Litli Bergþór - 01.07.2016, Síða 7
Enn birtist hér samantekt um hús í Laugarási og íbúa þeirra. Ártölin vísa til byggingarára húsanna
(Launrétt 2), eða þess tíma sem eigendurnir fluttu í Laugarás. Þeir leigðu þá húsnæði meðan þeir
byggðu yfir sig. Hér er greint frá fyrstu heilsugæslustöðinni í uppsveitum og 4 garðyrkjubýlum.
Þetta gerðist allt á þremur árum, frá 1965-1968.
LAUNRÉTT 2 1965
Þetta hús, sem var bæði íbúð
héraðslæknisins og heilsugæsla,
var byggt 1965, en síðan var
heilsugæsluhlutinn stækkaður með
viðbyggingu 1971 þar sem umfang
heilsugæslunnar fór vaxandi.
Þarna ráku læknarnir apótek þar til
reglur leyfðu slíkt ekki lengur.
Með nýju heilsugæslustöðinni sem
var tekin í notkun 1997, breyttist hlutverk gömlu heilsugæslustöðvarinnar og þar er nú rekin lyfsala.
Fyrstu íbúarnir í þessu nýja húsi voru Grímur Jónsson og Gerda Jónsson, en þau fluttu úr gamla
Litli-Bergþór 7
Húsin í Laugarási
Páll M. Skúlason:
Launrétt 2.
Gylfi og Rut ásamt sonardóttur Rutar.
læknishúsinu. Þarna bjuggu þau afar stutt og fluttu burt árið
eftir, 1967. Í þeirra stað kom nýr héraðslæknir, Konráð
Sigurðsson (f.13.06.1931, d.15.07.2003) og kona hans Sigrid
Østerby Sigurðsson (06.02.1937, d.12.01.2008). Þau bjuggu í
húsinu til 1972, en þau skildu 1973. Þau eignuðust þessi börn:
Atli (f. 11.10.1959), býr í Svíþjóð, Sif (f. 04.12.1960), Huld
(f. 05.08.1963), Ari (f. 14.09.1968), Andri (f. 16.09.1971).
Fyrir átti Sigrid eina dóttur og Konráð átti tvö börn. Árin 1972
og 1973 starfaði Konráð í Reykjavík, en kom síðan aftur í
Laugarás. Kona hans á þeim tíma var Anna Agnarsdóttir
(f.09.01.1949). Þau eignuðust 3 börn: Hildur Rósa (26.06.1974),
Anna (f.24.03.1977, d.05.05.1979), Anna Guðrún (f. 13.02.1980). Konráð og Anna byggðu sér hús
í Laugarási sem hlaut nafnið Árós (Austurbyggð 15). Þangað fluttu þau 1981, en voru þá þegar farin
að huga að því að hverfa á braut. Þau misstu tveggja ára dóttur sína í
sviplegu slysi 1979. Formlega var Konráð þó læknir í Laugarási til 1983
Haustið 1984 kom Gylfi Haraldsson (f.07.04.1946) til starfa sem
læknir í Laugarási og hefur verið hér síðan. Hann þurfti að láta af
störfum vegna aldurs 2016, en starfar enn sem afleysingalæknir.
Kona hans er Rut Meldal Valtýsdóttir (f. 04.02.1947), en hún kom í
Laugarás 1990. Þau eiga ekki börn saman, en einn þriggja sona Rutar
og Þorsteins Björgvinssonar (f. 19.07.1944, d.26.08.1988), Hreiðar
Ingi (f.31.03.1978) ólst upp að mestu í Laugarási. Hann býr nú í
Reykjavík.
Börn Gylfa og Höllu Arnljótsdóttur (f. 05.06.1947, d. 07.08.2006) eru:
Þröstur Freyr (f. 22.05.1979), sem býr í Reykjavík og Guðbjört
(f. 19.12.1982) býr í Bandaríkjunum.
Gylfi og Rut fluttu úr húsinu árið 2015 í Garðabæinn, en þau eiga einnig
sumarhús í Langholti í Laugarási.
Anna og Konráð.