Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 52

Fréttablaðið - 31.01.2019, Side 52
Leikskólinn Aðalþing við Aðal-þing 2 í Kópavogi tók til starfa 4. mars 2009 og á því tíu ára afmæli á þessu ári. Skólinn er í eigu Kópavogsbæjar en er rekinn af Sigöldu ehf. samkvæmt þjónustu- samningi við bæinn. Eigendur Sigöldu eru hjónin dr. Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Þór Salvarsson, þau starfa bæði við rekstur skólans. Skólastjóri er Hörður Svavarsson. Að sögn Guðrúnar Öldu er starfið í Aðalþingi á ýmsan hátt öðruvísi en í öðrum leikskólum, til dæmis hefur þar verið unnið markvisst að því að finna nýjar og betri leiðir í leikskólastarfi með rannsóknum og þróunarstarfi. Meðal annars með því að rýna í gamalgrónar hefðir, velta fyrir sér hvort þær skapi gæði í starfinu. „Ef hefðirnar gera það ekki þá höfum við þróað betri lausnir. Eitt dæmi um það er hvernig við breyttum aðferðum við upphaf leikskólagöngu barna. Aðferðin byggist á þeirri hugmynd að börnin og foreldrarnir kynnist leikskólanum saman. Í kjölfarið hefur meirihluti leikskóla á land- inu tekið upp þessa aðferð, sem við köllum þátttökuaðlögun.“ Guðrún Alda nefnir líka annað dæmi, matmálstíma í leikskólum sem hafi lítið þróast í áratugi, en henni fannst hefðbundnar nálg- anir í matmálstímum ríma illa við lýðræðislegt skólastarf. „Okkur fannst þessar gömlu aðferðir ekki henta skólastarfinu í Aðalþingi, hefðbundnir matmáls- tímar hindra börn til dæmis í að velja hvar þau vilja sitja og ekki víst að vinir fái að sitja saman. Í Aðalþingi viljum við taka tillit til fjölbreytileika – fjölbreytilegra þarfa, óska svo og að börnin læri að þekkja eigið magamál. Lýðræði í matmálstímum er ekki síður mikilvægt en á öðrum sviðum skólastarfsins en okkur fannst lítið lýðræði í aðferðum hefðbundnu matmálstímanna og ákváðum því að breyta þessu.“ Breytingarnar felast að sögn Guðrúnar Öldu meðal annars í því að áhersla er lögð á að börnin geti haft áhrif og valið hvað þau borða, hve mikið þau borða, með hverjum þau borða og hve lengi þau eru að borða. „Sum börn eru lengi að borða án þess að það eigi nokkuð skylt við matvendni og þá er mikilvægt að matartíminn sé nægilega langur til að þau nái að ljúka við matinn sinn. Á vinnustöðum fullorðins fólks þykir valfrelsi á þessu sviði sjálfsagt og engin bylting.“ Nú er komin sjö ára reynsla á þessa nýju nálgun á matmálstíma barnanna í Aðalþingi og segir Guðrún Alda að í framhaldinu hafi allnokkrir leikskólar hérlendis tekið aðferðina upp og sömuleiðis nokkrir leikskólar í Svíþjóð. „Í lok síðasta árs flutti ég svo fyrirlestur í Noregi um matar- menningu Aðalþings og heyrði ekki betur en að einhverjir þar hefðu hug á að taka þessa nálgun upp. Stundum situr fólk bara fast í gömlum hefðum og ígrundar ekki gæðin í þeim. Þegar maður áttar sig svo á því að hefðin er kannski ekki það besta, þá spyr maður sig: Hvers vegna hefur mér ekki dottið fyrr í hug að breyta þessu?