Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 36

Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 36
reglulega fræðslu frá læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fag- fólki. Starfsemin í Ljósinu er mun víðfeðmari en hjá mörgum sam- bærilegum stofnunum erlendis. Aðspurð segir Erna það líklega skýrast af iðjuþjálfunarnálgun hennar. „Útgangspunktur iðju- þjálfans er að efla daglega iðju fólks. Við höfum öll mörg hlutverk í lífinu en þegar við veikjumst detta þau sum hver út um tíma og þá er mikilvægt að byggja upp nýja rútínu.“ Við komuna í Ljósið fær fólk viðtal við iðjuþjálfa og sjúkra- þjálfara og er gerð einstaklings- miðuð endurhæfingaráætlun sem snýr að andlegum, félagslegum og líkamlegum þáttum með það að markmiði að byggja upp styrk og þol. Boðið er upp á frekari viðtöl við fagfólk og fjölbreytt nám- skeið og fer val á þeim eftir því hvar fólk er statt í ferlinu; hvort það er nýgreint, langveikt eða á leið til vinnu svo dæmi sé nefnt en auk þess er ýmislegt í boði fyrir aðstandendur. Mikið er um ýmiss konar handverksgerð og rík áhersla á hina ýmsu hreyfi- og útivistarhópa. Þá er mikið lagt upp úr heimilislegum anda og er hægt að kaupa endurnærandi grænmetismáltíð í hádeginu gegn vægu gjaldi. Eins er mikil áhersla lögð á að starfsfólk sé natið og hafi samhug, skilning og kærleika að leiðarljósi. Aðspurð segist Erna leitast við að fólk þurfi sem minnst að greiða fyrir þjónustuna. „Það er dýrt að veikjast og fólk er misjafnlega statt. Þá er hérna mikið af ungu fjölskyldufólki svo við reynum að lágmarka kostnað eins og kostur er.“ Starfsemin er að hluta til rekin með framlögum frá ríkinu en að öðru leyti reiðir Ljósið sig á söfnunarfé. „Árið 2015 var ráðist í stækkun á húsinu sem er nú 620 fermetrar og var það gert með stuðningi Oddfellow reglunnar. Næsta skref er að safna fyrir nýju húsnæði á lóð sem við eigum hérna til hliðar sem myndi meðal annars bæta aðstöðu til sjúkra- þjálfunar og hreyfingar og þurfum við landsmenn í lið með okkur til þess,“ segir Erna og bendir á að hægt er að gerast ljósavinur á ljosid.is og nálgast allar nánari upplýsingar. Þórey S. Þórðar- dóttir er fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. MYND/EYÞÓR Lífeyrissjóðirnir eru öflugir og Íslendingar komnir langt í að byggja upp kerfi sem byggist á sjóðsöfnun. Við erum komin á fjórtánda starfsár og hefur það fyrir löngu sýnt sig að þörfin er gríðarleg. Hingað sækja um 400 manns þjónustu í hverjum mánuði og stendur dagskráin frá hálf níu á morgnana til tíu á kvöldin. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Vera Einarsdóttir vera@frettabladid.is Við minnumst þess í maí-mánuði að liðin verða 50 ár frá því forystumenn heildarsamtaka atvinnurekenda og launafólks undirrituðu kjara- samninga sem mörkuðu tímamót vegna ákvæðis um aðild launa- fólks á almennum vinnumarkaði að lífeyrissjóðum. Í framhaldinu var skylduaðild alls launafólks að lífeyrissjóðum lögfest,“ segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. „Tækifærið verður notað til að horfa um öxl og heiðra frumkvöðl- ana, en ekki síður til að minna landsmenn á hverju lífeyrissjóð- irnir hafa skilað landsmönnum og samfélaginu.“ Ekki enn náð fullum þroska Lífeyrissjóðakerfið er skilgetin afurð kjarasamninga aðila vinnu- markaðarins og hafa heildarsam- tök atvinnurekenda og launafólks verið bakland stórs hluta þess alla tíð. „Áður voru nokkrir lífeyrissjóðir starfandi hérlendis, einkum fyrir opinbera starfsmenn. Sérstaklega er áhugavert að líta til þess að samið var um aðild að lífeyrissjóð- um á tímum þegar djúp og alvarleg efnahagskreppa ríkti á Íslandi með tilheyrandi atvinnuleysi og land- flótta,“ segir Þórey. Lífeyriskerfið hafi þróast og dafnað vel á hálfri öld en þó ekki enn náð fullum þroska. „Núverandi kerfi varð ekki virkt að öllu leyti fyrr en um 1990 og ef miðað er við 40 ára starfsævi hafa þeir, sem fóru á vinnumarkað þá, ekki safnað fullum lífeyrisrétt- indum fyrr en um 2030. Róm er því ekki byggð á einum degi í þessum efnum frekar en öðrum!