Fréttablaðið - 31.01.2019, Page 48
Svo erum við líka
í erlendu samstarfi
og höldum utan styrki
til vinnustaðanáms í
Evrópu.
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Ég vann hjá Icelandair í 25 ár og gegndi þar ýmsum störfum,“ segir Þórunn sem var
stöðvarstjóri í Kaupmannahöfn og
hótelstjóri Hótels Loftleiða. Hún
stýrði uppbyggingunni á bílaleigu
Icelandair og var bæði í fraktsölu
og almennri ferðasölu „Ég held að
ég hafi bara átt eftir að taka að mér
Í ferðageiranum af hugsjón
Úrval Útsýn
er eina óháða
ferðaskirfstofan
á Íslandi. Þar
standa Þórunn
Reynisdóttir og
Kristjana Jóns-
dóttir í brúnni.
MYND/EYÞÓR
forstjórastólinn þar,“ segir hún og
hlær. Þórunn keypti síðan Avis á
Íslandi, byggði það upp og seldi
árið 2005. „Þá var kominn góður
vöxtur í félagið og ágætt að skipta
um vettvang,“ segir Þórunn sem
bauðst forstjórastarf í Bandaríkj
unum hjá einum stærsta ferða
heildsala landsins. „Þar vann ég í
sex ár með 55 þúsund ferðaskrif
stofum og um 50 flugfélögum og
öðlaðist víðtæka reynslu. Ég kom
síðan aftur heim í ýmis sérverkefni
en tók svo við forstjórastöðunni
hjá Úrval Útsýn 2015.“
Þórunn segir gaman að starfa
innan ferðageirans „Ég lít í raun á
þetta sem hugsjónastarf og hefur
þótt afskaplega gaman að taka þátt
í að byggja geirann upp. Þegar ég
byrjaði var hér eitt flugfélag, nú
eru þau fjölmörg sem fljúga til og
frá landinu sem aftur býður upp á
mun meiri möguleika en áður.
Þórunn segir ferðaskrifstofu
eins og Úrval Útsýn vissulega
standa frammi fyrir áskorunum í
stafrænum heimi þar sem margir
bóka ferðir og gististaði upp á eigin
spýtur. „Sumir halda því fram að
ferðaskrifstofur séu á undanhaldi
en við höfum sýnt fram á að svo er
ekki enda er mikið öryggi fólgið í
því að skipta við ferðaskrifstofu í
sínu heimalandi ef eitthvað kemur
upp á. Það er alltaf hægt að ná í
okkur í síma eða koma á staðinn
og á sólarstöðum erum við með
fararstjóra sem veita sólarhrings
þjónustu. Þess utan er okkar
meginhlutverk að aðstoða fólk við
að finna réttu ferðina.“
Þórunn segir mörg netfyrirtæki
ekki svara í síma og að erfitt geti
reynst að gera breytingar á flugi
og áætlun eftir á. „Þá á smáa letrið
það til að fara fram hjá fólki en
með því að fara í gegnum ferða
ráðgjafa eru minni líkur á því.“
Þórunn segir sérstaklega vont að
horfa upp á það, þegar fólk sem
ætlar í draumafríið með alla fjöl
skylduna lendir í vandræðum eftir
að hafa bókað sjálft. „Ég myndi í
það minnsta ekki þora það ef svo
mikið lægi við. Það á ekki síður við
í viðskiptaferðum.
Þórunn leggur áherslu á að Úrval
Útsýn sé eina óháða ferðaskrif
stofan á landinu, eða ekki tengd
neinu flugfélagi. „Við göngum því
óbundin að því að finna hagstæð
ustu kjörin.“ Í dag eru það konur
sem standa í brúnni en við hlið
Þórunnar starfar fjármálastjórinn
Kristjana Jónsdóttir. Aðspurð segir
Þórunn konur gjarnan veljast í
störf söluráðgjafa og millistjórn
enda hjá ferðaþjónustufyrir
tækjum hér á landi en karla verma
forstjórasætin. Þróunin hjá Úrval
Útsýn sé því ánægjuleg.
Þórunn Reynis-
dóttir, forstjóri Úr-
vals Útsýnar, hefur
starfað í ferðageir-
anum í 40 ár. Hún
segir geirann hafa
tekið stakkaskipt-
um og að gaman
sé að eiga þátt í
uppbyggingunni.
Hildur Elín
Vignir, fram-
kvæmdastjóri
IÐUNNAR, tók
við starfinu
árið 2006
þegar IÐAN var
stofnuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Það er ýmislegt að sjá og gera í Vatnagörðum.
