Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 72
BÍLAR
Þú færð vörur KeyNatura í Fjarðakaup, Nettó, verslunum Mamma Veit Best, Heilsuver,
Heilsuhúsinu, Hagkaup og flestum lyfjaverslunum og í vefverslun okkar, KeyNatura.is
Fanney, Boot Camp þjálfari
mælir með vegan vörunum
AstaFuel, AstaEnergy og
AstaCardio.
Gefðu líkamanum gjöf!
Mikill fjöldi bílgerða, þar á meðal bifreiðar sem eru með þeim mest seldu í Evrópu, eru nokkuð ber-
skjaldaðar fyrir því að hægt sé að stela
þeim vegna þeirrar tækni að hægt er
að ræsa bifreiðina með því að þrýsta
á hnapp í stað þess að ræsa hana með
lykli eins og hefur tíðkast síðustu ára-
tugina.
Þjófnaður á bílunum fer þannig
fram að ákveðin tækni er notuð til
að komast inn í þá útvarpstíðni sem
bifreiðin notar til að nema „lykilinn“
sem oftast nær er aðeins notaður til að
opna bílinn en þarf að vera inni í bíln-
um til að hægt sé að ræsa vélina. Með
þessari tækni er þá hægt að „blekkja“
bílinn, ef svo má að orði komast,
og ræsa vélina. Þetta kemur fram í
breskum miðlum. Gögn frá breska
ríkisútvarpinu sýna að bílþjófnaðir í
Bretlandi hafi aukist á síðustu árum.
Einnig hefur félag þýskra bifreiðaeig-
enda látið rannsaka málið og komist
að þeirri niðurstöðu. Af 237 bifreiðum
voru 234 bifreiðar næmar eða ber-
skjaldaðar fyrir tækninni og hægt var
að stela þeim.
Ford Fiesta og Ford Focus, Nissan
Qashqai og Volkswagen Golf eru fjór-
ar af fimm mest seldu bíltegundum á
Bretlandseyjum. Allar þessar gerðir
voru berskjaldaðar fyrir þessari gerð
innrásar í bílana og hægt var að ræsa
vélar þeirra með þessari tækni.
Hér á Íslandi hefur á síðustu mán-
uðum komið upp mál sem lögreglan
hefur þurft að skoða sem tengjast
þjófnuðum úr bílum þar sem ein
tegund bifreiða varð sérstaklega
fyrir valinu á bíræfnum þjófum.
Einnig hefur Volkswagen Golf verið
vinsæll meðal bílaleigubíla hin síðari
ár og því mikið af slíkum bifreiðum
á götum landsins. Nýjustu bílarnir af
þeirri gerð eru einmitt þannig að ekki
þarf lykil til að ræsa vélina. Nægjan-
legt er að fjarstýringin sé inni í bif-
reiðinni þegar vélin er ræst með fjar-
stýringu. – sa
„Lyklalausar“ bifreiðar
berskjaldaðri en menn héldu
Bifreiðar sem ekki þarf lykil til að ræsa eru mun berskjaldaðri fyrir því að vera stolið en menn hafa haldið fram. Tækni
til að komast inn á tíðni bílsins og „plata“ hann hefur náð fótfestu og með því hægt að opna bifreiðina, ræsa vélina og
aka í burtu. Sumar af mest seldu bíltegundum heims eru meðal þeirra sem hægt er að stela með þessari tækni.
Nissan Qashqai var einn af þessum bílum þar sem hægt var að ræsa vélina með þessari tækni.
3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-6
6
C
C
2
2
3
1
-6
5
9
0
2
2
3
1
-6
4
5
4
2
2
3
1
-6
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K