Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 74
Orðin hér að ofan gætu verið höfð e f t i r e i n hve r r i völvunni en sú er ekki raunin. Ragn-heiður Skúladóttir
hefur verið ráðin stjórnandi lista-
hátíðarinnar Festspillene i Nord-
Norge eða Arctic Arts Festival, eins
og hún nefnist á ensku.
„Mér finnst þetta svakalega
spennandi áskorun og mikill heiður.
Ég hef gaman af að kynnast nýju
fólki og nýjum aðstæðum og hlakka
til að hefja störf,“ segir Ragnheiður,
sem var forseti sviðslistadeildar
Listaháskólans fyrsta áratug hans,
leikhússtjóri á Akureyri í nokkur ár,
annar tveggja stofnenda og stjórn-
enda leiklistarhátíðarinnar Lókal
og nú framkvæmdastjóri Íslenska
dansflokksins.
„Ég var ekki að leita að nýju starfi,
er búin að vera hér hjá dansflokkn-
um síðastliðin tvö ár og hef haft nóg
að gera í því skemmtilega umhverfi,“
segir Ragnheiður. „En mig hefur líka
dreymt um að sinna einhverju stóru
verkefni sem listrænn stjórnandi, ég
leyni því ekki. Og þegar Maria Utsi,
fráfarandi stjórnandi Festspillene,
ákvað að hætta, fékk ég upphring-
ingu frá Noregi. Eftir nokkra eftir-
gangsmuni lét ég til leiðast og sagði
að það mætti hafa mig í huga þegar
kæmi að því að ráða nýjan stjórn-
anda.“
Listahátíðin Festspillene i Nord-
Norge var stofnuð 1965 og byggir því
á gömlum merg. Hátíðin er önnur
stærsta listahátíð í Noregi, á eftir
listahátíðinni í Bergen, hún þjónar
aðallega fylkjunum Nordland,
Hefur reynst farsælt að fylgja innsæinu
Borgin Harstad í Norður-Noregi verður miðpunktur alheimsins næstu fjögur árin hjá Ragnheiði Skúla-
dóttur, framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins. Hún mun stýra stórri listahátíð sem haldin er árlega.
„Ég veit að þetta er krefjandi starf og staðan er hátt skrifuð,“ segir Ragnheiður. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Troms og Finnmörku og veltir árlega
400 milljónum. Að sögn Ragnheiðar
var lengi vel lögð aðaláhersla á tón-
list í dagskránni. „Síðustu fjögur
ár hefur hátíðin hins vegar gengið
í gegnum ákveðna umbreytingu;
hún sinnir nú öllum listgreinum og
mikil áhersla hefur verið lögð á að
þróa tengsl hátíðarinnar við lista-
menn á heimskautasvæðum Kan-
ada, Bandaríkjanna og Rússlands.
Nú munum við teygja okkur suður
á bóginn. Ég hef allan heiminn undir
og fjármagn til að þróa ný og spenn-
andi verkefni á alþjóðavísu, sem
er auðvitað skemmtilegt og mikil
áskorun. Íbúar í Norður-Noregi eru
fjölbreyttur hópur og þeir eru stoltir
af sinni hátíð enda góðu vanir.“
Ragnheiður tekur við góðu búi,
segir forvera sinn, Mariu, hafa
komið úr tónlistarhátíðargeiran-
um, hún sjálf muni koma með enn
meiri áherslu á dans og leiklist en
áður hafi verið. „Ég er náttúrlega á
þeirri línu, en kem einnig til með að
byggja á þeirri flottu tónlistarhefð
sem er grundvöllur Festspillene.
Nú tíðkast sífellt meiri og almenn-
ari samvinna á milli listamanna úr
ólíkum listgreinum og mér finnst
það vera mjög mikilvægur og eftir-
tektarverður þráður í samtíma-
listum. Ég hef áhuga á að skoða slík
samvinnuverkefni í framtíðinni,“
segir Ragnheiður sem er þegar farin
að huga að málefnum Festspillene
þó að hún taki ekki formlega við
stöðu listræns stjórnanda fyrr en í
ágúst í sumar.
„Ég byrja í 50% starfi í mars, svona
til að fylgjast með á endaspretti
undirbúningsins fyrir hátíðahöldin
sumarið 2019. En það er þannig með
svona störf að heilinn fer strax í gang
og maður fer umsvifalaust að hugsa
fram í tímann. Ég er til dæmis þegar
komin með hluta af prógramminu
2020 á blað.“ Ragnheiður er ráðin
til fjögurra ára með möguleika á
endurnýjun ráðningarsamnings
að þeim liðnum. „Það er gaman að
taka við hátíð sem er í góðu gengi
bæði listrænt séð og fjárhagslega og
nýtur vinsælda meðal almennings,
þá getur maður einbeitt sér að fram-
þróun hennar og frekari tengingum
við umheiminn.“
Harstad er lítil hafnarborg aust-
ast í eyjaklasanum Lófóten. Borgin
liggur á 69. breiddargráðu, þremur
gráðum norðar en Grímsey, en um
50 þúsund manns búa í Harstad og
nágrenni. „Þetta er gríðarstórt svæði
og áhugavert,“ segir Ragnheiður.