Ég var ráðin þegar IÐAN var stofnuð árið 2006 og hefur starfið verið krefjandi en
jafnframt skemmtilegt og mjög
gefandi,“ segir Hildur Elín.
IÐAN fræðslusetur varð til við
samruna fjögurra fræðslumiðstöðva
í iðnaði og ferðaþjónustu og nokkru
síðar bættist í hópinn Fræðslumið
stöð bílgreina. Eigendur IÐUNNAR
eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn,
MATVÍS, Grafía, FIT, VM, Bílgreina
sambandið, Meistarafélag húsa
smiða og Samtök ferðaþjónust
unnar. Hlutverk IÐUNNAR er fyrst
og fremst að bæta hæfni fyrirtækja
og starfsmanna í bíl, bygginga og
málmiðngreinum, prent og miðl
unargreinum sem og matvæla og
veitingagreinum.
Símenntun er kjarnastarfsemi
IÐUNNAR og á hverri önn er
boðið upp á yfir 150 námskeið
fyrir iðnaðarmenn, segir Hildur
Elín. Þátttakendur á þessum nám
skeiðum eru vel yfir 3.000 á hverju
ári og fer fjölgandi. Auk námskeiðs
halds höfum við umsjón með
ýmsum hæfnisvottunum. Húsnæði
IÐUNNAR er sérhannað til kennslu
í iðngreinum og við erum vel
tækjum búin. Kennarar IÐUNNAR
eru sérfræðingar hver á sínu sviði og
starfa í iðnaði.
„Við rekum einnig umfangsmikla
þjónustu við nemendur í iðn og
verknámi. Við höfum umsjón með
gerð námssamninga og sveinsprófa
í um 30 löggiltum iðngreinum og
árlega útskrifast yfir 500 nemendur
með sveinspróf í okkar greinum.
Við bjóðum einnig upp á raun
færnimat og höfum gert það frá
árinu 2007. Með því hafa margir séð
Gefandi að vakna að morgni
Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR, segist vakna með bros á vör yfir verkefnum dags-
ins. Starf hennar er víðfeðmt enda sinnir hún meðal annars símenntun og nemum í iðngreinum.
tækifæri í að láta meta reynslu sína
og þekkingu til eininga og klárað
sveinsprófið á sínum starfsvettvangi.
Nærri 200 einstaklingar nýttu sér
þennan valkost á síðasta starfsári
og tóku náms og starfsráðgjafar
IÐUNNAR yfir 2.000 viðtöl á tíma
bilinu. Nýlega hófum við að bjóða
upp á raunfærnimat fyrir erlenda
starfsmenn.
Svo erum við líka í erlendu sam
starfi og höldum utan um styrki til
vinnustaðanáms í Evrópu. Þegar
iðnnemar vilja taka hluta af sínu
vinnustaðanámi erlendis þá geta
þeir sótt um styrki til okkar. Við
erum með öflugt tengslanet í Evr
ópu og auk þess tökum við á móti
iðnnemum sem koma til Íslands í
vinnustaðanám.“
IÐAN fræðslusetur leggur sitt af
mörkum til að efla fræðslu innan
íslenskra iðnfyrirtækja. „Við veitum
fræðslustyrki, bjóðum upp á þarfa
greiningu og leggjum til ýmsar
lausnir í fræðslumálum. „Við leggj
um okkur fram við að vera í góðum
tengslum við okkar aðildarfélaga um
landið allt með reglulegum heim
sóknum þar sem við kynnum okkur
starfsemi fyrirtækjanna og kynnum
þeim þjónustuframboð IÐUNNAR.
Það er því víða komið við í starf
semi Hildar Elínar og IÐUNNAR
og kannski ekki nema von að hún
vakni á hverjum degi með bros á vör
í jafn gefandi starfi. „Meginstarfsemi
okkar er hér í Vatnagörðum 20 þar
sem samhentur hópur 24 starfs
manna starfar að því að auka veg og
virðingu iðnaðar í landinu.
Við höldum líka námskeið um allt
land því okkar félagsmenn eru víða.
Og það er alltaf nóg að gera. Þessa
önnina vinnum við t.a.m. að því að
byggja upp stafrænan skóla fyrir fjar
nám IÐUNNAR. Ég hef staðið hér í
13 ár og finnst við vera rétt að byrja,“
segir Hildur Elín að lokum.
18 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-C
9
8
C
2
2
3
1
-C
8
5
0
2
2
3
1
-C
7
1
4
2
2
3
1
-C
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K