“ Að lokum nefnir Guðrún Alda enn eitt dæmið um það sem gerir Aðalþing frábrugðinn öðrum leik- skólum. „Aðalþing er eini leikskólinn á Íslandi með starfandi doktor í leikskólafræðum,“ segir dr. Guðrún Alda Harðardóttir. Lýðræði í matmáls- tímum er ekki síður mikilvægt en á öðrum sviðum skóla- starfsins en okkur fannst lítið lýðræði í aðferðum hefðbundnu matmáls- tímanna og ákváðum því að breyta þessu. Tökum tillit til fjölbreytileika Í leikskólanum Aðalþingi er fremur leitað nýrra leiða en að halda í úr sér gengnar hefðir. Þannig var tekin upp ný nálgun á matmálstíma til að koma til móts við fjölbreytilegar þarfir barnanna. Guðrún Alda Harðardóttir er annar eigandi Sigöldu sem sér um rekstur leikskólans Aðalþings. MYND/ERNIR Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir er forstjóri og eigandi Torgs ehf., sem gefur út Fréttablaðið, tímaritið Glamour og Iceland Magazine, fyrir ferðamenn. Ingi- björg er þekkt úr viðskiptalífinu og er meðal annars sjöundi stærsti hluthafi í Högum og eigandi og hönnuður 101 hótels. Ingibjörg var alin upp í Hagkaup af föður sínum, verslunarmanninum Pálma Jónssyni, og fetaði snemma í fót- spor hans og fór út í eigin rekstur. Henni er staða kvenna á vinnu- markaði hugleikin. ,,Það er vitaskuld þannig að sögulega hafa konur verið beittar óréttlæti á vinnumarkaði og þeim er síður treyst fyrir ábyrgðar- stöðum. Það er reyndar ekki svoleiðis innan minna fyrirtækja. Það var samt mjög lífrænt ferli, gerðist eiginlega af sjálfu sér,“ segir Ingibjörg, en konur eru áberandi í stjórnunarstöðum fyrirtækja í hennar eigu. Þannig er útgefandi Fréttablaðsins kona, annar tveggja ritstjóra blaðsins, fjármálastjórinn og framkvæmdastjóri rekstrarsviðs allt konur. Hótelstjórinn, aðstoðar- hótelstjórinn og veitingastjórinn á 101 hótel eru allar kvenkyns. „Svo er það þannig í öllum fyrirtækjum að það er einhver sem græjar allt. Hjá mér er það kona í smiðsbuxum sem lærir rafvirkjun á kvöldin,“ segir hún. Rekstur eignarhalds- félags Ingibjargar, IP Studium, er í höndum kvenna. Litið á kynjakvóta sem kvöð Ingibjörg segist heppin með stjórnendur í sínum fyrirtækjum. „Það er mín upplifun að konur og karlar séu ólíkir starfskraftar að mörgu leyti, áherslurnar eru gjarnan öðruvísi. Eftir því sem ég öðlast meiri reynslu, sé ég alltaf betur og betur hversu mikilvægt er að sjónarmið beggja kynja heyrist innan fyrirtækja og það er eiginlega sama um hvernig rekstur ræðir. Mér finnst ekki síður mikil- vægt að veita ungu fólki tækifæri til þess að þroskast og dafna og ná árangri. Um daginn var svo kosið í stjórn Haga, sem ég fylgdist náið með, og mér fannst það mjög áhugavert ferli, verð ég að segja,“ segir Ingibjörg og bendir á að fyrir tæpum áratug hafi verið gerð breyting á löggjöf um hlutafélög og þeim skylt að hafa að minnsta kosti 40 prósent hlutfall hvors kyns í stjórninni. „Mér hefur því miður fundist þróunin sú að fólkið sem ræður lítur á þennan kynjakvóta sem kvöð. Box til að haka við. Mér hefur sýnst þurfa að leita sér- staklega eftir konum til að bjóða sig fram, til að mynda í stjórnir í skráðum félögum. Það sem svo gerist, aftur og aftur er að það er leitað til þeirra sömu og þar með, óumflýjanlega, er komið í veg fyrir að nokkur endurnýjun eigi sér stað. Þarna finnst mér við þurfa að staldra við. Hvers vegna eru konur ekki að bjóða sig fram í stjórnir eins og karlarnir? Þarna er