„Landamæri Svíþjóðar eru skammt
undan og fyrir norðan kemur veröld
Rússlands upp að Noregi,“ segir hún
og kveðst þegar vera komin með
íbúð á staðnum. „Það veitir manni
ákveðna festu og þótt ég verði mikið
á flakki, þá er nauðsynlegt að hafa
góðan samastað. Ég kem líka til með
að dvelja í Reykjavík og vinna þaðan
og geri svo ráð fyrir að maðurinn
minn, Bjarni Jónsson leikskáld,
geti unnið að einhverjum af sínum
verkefnum í Harstad. Honum hefur
allavega litist vel á þessi plön hingað
til!“
Ragnheiður er ekki alveg ókunn
starfsemi Listahátíðarinnar í Norð-
ur-Noregi; hún hefur heimsótt hana
á undanförnum árum með íslenskt
listafólk, þar á meðal Íslenska dans-
flokkinn sem sýndi FÓRN á dagskrá
hátíðarinnar 2017, í tengslum við
alþjóðlega ráðstefnu um menn-
ingu á norðurslóðum. Þess utan
hefur Ragnheiður beinlínis komið
að undirbúningi og skipulagningu
verkefna sem tilheyra sviðslista-
hluta Festspillene. „Ég var fengin til
að sjá um alþjóðlegan hluta sviðs-
listanna vegna hátíðarinnar 2019,“
upplýsir hún. „Það var reyndar
áður en farið var að hreyfa við því
að ég tæki mögulega við stjórn
þessa apparats. Mér finnst gaman
að geta þess að á meðal erlendra
sviðsverka 2019 eru tvö íslensk
verk; Hlustunarpartí eftir Ásrúnu
Magnúsdóttur sem hún frumsýndi
á Spectacular, sviðslistahátíð Lókal
og RDF í Reykjavík 2017 og Horfin
heimili eftir Kviss búmm bang. Það
verk var upphaflega útvarpsverk og
framleitt af RÚV en þróaðist síðar
yfir í sviðsverk sem var líka á dag-
skrá Spectacular 2017.“
Spurð hvort hún kunni norsku
svarar Ragnheiður því til að hún lesi
og skilji málið en þurfi að temja sér
að tala það. „Norðmenn hafa reynd-
ar gaman af að tala ensku við mann,
en mér finnst liggja beinna við að
reyna mig við norskuna í samtölum
heldur en að grípa til ensku. Annars
hef ég ekki miklar áhyggjur. Ég veit
að þetta er krefjandi starf og staðan
er hátt skrifuð í norsku lista- og
menningarlífi. En ég hef gaman af
að koma sjálfri mér á óvart. Ég hef
aldrei litið fram á veginn og hugsað
með mér: ég ætla að gera þetta og
svo fer ég og geri þetta og ... ég hef
frekar fylgt innsæinu í hvert sinn.
Það hefur reynst mér farsælt hingað
til.“
Ragnheiður horfir því bjartsýn
fram á veginn. „Ég er þakklát fyrir
þau tækifæri sem mér hafa gefist
hér heima, allt frá því ég flutti heim
frá Bandaríkjunum árið 2000 til
þess að taka við sem fyrsti forseti
nýstofnaðrar sviðslistadeildar LHÍ,“
segir hún. „Ég er jafnframt spennt að
taka við nýju starfi í nýju landi. Auð-
vitað er Noregur stærra samfélag en
Ísland og Norðmenn eru kunnir af
því að styðja vel við listir og menn-
ingu. Það er eitthvað sem við Íslend-
ingar mættum enn betur huga að,
enda segi ég oft að listir eigi alveg
eins heima í heilbrigðis- og vel-
ferðarráðuneyti eins og í mennta-
og menningarráðuneyti; þær hafa
heilandi áhrif á mannfólkið.“
ÉG HEF ALLAN
HEIMINN UNDIR OG
FJÁRMAGN TIL AÐ ÞRÓA NÝ OG
SPENNANDI VERKEFNI Á
ALÞJÓÐAVÍSU, SEM ER AUÐ-
VITAÐ SKEMMTILEGT OG MIKIL
ÁSKORUN
ÍBÚAR Í NORÐUR-NOR-
EGI ERU FJÖLBREYTT-
UR HÓPUR OG ÞEIR ERU STOLTIR
AF SINNI HÁTÍÐ ENDA GÓÐU
VANIR.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
RESPECT
Nemendur MÍT flytja lög
sálar gyðjunnar Aretha Franklin
MENNTASKÓLI Í TÓNLIST
KYNNIR
Föstudagur 1. febrúar kl. 20:00
Sunnudagur 3. febrúar kl. 20:00
Tvær
ævintýraóperur
Laugardagur 2. febrúar kl. 14:00
Sunnudagur 3. febrúar kl. 14:00
Mánudagur 4. febrúar kl. 20:00
Gilitrutt og Ár og öld
Menntaskóli í tónlist og leikfélagið
Hugleikur frumsýna tvær íslenskar óperur
byggðar á þekktum ævintýrum
Hátíðarsalur FÍH
Rauðagerði 27
Iðnó
Vonarstræti 3
3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-6
1
D
C
2
2
3
1
-6
0
A
0
2
2
3
1
-5
F
6
4
2
2
3
1
-5
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K