Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 17
Litli-Bergþór 17
Í byrjun janúar birtist síða á Facebook sem bar heitið Biskviss og þar
var að finna eftirfarandi texta:
Spurningakeppni í Slakka.
Biskupstungnamenn og -konur hafa löngum verið þekkt fyrir
yfirgripsmikla almenna þekkingu. Það er því ekki seinna vænna
en að blása til mannfagnaðar, þar sem sötraðir verða drykkir,
snakkað, spáð og spekúlerað. Spurningum verður varpað á skjá og
þátttakendur skrá svör sín niður á svarblöð. Að spurningum loknum
munu þeir skiptast á svarblöðum og farið verður yfir rétt svör.
Sá sem flest á rétt svörin stendur uppi sem sigurvegari og hlýtur
leynivinninginn.
Boðað var til spurningakvöldsins með þriggja mánaða fyrirvara
og fyrir því stóðu Unnur Malín Sigurðardóttir og Húsdýragarðurinn
Slakki.
Föstudagskvöldið 15. apríl rann upp og um 30 gestir lögðu leið
sína í Slakka til að taka þátt í þessum viðburði, sem sannarlega átti
sér varla fordæmi í þessari sveit. Eftir stutta upphitun og kynningu
á hvernig staðið yrði að keppninni var spurningum varpað á tjald og
þátttakendur (sem mynduðu eins eða tveggja manna lið) skrifuðu
svör sín á blað (ef þeir vissu þau á annað borð. Einbeiting þátttakenda
var gífurleg og ljóst að þarna var fólk mætt til að sigra, en fljótlega
dofnuðu vonir einhverra, enda spurningarnar ekki allar um það sem
telja má almenn þekkingaratriði.
Þegar spennuþrunginni spurningalotunni lauk, skiptust
þátttakendur á svarblöðum og fóru yfir. Þá kom í ljós að Elín Sólveig
Grímsdóttir á Birkiflöt sem stóð uppi sem sigurvegari og hún hlaut
verðlaunin sem í boði voru.
Biskviss í Slakka
Pub Quiz
Eins og einhverjir geta ímyndað sér, þá er nafnið á viðburðinum sem hér
er um að ræða myndað út frá alþekktu fyrirbæri, svokölluðu Pub Quiz
(stundum nefnt Bar svar) sem er ástundað um heim allan. Það kom fyrst
fram í Bretlandi á áttunda áratug síðustu aldar, aðallega í þeim tilgangi
að draga að gesti sem annars lögðu lítt eða ekki leið sína á krár. Þetta
fyrirbæri hefur síðan þróast í ýmsar áttir og það hafa jafnvel orðið til
atvinnumannalið innan greinarinnar.
Á Íslandi hefur þetta verið stundað alllengi, meðal annars er keppni af
þessu tagi háð nokkuð reglulega í Útlaganum á Flúðum.
Fremst á myndinni eru m.a. Helgi Hálfdánarson, Jóhanna Magnúsdóttir, Sigríður Egilsdóttir, Jakob Narfi Hjaltason og Nadine
Bullerdiek, Anna Greshammer, Katrin Wally og Katrín (Akri)
Dröfn Þorvaldsdóttir, Ingólfur Guðnason, Sigrún
Reynisdóttir, Aðalheiður Helgadóttir, Skúli Sæland,
Ásta Skúladóttir
Andrés Mar Heiðarsson, Gunnar Örn Þórðarson,
Linda Björk Viðarsdóttir, Elín Sólveig Grímsdóttir
og Unnur Malín Sigurðardóttir