einhver tregða. Þurfa þær ef til vill meiri hvatningu frá konum sem ráða? Það er beinlínis nauðsynlegt að sé samkeppni milli kvenna, eins og á milli karla, um stjórnarsæti. Þann- ig fáum við besta fólkið í stjórn- irnar. Ég vil að við finnum út úr því hvernig við getum breytt þessu, að við sem höfum reynsluna hvetjum konur okkur yngri til þess að bjóða sig fram og vera óhræddari. Trúðu mér, karlarnir eru óhræddir.” Full skoðanaglöð á köflum Sjálf segist hún ekki hafa farið varhluta af því að vera kona í rekstri. „Það er til dæmis þannig að þegar er fjallað um fyrirtæki í minni eigu er gjarnan látið að því liggja að ég sé einhvers konar hliðarsjálf eiginmanns míns. Það er frekar súrt. Þótt ég sé kona, þá á ég nefnilega þau fyrirtæki sem eru skráð í minni eigu. Þetta hefur sér- staklega verið erfitt fyrir ákveðna fjölmiðla að skilja, Ríkisútvarpið og svo nokkra smámiðla sem Ríkisútvarpið svo hampar, að ég hafi skoðanir og jafnvel úrslitavald um eigin rekstur. Þetta fer alveg nett í taugarnar á mér, að ég hafi orðið að einhvers konar viljalausu verkfæri þegar ég gifti mig tæp- lega fimmtug og missti greinilega sjálfræði og allar mínar eignir um leið. Mér fannst það alveg merki- legt að maðurinn minn varð ekki eignalaus við ráðahaginn eins og ég,“ segir Ingibjörg og hlær. „Það breytir því ekki að maðurinn minn er minn besti samstarfs- félagi, bæði í leik og starfi. Hann er mjög hrifinn af kvennaveldinu í kringum okkur. Steinunn Guðbjartsdóttir, sem var formaður skilanefndar Glitnis, gekk meira að segja svo langt að lögsækja mig fyrir dóm- stólum fyrir að vera hliðarsjálf eiginmanns míns. Megi hún hafa ævarandi skömm fyrir. Skemmst frá því að segja að það dómsmál var látið niður falla. Góður vinur okkar hjóna kom nokkru síðar með rauðvínsflösku heim, gaf mér, en tegundin heitir Alter Ego de Palmer. Þessi flaska er óupp- tekin og stendur inni í glerskáp í eldhúsinu og við hlæjum að þessu reglulega vegna þess að ég held að allir sem þekki mig geri mér það ekki upp að vera hliðarsjálf nokkurs manns,“ segir Ingibjörg, hlæjandi. „Það er kannski frekar hitt, að fólkinu mínu finnist ég full skoðanaglöð á köflum.“ Ingibjörg segir mikilvægt að þeir reynslumeiri hjálpi þeim sem yngri eru að feta sig í atvinnu- lífinu, þvert á kynin. „Það má ekki skilja það sem svo að ég ráði ekki líka karla, ég er í grunninn bara að leita að góðu fólki. En þessar hæfu konur hafa einhvern veginn komið til mín í bunkum og endað efst í skipuritinu sem fer þeim mjög vel. Það hefur verið mjög náttúrulegt, sennilega af því að ég er opin fyrir því,“ segir hún að lokum. Þurfum að vera óhræddari Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, eigandi 101 hótels og forstjóri Torgs, segir mikilvægt að það sé samkeppni um stjórnarsæti kvenna. Hún segist leið á því að vera talin hliðarsjálf eiginmanns síns. Ingibjörg Pálmadóttir, forstjóri og eigandi Torgs ehf., en félagið gefur út Fréttablaðið, tímaritið Glamour og Iceland Magazine, fyrir ferðamenn. 22 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 1 -C 4 9 C 2 2 3 1 -C 3 6 0 2 2 3 1 -C 2 2 4 2 2 3 1 -C 0 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.