Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 14
Ungt fólk í dag er
líka líklegra til að
vera kvíðið og þunglynt og
það getur nánast gert út af
við kynlífið að upplifa slíkar
tilfinningar.
Sigríður Dögg Arnar-
dóttir kynlífsfræð-
ingur.
TILVERAN
Ný j u s t u g ö g n virðast benda til þess að ungt fólki stundi minna kyn-líf nú en áður. Hvað veldur er mögulega
að fólk hafi minni félagsfærni eða
samskiptafærni á þessari gervi-
hnattaöld. Jafnvel er ein af ástæðun-
um einnig sú að fólki standi meira
úrval til boða í gegnum samfélags-
miðla og að þetta sé jafnvel form af
valkvíða, því að fólk ætli sér að ná
því besta sem í boði er og mögu-
leiki er á því að alltaf geti eitthvað
betra staðið til boða. En það er víst
engin ein ástæða til að útskýra þessa
breyttu kynhegðun ungs fólks. Þetta
segir Sigríður Dögg Arnardóttir,
betur þekkt sem Sigga Dögg kyn-
fræðingur.
„Kannski gerir unga fólkið meiri
kröfur um fullnægjandi kynlíf og
sættir sig því ekki við hvað sem
er. Það er svo margt sem kemur til
greina því tölfræðin er nokkuð ný og
fólk áttar sig ekki alveg á því af
hverju þetta stafar því ástæð-
urnar eru svo margar. Það
má líka skoða hvernig
ungt fólk skilgreinir
kynlíf, kannski hefur
skilgreiningin breyst
og tölurnar eru að end-
urspegla það frekar en
minni áhuga á kynlífi,“
segir Sigga Dögg.
„En þetta spilar allt
saman, búseta, sam-
bandsform, kynsjúkdóm-
ar, menntun, rafræn pressa
og samanburður. Ungt fólk
í dag er líka líklegra til að
vera kvíðið og þunglynt og
það getur nánast gert út
af við kynlífið að upplifa
slíkar tilfinningar. Þannig
að þetta er flókin flétta
sem þarf örugglega að
skoða nokkuð ein-
staklingsmiðað.“
Algengara er
orðið að fólk sé
í óhefðbundnari
s a m b ö n d u m
líkt og fjarsam-
böndum eða í
sambandi en samt
ekki í sambúð og fólk
býr lengur í foreldra-
húsum meðal annars
vegna fasteigna -
verðs og aukinnar
m e n n t u n a r .
Fjöldi tilfella
af klamydíu
á Íslandi er
einna hæstur
í heimi og
er ekki ljóst
hvers vegna
það er en á
síðasta ári
greindum við
um 1.600 ein-
staklinga sem
er of há tala.
Teitur Guðmundsson
læknir
Margar ástæður fyrir
minnkandi kynlífi
n Ég er í opnu
sambandi
n Ég hef hugleitt
opið samband
n Nei
Sigga Dögg segir að skilgreiningin á
bak við sambönd hafi því ef til vill
breyst.
Aðspurð hvort þetta sé
áhyggjuefni ef litið er til
lækkandi fæðingartíðni
eða fagnaðarefni ef horft
er til kynsjúkdóma segir
hún það óljóst. „Það fer
í raun bara eftir því á
hvað er horft. Það er
ekki minna um kyn-
sjúkdómasmit heldur
virðist það vera upp á
við svo þetta er ekki að
skila sér þar og þegar
kemur að barneignum
þá eru aðrir hlutir uppi
á teningnum eins og að
konur í dag verða ekki að
eignast börn heldur mega
kjósa að vera barnlausar. Það
er frekar nýlegt að samfélagið
opni fyrir slíkar hugmyndir.“
Með öllum þeim tækniframförum
sem hafa orðið til og tilkomu sam-
félagsmiðla, hvernig sýnir fólk hvert
öðru áhuga?
„Samskiptin byrja yfirleitt raf-
rænt eða þau geta byrjað á því að
rekast á manneskju en fyrsta skref
er þá að fletta viðkomandi upp,
eða finna á Tinder. Svo er spjallað
aðeins þar og svo færir fólk sig yfir
á Instagram og fylgist með story hjá
hvort öðru þar og líkar við myndir.
Svo fer það jafnvel á stefnumót
í raunveruleikanum, og ef það
gengur vel þá mögulega fer fólk á
Messenger á Facebook og heldur
áfram í rafrænum samskiptum
þangað til það kannski hittist aftur
en rafrænt virðist Facebook vera oft
seinasta vígið,“ segir Sigga Dögg. „En
það virðist ekki vera meira um
framhjáhöld þrátt fyrir tilkomu
samfélagsmiðla. Þessar tölur
hafa haldist nokkuð stöðugar
en skilgreiningin á framhjá-
haldi og sambandsformum
er að breytast svo kannski
þurfum við að fara að
endurskilgreina okkur til
að skilja um hvað málið
raunverulega snýst.“
Ungt fólk í dag vill halda
möguleikum sínum
opnum þegar kemur
að makavali og vill
ná í það besta
sem makamat-
seðillinn hefur
upp á að bjóða.
