Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 45
Sandra rak fimm fataverslanir og heildsölu á höfuðborgarsvæðinu í nokkur ár. Í nítján
ár hefur hún rekið eigin fyrirtæki og
unnið sjálfstætt. Vinnan hefur alltaf
verið krefjandi og Sandra var undir
miklu álagi. Hún var meðal annars
stofnandi og fyrsti framleiðandi
Brasilian Tan brúnkukremsins. „Ég
var alltaf að fá nýjar hugmyndir og
hikaði ekki við að framkvæmda
hlutina,“ segir hún. „Líf mitt snerist
um vinnu, daginn út og inn. Ég var
farin að finna fyrir þreytu og fékk
löngun til að snúa mér að einhverju
sem tengdist heilsu, ekki síst vegna
þess að ég þurfti að huga að eigin
heilsu. Árið 2012 fór ég í einka
þjálfaranám og fékk réttindi til að
kenna frá World Class. Ég lokaði
verslunum mínum og heildsölunni.
Kreppan fór heldur ekkert vel með
mig,“ segir Sandra sem ákvað að
bæta við sig þekkingu á sviði heilsu
og lífsstíls eftir að hafa tekið einka
þjálfaraprófið.
Helgaði sig bættri heilsu
„Ég stofnaði Heilsu og útlit í Hlíða
smára 17 og fyrirtækið verður fimm
ára í júní á þessu ári. „Við sérhæfum
okkur í að hjálpa fólki með sogæða
vandamál. Ég fór til Þýskalands til
að læra á Weyergans heilsutækin.
Síðan hef ég helgað mig þessari
tækni sem hefur hjálpað fólki á
öllum aldri. Þetta er það besta sem
fyrir mig hefur komið. Mér finnst
svo yndislegt að geta hlúð að fólki
og verða vitni að góðum árangri,“
segir hún.
„Það var mjög gott fyrir mig að
skipta um starfsvettvang og gera
eitthvað alveg nýtt. Streitan var
farin að yfirtaka líf mitt. Ég vann
mikið frá börnum mínum þegar
þau voru yngri og þetta var alls ekki
nógu gott. Ég fann virkilega þörf
fyrir að breyta um takt í lífinu. Ég
sé ekki eftir því enda gefur vinnan
lífinu lit.“
Sandra var beðin um að taka
við fyrirtækinu PM International
fyrir tveimur árum. „Fyrirtækið
framleiðir vinsæl fæðubótarefni
og heilsuvörur. Yfir sex hundruð
Íslendingar drekka vítamín
drykkina okkar og það er ótrúlega
skemmtilegt. Þetta eru drykkir sem
hjálpa fólki með meltingu, orku og
svefn. Ég er með frábært sölufólk
fyrir vörurnar og þeim hefur verið
einstaklega vel tekið. Maður gerir
ekkert án þess að hafa gott starfs
fólk í kringum sig. Þessi góðu fæðu
bótarefni henta vel með rekstri
Heilsu og útlits.“
Sandra segist oft vera beðin að
koma á félagsfundi, í stofnanir og
jafnvel á heimili til að kynna víta
míndrykkina og fæðubótarefnin.
„Hjá mér starfar næringarfræðingur
sem aðstoðar fólk með mataræðið
og bendir á góðar heilsubætandi
lausnir. Ég hef áhuga á að bjóða upp
á heildrænar lausnir og ráðgjöf,“
segir hún.
Meðferðin gefur góða raun
Sandra segir að heilsutækin
hjá Heilsu og útliti hafi hjálpað
mörgum að ná bata. „Margir
læknar hafa opnað augun fyrir
þessum möguleika í bataferli
sjúklinga. Sumir þeirra eru farnir
að benda fólki á þennan kost við
verkjum, bólgum eða sogæða
vandamálum. Einnig vinnum við
vel með sjúkraþjálfurum því með
ferðin hjálpar einnig sjúklingum
með stoðkerfisvandamál, mikinn
bjúg, lélegt blóðflæði eða fóta
pirring. Sömuleiðis þeim sem hafa
farið í mjaðmakúluskipti eða hnjá
liðaskipti. Þetta er góð meðferð
eftir margs konar aðgerðir og við
höfum séð undraverðan árangur. Í
sumum tilfellum hefur fólk prófað
allt mögulegt án þess að fá hjálp.
