Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 35

Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 35
Hjá Verði starfar öflugur hópur fólks sem hefur fjöl-breyttan bakgrunn og margs konar menntun, reynslu og hæfni. Við leggjum mikla áherslu á vinnuumhverfið og menninguna og kappkostum að stuðla að almennri vellíðan, starfsánægju og góðum starfsanda,“ segir Harpa sem hefur unnið á trygginga- markaði í 18 ár. Hún hóf störf hjá Verði 2007 þegar félagið var í mikilli endurmótun með aðeins 25 starfsmenn og 2011 tók hún við hlutverki mannauðsstjóra. Þá voru starfsmenn orðnir um 50 og félag- ið í mikilli sókn. Síðan þá hefur Vörður vaxið mjög að umfangi og er fjöldi starfsmanna í dag um 90 talsins. „Félagið hefur gengið í gegnum eigendaskipti, sameiningu og mikla stækkun, sem allt hefur gert miklar kröfur til starfsfólksins undanfarin ár,“ segir Harpa. Jafnréttismál í hávegum höfð Árið 2014 var Vörður fyrsta fjár- málafyrirtækið á Íslandi sem fékk jafnlaunavottun. Félagið setti sér um leið skýra stefnu, markmið og aðgerðaáætlun til að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af báðum kynjum. „Eitt af fyrstu verkefnum mínum sem mann- auðsstjóri var að huga að leiðum til að gæta sanngirni við vinnslu kjaramála starfsmanna. Jafnlauna- staðall var eitt af þeim verkfærum sem ég leit til og hóf innleiðingu á. Slík innleiðing er umfangsmikið mannauðsverkefni og í ferlinu upplifði ég hversu mikið gæða- og sanngirnistól staðallinn er. Skyldur hans leiða til þess að allar breyt- ingar og ákvarðanir eru teknar, ekki einvörðungu með jafnrétti kynja að leiðarljósi, heldur sann- girni í öllum ákvörðunum. Staðall- inn er ekki fullkominn en hann er það besta sem völ er á í dag“ segir Harpa. Hún segir að hjá Verði hafi löngum ríkt kynjajafnrétti og sé jafnrétti greypt í menningu félags- ins. „Stjórn og framkvæmdastjórn er að meirihluta skipuð konum og hlutfall millistjórnenda er nærri því að vera jafnt. Reynsla okkar er að fjölbreytt samsetning mann- auðs auki víðsýni, kalli fram ólík sjónarhorn og fjölbreytta nálgun að verkefnum svo ekki sé talað um almenna gleði og ánægju. Nútímaleg vinnustaðamenning Vörður vann á síðasta ári að mótun nýrrar stefnu. Í henni er horft til ákveðinna lykilþátta, m.a. mannauðs og menningar. „Við vinnum að því að starfsumhverfi og menning Varðar sé nútíma- leg með áherslu á framsækna hugsun, sveigjanleika, árangur og starfsánægju. Í nútíma samfélagi, með þeim hraða og kröfum sem við okkur blasa, er mikilvægara en áður að vera sveigjanleg og aðlögunarfær. Við verðum að hlúa vel að mannauðnum og skapa rétta menningu sem styður við starfsemina og reksturinn,“ segir Harpa og bætir við að hraðar og viðvarandi breytingar, sem og sveigjanleiki, sé það umhverfi sem fyrirtæki starfi við í dag og því reyni mikið á mannauð og stjórnendur. „Það er ljóst að þróun starfa er mikil. Sum störf þynnast út á meðan ný verða til. Fram- tíðarkröfur um færni, hæfni og þekkingu eru aðrar og breyttar og verðum við að hraða umbreytingu á hæfniþáttum þannig að ekki myndist færnibil, sem er munur milli núverandi færni og þeirrar færni sem nauðsynleg er til fram- tíðar.