Kröfur um gott
kynlíf eru meiri
í dag en áður og
svo virðist vera
að fólk sætti sig
ekki við hvað
sem er.
Ert þú í eða hefur
þú hugleitt opið
samband?
Könnun sem Sigga Dögg lagði
fyrir fylgjendur sína á dögunum.
137228
39Þetta er býsna erfið spurning og verður að segjast að mat á slíku þarf að miklu leyti að vera einstaklingsbundið. Marg-ir velta fyrir sér praktík, aðrir horfa til sjúkdóma og að sjálfsögðu horfa velflestir til þess að það sé gert með
samþykki beggja aðila og á jafnræðisgrundvelli. Þá
bendir nýleg þróun til þess að sambönd séu opnari
en áður. Þá hlýtur nálgun fólks, þá sérstaklega
yngri kynslóðar, að samskiptum í gegnum sam-
félagsmiðla og snjallforrit að skipta töluvert miklu
máli í makavali og hugsanlega kynlífshegðun.
Við vitum að á Íslandi byrja unglingar tiltölu-
lega snemma að stunda kynlíf í samanburði við
unglinga í öðrum löndum, eða í kringum 15 ára
aldur. Þá er það áhyggjuefni að kostnaður við
kaup á getnaðarvörn eins og smokknum hindri
unglingana í því að nota slíkar sjálfsagðar varnir.
Þeir eru feimnir við að biðja um pening fyrir slíku
hjá foreldrum sínum og má ljóst vera að of oft eru
stunduð kynmök án varna sökum þessa. Ef ból-
félagar eru margir eða tíð skipti um slíka er aðgengi
að getnaðarvörnum sérstakt áhyggjuefni. Það er
ekkert launungarmál að tíðni kynsjúkdóma er
hæst í aldurshópnum 15-25 ára og hefur lengi verið
svo, alvarlegir sjúkdómar leynast þarna á meðal
og geta haft veruleg áhrif á framtíð ungs fólks. Þar
nægir að nefna mögulega ófrjósemi hjá konum af
völdum klamydíusýkingar, en alvarlegri sjúkdómar
eins og HIV og lifrarbólga smitast einnig við kynlíf
og geta verið óafturkræfir. Nú til dags sjáum við
líka á heimsvísu aukna tíðni lekanda og mun meira
af ónæmum sýklum en áður.
Fjöldi tilfella af klamydíu á Íslandi er einna
hæstur í heimi og er ekki ljóst hvers vegna það er
en á síðasta ári greindum við um 1.600 einstaklinga
sem er of há tala. Greiningar annarra kynsjúkdóma
hafa verið í fréttum undanfarið samanber að ofan
og er það áhyggjuefni sömuleiðis. Æskilegt er að
allir sem skipta um maka láti skima fyrir þeim og
auðvitað ef koma upp einkenni eða grunur.
Þetta eru svo sem ekki nýjar fréttir en það sem
kannski stingur mann mest er að samskipti milli
foreldra og unglinga virðast ekki nægjanlega góð,
upplýst umræða á heimilinu virðist vera undan-
tekning frekar en regla og þurfum við að finna leið
til að breyta því. Í því samfélagi sem við lifum í í
dag virðast enn þrífast verulegar ranghugmyndir
um nær alla þá þætti sem snúa að kynlífi, kyn-
heilbrigði og mörkum ofbeldis, þrátt fyrir gnótt
upplýsingaflæðis á veraldarvefnum og í inter-
netvæddum símum ungmenna nú til dags. Það
er því ekki hægt að bera við skorti á möguleikum
til að fræðast en mér sem lækni finnst stundum
að fræðslan og umræðan snúi fyrst og fremst að
ótímabærri þungun og að okkur beri að koma í veg
fyrir slíkt. Ósjaldan kemur móðir með dóttur sína
til að biðja um pilluna, en hún ver einstaklinginn
nákvæmlega ekkert gegn kynsjúkdómi.
Nálgunin þarf því í fyrsta lagi að vera að bæta
aðgengi að getnaðarvörnum eins og smokkum og
skoða þarf kynfræðslu í skóla og endurmeta hana
í samvinnu við nemendur og foreldra. Það ætti
að skylda foreldri til að taka svipuð námskeið,
enda ekkert sem segir til um hæfni foreldra til
að miðla upplýsingum í raun, hvað þá heldur að
þeirra eigin reynsla sé endilega til þess fallin að
geta veitt leiðbeiningu. Við erum því líklega öll
sammála að kynlíf er eitthvað stórkostlegt og
ef vel tekst til eykur það sjálfstraust, vellíðan og
almenna hamingju þeirra sem þess njóta. Því ætti
að hvetja til þess en að sama skapi uppfræða um
hætturnar.
Heilbrigt kynlíf hlýtur að verða mottó okkar
allra!
Heilbrigt
kynlíf?
3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-7
0
A
C
2
2
3
1
-6
F
7
0
2
2
3
1
-6
E
3
4
2
2
3
1
-6
C
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K