning sem VIRK starfs-
endurhæfingarsjóður hleypti af stokkunum í desember.
Mikilvægt er að koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumark-
aði vegna heilsubrests sem má rekja til álags og streitu.
Ingibjörg Loftsdóttir segir að vitundarvakningin „Er brjálað að gera?“ hafi
fengið mjög góð viðbrögð. MYND/ERNIR
Eftir að hafa farið í gegnum kulnun á haustdögum 2016 stóð ég á krossgötum,“ segir
Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir. „Á
þeim tíma var litla hjálp að fá en
örlögin leiddu mig á slóð Young
Living ilmkjarnaolía sem reyndust
mér mikil líkamleg og tilfinningaleg
stoð. Þær áttu stóran þátt í að koma
mér aftur á skrið og styrkja mig í að
fara aftur á vinnumarkaðinn.“
Guðlaug segir Young Living olí-
urnar þær hreinustu sem finnast.
Fyrirtækið leggi mikinn metnað í
gegnsæi í framleiðsluferlinu, allt frá
fræi til flösku.
„Ég fann fljótt að olíurnar eru ein-
stakar og um haustið 2017 fann ég
knýjandi þörf til að leyfa fleirum að
njóta,“ segir Guðlaug sem í kjölfarið
stofnaði fyrirtækið Einstakar olíur.
Heilandi töfrar ilmkjarnaolía
Guðlaug öðlaðist nýtt líf með Young Living olíunum. MYND/ANTON BRINK
„Viðskiptamódel Young Living
er svokallað Multi Level Marketing
(MLM). Fólk skráir sig inn undir
ákveðinn dreifingaraðila og sækir
til hans kennslu og ráðgjöf. Þeir sem
vilja geta svo farið í að skrá undir sig
og koll af kolli,“ útskýrir Guðlaug
sem er með nokkra í hóp sem vinna
eins og hún og fá til þess góðan
stuðning frá henni og öðru fólki.
„Ég þarf heldur ekki að liggja með
lager því allir sem versla gera það
í gegnum vefverslun Young Living
sem er frábær heilsubúð.
Einstakar olíur fyrir alla
Þegar Guðlaug tók ákvörðun um
að kynna Young Living hafði hún
stuðning og þjónustu að leiðarljósi.
„Hópurinn minn byggðist upp
hægt og bítandi og að lokum leið
mér eins og ég væri að dreifa olíum
um allt land en þó kynnu fáir
almennilega að nota þær. Ég útbjó
því námskeið sem fylgir til allra sem
skrá sig undir mitt fólk í Einstökum
olíum. Það hefur hlotið frábærar
undirtektir enda eru ilmkjarna-
olíur margslungnar og frábært að fá
tækifæri til að læra á fjölbreytileika
þeirra heima í stofu,“ segir Guðlaug
sem heldur einnig fyrirlestra um
töfra ilmkjarnaolía og hvernig hún
notaði þær til að ná sér á strik eftir
kulnun.
„Kulnun hverfur ekki á einni
nóttu og ég finn enn fyrir ein-
kennum. Þess vegna ákvað ég að
kasta mér í djúpu laugina síðast-
liðið vor og fara í sjálfstæða verk-
töku í verkefnastjórnun og ráðgjöf í
tölvutengdum verkefnum, þar sem
ég er kerfisfræðingur. Allt hefur
það gengið blessunarlega upp hjá
mér og ég næ góðu jafnvægi á milli
vinnu, olía og rýmis sem ég þarf til
að hlúa að sjálfri mér,“ segir Guð-
laug sem heldur úti virku bloggi
á einstakaroliur.is þar sem einnig
er að finna upplýsingar um Young
Living olíur og fleira.
Þú finnur Einstakar Olíur á Facebo-
ok og á www.einstakaroliur.is.
Hvernig er hægt
að skapa sér at-
vinnutækifæri
með MLM vinnu?
„Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð við auglýsingunum enda
var vandað til verka,“ segir Ingibjörg
en allar auglýsingarnar má skoða á
vefsíðunni www.velvirk.is.
Heilsueflandi vinnustaðir
Fjórði þátturinn bættist nýverið
við en VIRK er að fara að taka þátt í
samstarfi við Landlæknisembættið
og Vinnueftirlitið varðandi heilsu-
eflandi vinnustaði. „Þetta er mjög
spennandi verkefni. Markmiðið er
að setja fram viðmið sem vinnu-
staðir geti sett sér til að geta kallað
sig heilsueflandi vinnustað. Í fram-
haldinu er stefnan að fara af stað
með tilraunaverkefni með nokkrum
vinnustöðum.“
Young Living
ilmkjarnaolíurnar
reyndust mér mikil
líkamleg og tilfinningaleg
stoð. Þær áttu stóran þátt
í því að koma mér aftur á
skrið og styrkja mig í að
fara út á vinnumarkað-
inn á ný.
14 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-C
9
8
C
2
2
3
1
-C
8
5
0
2
2
3
1
-C
7
1
4
2
2
3
1
-C
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K