Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 49

Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 49
Ég tek það hlutverk alvarlega að sýna fram á að ungar konur geti tekið frumkvæði, sýnt ábyrgð og skarað fram úr á öllum sviðum til jafns við aðra – og oft jafnvel betur Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Silja Mist tekur á móti okkur í höfuðstöðvum Nóa Síríusar á Hesthálsi í Reykjavík þar sem skrifstofa fyrirtækisins er hýst í opnu rými framan við sælgætis- verksmiðjuna sjálfa. „Það er frábært að hafa svona mikla nálægð við framleiðsluferlið,“ segir Silja. „Við leggjum mikla vinnu í stöðuga vöruþróun og það veitir innblástur að vera alltaf í beinu sambandi við framleiðsluna hinum megin við vegginn.“ Silja Mist útskrifaðist úr við- skiptafræði við Háskólann í Reykjavík 2016 og hóf störf sem vörumerkjastjóri hjá Nóa Síríusi sama ár. Það vakti nokkra athygli þegar hún var ráðin markaðsstjóri þessa gamalgróna fjölskyldufyrir- tækis rúmu ári síðar, þá aðeins 26 ára gömul, í kjölfar þess að Auðjón Guðmundsson tók við stöðu framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs. „Auðvitað var það töluverð áskorun og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið þetta frábæra tækifæri. En einmitt það að vera treyst fyrir þessu starfi gaf mér kjark og þor til að takast á við það. Sem betur fer eru fyrirtæki í meiri mæli farin að treysta ungu fólki fyrir ábyrgðarstöðum og ég er sannfærð um að fyrirtæki eins og Nói þurfa á því að halda að blanda saman reynslumiklu fólki og ungu, vel menntuðu fagfólki“ segir Silja. „Auðvitað þarf hvert fyrirtæki að finna sína blöndu en ég vona að flestir sem reka stór fyrirtæki á Íslandi í dag sjái tækifærin í því að nýta hugmyndakraftinn í ungu fólki sem er nýkomið út úr akademíska samfélaginu í bland við yfirsýn og þekkingu þeirra sem hafa lengri reynslu af rekstrinum. Í markaðs- málunum þarf að vera dýnamík í vinnu umhverfinu sem ýtir undir skapandi hliðar starfsins.“ Ábyrgð ekki bara orð á blaði „Hjá Nóa leggjum við mikið upp úr að starfa eftir gildunum okkar, sem eru ánægja, árangur og ábyrgð. Ég tek þau alvarlega í mínu starfi því að í markaðsmálunum skiptir miklu máli að skilaboðin séu skýr og að fyrirtækið standi alltaf við loforð sín gagnvart neytandanum. Þess vegna finnst mér það mikil- vægt að fyrirtæki eins og okkar skapi sér skýr gildi sem þýða í raun og veru eitthvað fyrir starfsmenn og að þeir geti tileinkað sér þau í verki. Gildin okkar hjá Nóa snúa bæði að ábyrgð fyrirtækisins gagnvart starfsfólki og ábyrgð okkar gagn- vart viðskiptavinum. Gildin skapa grundvöll fyrir gagnkvæmu trausti sem veitir starfsmönnum öryggi og vellíðan á vinnustaðnum og gefa neytandanum fullvissu um vöruna, framleiðslu hennar og gæði.“ Ungar konur fái meiri ábyrgð Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríusar, segir ungar konur vannýttan mannauð á íslenskum vinnumarkaði. MYND/EYÞÓR Eitt af helstu verkefnum Silju í markaðsstjórastöðunni er að vinna að þróun nýrra vörumerkja og endurmörkun eldri tegunda. „Þetta er í raun verkefni sem lýkur aldrei. Það er mikil samkeppni á þessum markaði og Íslendingar eru kröfu- harðir neytendur sem sætta sig ekki við neitt minna en bestu gæði. Nói býður upp á tugi nýjunga á hverju ári og til þess að það sé hægt þarf allt ferlið að vinna fullkomlega saman, allt frá hugmyndavinnu til umbúðahönnunar, framleiðslu og markaðssetningar. Ég er svo heppin að vinna með frábæru fólki á öllum þessum stigum, bæði hér hjá Nóa og hjá samstarfsaðilum okkar og það hefur skilað frábærum árangri á undanförnum árum.“ „Dæmi um hvað svona ferli getur falið í sér mikla vinnu er nýja útlitið og umbúðirnar um gamla góða Síríus rjómasúkkulaðið okkar. Þar þurfti í raun að endurhugsa fram- leiðsluferlið og umgjörð vörunnar frá grunni þar sem við vorum að taka inn nýjar framleiðsluvélar. Um leið vorum við á kafi í vinnu við að gera umbúðirnar okkar umhverfisvænni. Þar er frábært að sjá svo árangurinn í lokin á margra mánaða ferli þar sem neytendur hafa tekið þessari gömlu góðu vöru í alveg endurnýjuðu formi og alger- lega opnum örmum.“ Ungar konur eru vannýttur mannauður Silja segist finna fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að vera ung kona í ábyrgðarstöðu hjá stóru fyrirtæki. „Já, svo sannarlega. Því miður er ennþá töluvert um það að ungar konur þurfi að berjast á móti straumnum í íslensku viðskiptalífi eins og á mörgum öðrum sviðum, en það er að breytast smám saman. Ég tek það hlutverk alvarlega að sýna fram á að ungar konur geti tekið frumkvæði, sýnt ábyrgð og skarað fram úr á öllum sviðum til jafns við aðra – og oft jafnvel betur. Og ég er mjög ánægð með stefnuna hér hjá Nóa hvað þetta varðar. Fyrirtækið hefur sýnt hana í verki á undanförnum árum og um þessar mundir erum við að vinna hörðum höndum að því að koma á jafn- launavottun hjá fyrirtækinu sem mun styrkja hana enn frekar. Fram- tíðin er því björt hjá Nóa.“ Hvað er fram undan? Páskarnir eru einn stærsti tími árs- ins hjá Nóa og eggin eru þegar farin að streyma af færibandinu. „Við dettum alltaf í páskagírinn strax eftir jól og byrjum að skipuleggja og setja upp áætlanir fyrir þessa stóru súkkulaðihátíð. Páskarnir eru frekar seint á ferðinni þetta árið svo að við höfum örlítið meiri tíma, bæði til undirbúnings en líka til að njóta spennunnar og gleðinnar sem þessu fylgir.“ Og það er ekki aðeins á jafnréttis- sviðinu og í páskaösinni sem von er á jákvæðum hlutum á næstunni. Nói Síríus verður 100 ára árið 2020 og undirbúningur fyrir afmælisárið er þegar hafinn. „Við munum að sjálfsögðu halda upp á stórafmælið með pomp og prakt, meðal annars með því að kynna aftur á markað- inn ýmsar vörur sem neytendur sakna frá fyrri tíð.“ Það er mikilvægt að fyrirtæki sjái tækifærin í því að gefa ungum konum færi á að spreyta sig í ábyrgðarstöðum, segir markaðs- stjóri Nóa Síríusar. KYNNINGARBLAÐ 19 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 1 -B A B C 2 2 3 1 -B 9 8 0 2 2 3 1 -B 8 4 4 2 2 3 1 -B 7 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.