“ segir Þórey. Jafnframt skal sagt að margir sem nú eru á lífeyri njóta ekki fullra réttinda og segir Þórey ýmsar ástæður fyrir því. „Þannig var iðgjaldið upphaf- lega lægra en nú er og aðeins greitt af dagvinnulaunum. Þá var líka talsverð brotalöm á innheimtu iðgjalda og síðast en ekki síst rýrnaði inneign í lífeyrissjóðum hratt eða bókstaflega brann á verð- bólgubáli fyrir daga verðtrygging- ar. Yngra fólk nú til dags ætti hins vegar að geta treyst því að óbreyttu að eiga viðunandi lífeyrisréttindi við starfslok.“ Ríkulagt framlag kvenna Þórey vill nota tækifærið og benda á þætti sem varða konur sérstak- lega. „Réttindaávinnsla í lífeyrissjóða- kerfinu er háð tekjum og launa- munur kynja birtist í áunnum Hálfrar aldar tímamót Fimmtíu ár eru liðin síðan samið var um skylduaðild íslensks launafólks að lífeyrissjóðum. Þórey S. Þórðardóttir segir enn halla á réttindaávinnslu kvenna en að kynjamunurinn fari minnkandi. lífeyrisréttindum. Konur hafa jafnan verið minna á vinnumark- aði en karlar og á þær hallar því í réttindaávinnslu. Sá kynjamunur fer samt minnkandi með aukinni atvinnuþátttöku kvenna og baráttu fyrir launajafnrétti. Engu að síður er algengara hjá konum en körlum að það myndist „eyður“ í réttinda- ávinnsluna sem rekja má til þess að konur taka sér oft launalaust leyfi frá vinnu eftir barneignir eða til að annast aldraða foreldra. Þannig virðist það vera ríkt í eðli kvenna að leggja hart að sér við umönn- unarstörf innan fjölskyldna sinna, sem er vissulega ríkulegt framlag til heilbrigðs samfélags,“ segir Þórey. Hjón og sambúðarfólk geti jafnað réttindi sín á milli í lífeyris- sjóðakerfinu með samningum. „Þar sem tekjumunur er umtals- verður ættu hjón og sambúðarfólk tvímælalaust að huga að því hvort ástæða sé til að jafna stöðuna. Þá er mikilvægt að byrja með því að leita ráða hjá viðkomandi lífeyris- sjóðum,“ upplýsir Þórey. „Lífeyrissjóðirnir eru öflugir og Íslendingar komnir langt í að byggja upp kerfi sem byggist á sjóðsöfnun. Við munum á tíma- mótaárinu hafa frumkvæði að því að ræða gangverk lífeyrissjóða- kerfisins, kosti þess og galla, styrk þess og veikleika.“ Nánari upplýsingar á lifeyrismal.is. Ég fór að vinna við endurhæf-ingu krabbameinsgreindra á Landspítalanum árið 2002. Haustið 2005 ákvað ég að stofna endurhæfingarmiðstöð fyrir utan spítalaumhverfið og fékk til liðs við mig fleira fólk. Við byrjuðum í gamla safnaðarheimilinu í kjallara Neskirkju með tvær hendur tómar og unnum sjálfboðavinnu fyrst um sinn. Í janúar 2006 var Ljósið gert að sjálfseignarstofnun og 1. októ- ber 2007 fluttum við á Langholts- veginn þar sem starfsemin er til húsa í dag og er húsnæðið í okkar eigu,“ segir Erna sem er iðjuþjálfi en var rétt í þessu að ljúka meist- aragráðu í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst. „Við erum komin á fjórtánda starfsár og hefur það fyrir löngu sýnt sig að þörfin er gríðarleg. Hingað sækja um 400 manns þjónustu í hverjum mánuði og stendur dagskráin frá hálf níu á morgnana til tíu á kvöldin,“ upp- lýsir Erna. Ljósið er eina heildræna endur- hæfingarmiðstöðin fyrir krabba- meinsgreinda á Íslandi en þar er boðið upp á ýmiss konar endur- hæfingu og stuðning fyrir alla fjölskylduna. Starfsfólkið tilheyrir öllum helstu fagstéttum sem að endurhæfingu og stuðningi koma. Má þar nefna iðjuþjálfa, sjúkra- þjálfara, íþróttafræðinga, sálfræð- inga, heilsunuddara, næringarráð- gjafa, markþjálfa, snyrtifræðing og jógakennara en auk þess fær Ljósið Heildræn endurhæfing Iðjuþjálfinn Erna Magnúsdóttir stofnaði Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra, árið 2005. Sambærileg starfsemi er vandfundin. Starfsemin í Ljósinu er mun víðfeðmari en hjá mörgum sambærilegum stofn- unum erlendis og skýrist það að miklu leyti af iðjuþjálfunarnálgun Ernu. 6 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 1 -C 4 9 C 2 2 3 1 -C 3 6 0 2 2 3 1 -C 2 2 4 2 2 3 1 -C 0 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.