Fréttablaðið - 31.01.2019, Page 37

Fréttablaðið - 31.01.2019, Page 37
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Áhugi Íslendinga á að eignast heimili í Spánarsólinni hefur aukist verulega undanfarin misseri og kaupendahópurinn hefur breyst nokkuð frá því sem var áður,“ segir Aðalheiður Karls­ dóttir, löggiltur fasteignasali og framkvæmdastjóri Spánareigna, íslenskrar fasteignasölu sem um árabil hefur sérhæft sig í sölu fasteigna á Spáni til Íslendinga. „Við erum með skrifstofu á Íslandi og fólki finnst þægilegt að byrja ferlið á því að koma til okkar í kaffi og persónulegt spjall, fá upplýsingar um hvað er í boði og hvernig kaup­ ferlið gengur fyrir sig, áður en það bókar skoðunarferð til Spánar.“ Spánareignir hefur komið að sölu fasteigna á Spáni frá árinu 2001 og því hafa starfsmenn yfirgrips­ mikla þekkingu og góð sambönd, sem nýtast viðskiptavinum vel, bætir hún við. „Sjálf hef ég átt mitt annað heimili á Spáni í tæpa tvo áratugi og þekki því af eigin reynslu dásemdirnar við að njóta lífsins þar í góða veðrinu með fjölskyldu og vinum.“ Þegar Spánareignir byrjuðu að selja Íslendingum eignir á Spáni var það gert nær eingöngu í samvinnu við einn byggingaraðila og gekk það vel. „Við erum ennþá í góðu samstarfi við þann aðila, en þegar kaupendahópurinn fór stækk­ andi, voru meiri kröfur gerðar frá viðskiptavinum okkar um aukna fjölbreytni í staðsetningu, verði, stærð og útliti fasteignanna. Fyrir vikið fórum við að skoða fleiri byggingaraðila og seljum nú fyrir alla þá bestu á svæðinu, auk þess sem við erum líka með eldri eignir í endursölu.“ Staðsetning skiptir máli Vinsælasta staðsetningin er svæðið suður frá Alicante flugvelli, allt til Cartagena og bjóða Spánareignir upp á fjölbreytt úrval eigna á því svæði; íbúðir, raðhús og einbýlishús í ýmsum stærðum og verðflokkum. „Nú er gott framboð á beinu flugi allt árið frá Keflavík til Alicante og það kemur sér vel. Veðurfar á þessu svæði er líka einstaklega gott, að meðaltali 300 sólardagar á ári, 30 rigningardagar og 30 skýjaðir. Köldustu vetrarmánuðirnir á þessu svæði eru að meðaltali eins og góður júlímánuður á Íslandi.“ Hverfin Villamartin, Campo­ amor, Cabo Roig, La Zenia og Playa Flamenca eru vinsæl að hennar sögn enda er stutt þaðan á ótal golf­ velli, verslanir og veitingastaði og fallega strönd. „Dona Pepa og Los Alcazares eru líka vinsælir staðir og erum við með mikið af góðum eignum í ýmsum verðflokkum á þessum svæðum. Fyrir golfarana eru svo Las Colinas og La Finca vinsælir staðir. Ég held að vinsældir þessara staða megi helst rekja til beina flugsins og góða veðursins, auk þess sem ódýrt er að versla og gera vel við sig í mat og drykk.“ Fjölbreyttari viðskiptavinir Áður fyrr var það helst eldra fólk sem keypti sér fasteignir erlendis en í dag eru viðskiptavinirnir mun fjöl­ breyttari hópur. „Þar má t.d. nefna fólk á ýmsum aldri sem glímir við margvísleg heilsufarsvandamál, enda loftslagið einstaklega gott og fólk finnur fyrir aukinni vellíðan og minna stressi. Einnig færist í vöxt að fólk kaupi eignir á Spáni til að fjárfesta. Þá eru eignirnar nýttar hluta úr ári og síðan leigðar út. Sældarlíf í sólinni á Spáni Áralöng reynsla starfsmanna Spánareigna nýtist þeim viðskiptavinum vel sem vilja kaupa annað heimili í sólinni á Spáni. Kaupferlið er einfalt með aðstoð fagfólks hjá Spánareignum. Flottar íbúðir á frábærum stað í Flamenca Village. La Zenia Boulevard er vinsæl verslunarmiðstöð. 9. hola á Las Ramblas er í uppáhaldi hjá mörgum golfurum. Íbúðirnar í Dona Pepa eru sívinsælar enda afar fallegar. Vinsæl einbýlishús við Las Colinas golfvöllinn. Aðalheiður Karlsdóttir er framkvæmdastjóri Spánareigna. MYND/STEFÁN Þannig ná margir að reka þær og fjármagna að miklu leyti.“ Einnig hafa fyrirtæki, starfs­ mannafélög og orlofssjóðir í auknum mæli verið að kaupa eignir á Spáni fyrir sitt fólk. Það opnar ný tækifæri fyrir launafólk að geta eytt sumarleyfinu sínu á Spáni án þess að það kosti of mikið, segir Aðalheiður og bendir á að í því felist mikil kjarabót sem skilar ánægðara starfsfólki. Aðstoðum við ferlið Hún segir alls ekki flókið ferli að kaupa fasteign á Spáni, en þó sé mikilvægt að fá aðstoð fagfólks svo allt gangi vel upp. „Við aðstoðum við allt ferlið frá upphafi til enda. Allt frá því farið er yfir kaupóskir, staðarval og skipulag á skoðunar­ ferðum, þar til skrifað er undir kaupsamning, lyklar afhentir og afsal gefið út. Einnig tökum við þátt í kostnaði vegna skoðunarferða og endurgreiðum allt að 120.000 kr. þegar fólk kaupir eignir hjá okkur.“ Hún segir starfsmenn leggja áherslu á persónulega þjónustu fyrir hvern og einn. „Þannig erum við t.d. ekki mikið að skipuleggja hópferðir til að skoða eignir á Spáni. Þarfir og óskir viðskiptavinarins eru svo mismunandi að við viljum sinna hverjum og einum fyrir sig. Við­ skiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með þjónustuna okkar í gegnum árin, enda fáum við í dag flesta nýja viðskiptavini til okkar vegna meðmæla frá eldri viðskipta­ vinum. Það finnst okkur best.“ Nánari upplýsingar um dásemdir lífsins á Spáni má skoða á www. spanareignir.is eða með því að hafa samband við Aðalheiði gegnum adalheidur@spanareignir.is. Nú er gott framboð á beinu flugi allt árið frá Keflavík til Alic- ante og það kemur sér vel. Veðurfar á þessu svæði er líka einstaklega gott, að meðaltali 300 sólardagar á ári. KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 1 -C 4 9 C 2 2 3 1 -C 3 6 0 2 2 3 1 -C 2 2 4 2 2 3 1 -C 0 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.