“ Verkefnamiðuð vinnuaðstaða Eitt af verkefnum nýrrar stefnu er ánægja viðskiptavina og starfs- manna en það er þekkt að þetta tvennt fer vel saman og eitt leiðir af öðru. Á síðasta ári fór Vörður í breytingar á þjónustu- hæð sinni í Borgartúni með það að leiðarljósi að bæta þjónustuna og vinnuaðstöðuna. Harpa segir að eftir töluverða umhugsun hafi verið ákveðið að fara í svokallað verkefnamiðaða vinnuaðstöðu. „Hugmyndafræðin gengur út á að bjóða starfsfólki þann mögu- leika að velja sér vinnuaðstöðu eftir verkefnum hverju sinni. Við vildum styðja undir fjölbreytta vinnu aðstöðu til að mæta þörfum nútíma vinnulags og auka mögu- leika til framtíðar. Við höfum þá trú að slík aðstaða auki samvinnu, skilning, skilvirkni og leiði til ánægju starfsmanna. Nýleg vinnu- staðagreining á ánægju starfsfólks með starfsstöðvar kom vel út og þó svo að breytingarnar séu ekki búnar sjáum við strax árangur og erum sátt með að hafa valið þessa leið,“ segir Harpa. „Mikilvægt að okkur líði vel í vinnunni“ Vörður hefur það að leiðarljósi að stuðla að umbótamenningu, en hvað er það? „Það er menning sem styður við skapandi hugsun, árangur, hugmyndaauðgi, fram- þróun og breytingar. En það er líka mikilvægt að okkur líði vel í vinnunni, það sé gaman, and- rúmsloftið sé létt og skemmtilegt og starfsfólk upplifi mikilvægi sinna starfa og fái að takast á við krefjandi verkefni. Við höfum verið lánsöm að þannig menning hefur verið hjá Verði og þann- ig stemningu viljum við hafa,“ segir Harpa. Til að greina líðan og starfsánægju og fá fram skoðanir starfsfólks á ýmsum þáttum innan félagsins eru gerðar mánaðarlegar vinnustaðagreiningar. Með þeim næst svokölluð „Varðar vísitala“ sem gefur vísbendingu um helgun starfsfólks og starfsánægju. „Slíkar vinnustaðagreiningar gefa okkur upplýsingar um stöðu mála í hverjum mánuði og tækifæri til að grípa hratt inn í ef eitthvað er ekki eins og við viljum hafa það, sem og að gleðjast þegar vel gengur.“ Heilsa og vellíðan starfsfólks dýrmæt Heilsuvitund er eitt af verkefnum stefnumótunarinnar en Vörður leggur áherslu á að hlúa vel að heilsu og vellíðan mannauðs. Starfandi er heilsunefnd og vel- ferðarnefnd sem eru skipaðar starfsfólki og fagaðilum og koma þær að ýmsum heilsutengdum við- burðum. „Við höfum t.d. verið með fræðslu og fyrirlestra um hreysti, heilsu og vellíðan, boðið upp á nudd, næringarráðgjöf, núvitund- arnámskeið, hjólanámskeið, jóga í vinnutíma, 30 daga áskoranir af ýmsu tagi, heilsufarsmælingar og fleira. Við höfum gert samning við fagaðila sem við köllum „Heill heilsu“ en hann felur í sér að gæta heilsutengdra hagsmuna starfs- manna, vinna með heilsu okkar og vellíðan og grípa strax inn ef eitthvað óvænt eða alvarlegt kemur upp,“ segir Harpa og nefnir að lokum að þessa dagana sé verið að vinna að áhættumati starfa þar sem horft sé til félagslegrar, andlegrar og líkamlegrar heilsu og vinnuumhverfisins. Matið mun gefa fleiri tækifæri til enn frekari umbóta í vinnuumhverfi Varðar enda félagið í stöðugri þróun og með mikinn metnað fyrir að skapa framúrskarandi vinnustað sem skilar sér í úrvalsþjónustu fyrir við- skiptavini félagsins. Áhersla á mannauð og menningu hjá Verði Harpa Víðisdóttir er mannauðsstjóri Varðar trygginga hf. og situr í stjórn Mannauðs, félags mann- auðsfólks á Íslandi. Verkefni hennar hjá Verði þessa dagana eru fyrst og fremst að styðja við mannauð og stjórnendur með mannauðsstjórnun og framfylgja metnaðarfullri stefnu Varðar. Harpa Víðisdóttir, mannauðstjór Varðar situr einnig í stjórn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Í nútíma samfélagi, með þeim hraða og kröfum sem við okkur blasa, er mikilvægara en áður að vera sveigjanleg og aðlögunarfær. KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 1 -B F A C 2 2 3 1 -B E 7 0 2 2 3 1 -B D 3 4 2 2 3 1 -B B F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.