Fæstir vilja taka inn bjúgtöflur
í langan tíma,“ segir Sandra og
bætir við að hún hafi sjálf oft farið
í tækin.
„Ég finn fyrir því hvað mér líður
vel á eftir. Auk þess fæ ég mér víta
míndrykk til að bæta orkuna. Þeir
sem hafa prófað tækið koma aftur
og aftur. Það er algengt erlendis að
sjúkraþjálfarar séu með Weyergans
tæki og ég vona að meiri samvinna
geti verið á milli okkar hér á landi.
Eftir að ég byrjaði að vinna með
þessa tækni hef ég orðið miklum
mun meðvitaðri um eigin heilsu,“
segir Sandra og hefur orð á að
margir af skjólstæðingum hennar
hafi orðið fyrir kulnun í starfi
vegna of mikils álags.
Sandra segir að miklar kröfur
séu á fólk í samfélaginu og mikill
hraði. „Íslendingar eru duglegir
en því miður er margt fólk dottið
út af vinnumarkaði og það getur
verið erfitt að fá fólk í vinnu. Það
er sorgleg þróun. Mér finnst löngu
vera kominn tími á að vinnuveit
endur hlúi vel að sínu starfsfólki.
Vonandi er að verða vitundarvakn
ing á þessu sviði. Ekki er gott þegar
allir sjúkrasjóðir tæmast.“
Gengur á fjöll
Áhugamál Söndru er að ganga á
fjöll. „Ég og eldri dóttir mín erum
mikið í fjallgöngum. Ég er nýkomin
heim frá Kaliforníu þar sem ég
gekk á fjöll. Mér finnst sérstaklega
gaman að fara á fjöll í Banda
ríkjunum. Með slíkri göngu getur
maður hlaðið batteríin á undra
skömmum tíma. Þetta gefur mér
kraft og ég endurnærist úti í nátt
úrunni. Helst sleppi ég símanum
og losa mig við stress. Fjallganga er
besta þunglyndislyf sem hægt er að
fá,“ segir hún.
Vængur vonar
Fyrir utan allt þetta hefur Sandra
gengið með þá hugmynd í tíu ár að
hjálpa MND sjúklingum varðandi
styrktarstarfsemi. Sú hugmynd
er loksins orðin að veruleika. „Ég
fékk vinkonu mína, Írisi Björk
Jónsdóttur, yfirhönnuð hjá Vera
Design, til að hjálpa mér við
hönnun. Úr varð Vængur vonar
eða Wing of Hope. Við erum byrj
aðar að selja og Anna prinsessa á
Englandi er þegar búin að eignast
eitt stykki. Þetta eru hálsmen og
nælur og er hægt að kynna sér
verkið á Facebook síðunni Wing
of Hope. Ég er mjög stolt af þessu
verkefni. Það var mér hjartans
mál að aðstoða MND félagið með
þetta. Með styrknum getur félagið
síðan aukið rannsóknir á þessum
sjúkdómi,“ segir Sandra sem er
umboðsaðili Weyergans og Styx á
Íslandi, vara og véla sem eru að slá
í gegn eins og sogæðastígvélin, súr
efnishjálmurinn og vacusport.
Þeir sem vilja kynna sér frekar starf
hennar á Heilsu og útliti geta haft
samband í síma 562 6969, bókað
tíma, fengið ráðgjöf um meðferðir
eða kynnt sér vítamínin.
Streitan var að yfirtaka líf mitt
Sandra Lárusdóttir stofnaði Heilsu og útlit árið 2014. Markmið hennar var að bæta vellíðan og
heilsu fólks. Sandra sérhæfði sig í tækjum frá þýska heilsuvöruframleiðandanum Weyergans.
Sandra Lárusdóttir hjá Heilsu og útliti í Hlíðasmára. Á bak við hana má sjá vörur úr PM International línunni sem hafa slegið í gegn hér á landi. Þetta eru vítamín og fæðubótarefni. MYND/EYÞÓR
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
KYNNINGARBLAÐ 15 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-C
9
8
C
2
2
3
1
-C
8
5
0
2
2
3
1
-C
7
1
4
2
2
3
1
-C
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K