Litli Bergþór - 01.07.2016, Síða 23

Litli Bergþór - 01.07.2016, Síða 23
Litli-Bergþór 23 geta að oft hafi verið þungt að sinna gegningum, ekki síst í hríðarbyljum og hefur örugglega oft mátt litlu muna að menn næðu heim. Gústaf, bróðir Kristjáns, var hjá honum vinnumaður lengi. Voru þeir mjög samrýmdir bræður og sagði Kristján seinna að hann hefði varla haldið út búskapinn í Haukadal hefði hann ekki notið fulltingis Gústafs. Guðbjörg og Kristján eignuðust alls 13 börn, fimm syni og átta dætur en þrjú þeirra dóu í æsku. Þau sem lifðu til fullorðinsára eru: Greipur (f. 1914 - d. 1988), Sigurgeir (f. 1916 - d. 1993), Elín (f. 1917 - d. 2002), Jóhanna (f. 1919 - d. 1986), Loftur (f. 1920 - d. 1982), Sigríður (f. 1922), Ketill (f. 1924 - d. 2015), Auður (f. 1932), Katrín (f. 1935 - d. 1987), Áslaug (f. 1936). Árið 1927 hóf Sigurður Greipsson, bróðir Guðbjargar, byggingu íþróttaskóla við Geysi, en hann réði yfir hálfri Haukadalsjörðinni. Hann rak bú og taldi sig vanta landrými. Kristjáni og Guðbjörgu leist ekki á að búa lengur í Haukadal þar sem börnin voru orðin átta talsins og skuldir höfðu aukist. Börnin voru líka að komast á skólaaldur og þá var nýbúið að reisa heimavistarskóla í Reykholti. Það var því um vorið 1929 að þau seldu Sigurði Greipssyni sinn hlut í jörðinni eftir 19 ára búskap þar. Fluttu þau þá að jörðinni Felli sem er neðar í sveitinni, ekki svo langt frá Reykholti þar sem nýi barnaskólinn var risinn. Fell hafði gamall maður gefið barnaskólanum til eignar og leigðu þau jörðina af skólanefndinni til að byrja með. Heimskreppan var að skella á, húsakostur var um margt lélegur að Felli og þurfti endurnýjunar við og tún voru í órækt og kargaþýfð. En jörðin var nokkuð stór og vetrarbeit góð þó að slægjur væru rýrar. Um 1940 rýmkaðist svo um hjá þeim hjónum að þau gátu keypt jörðina. Árið 1952 tóku synir þeirra, Loftur og Ketill við jörðinni en þau bjuggu samt áfram með allmargt fé og nokkur hross. Það var svo árið 1963 að Auður dóttir þeirra og Jóhann Vilhjálmur Vilbergsson maður hennar tóku við af Lofti og Katli en Kristján og Guðbjörg bjuggu á Felli til æviloka. Guðbjörg dó1973 en Kristján 1983. Fell er enn í eigu ættarinnar en ekki er þar rekinn búskapur lengur. „Þetta var eitt af fyrstu húsunum í Tungunum í þessum stíl og þótti flott á sínum tíma. Tungnamenn kölluðu það Hótel Fell, svo stórt fannst þeim það, þó ekki þætti það stórt í dag. Þarna bjó stór fjölskylda, það voru Kristján og Guðbjörg og börnin þeirra 10 auk þess sem alltaf var eitthvað um aukafólk. Það fylgdi þessum stað mikill gestagangur. Ég man vel þegar ég var barn í nýja húsinu á Felli að þar var jafnan mikill gestagangur og eitt sinn voru svo margir næturgestir að ég var látin sofa í forstofunni ásamt bræðrum mínum. Nafngiftin Hótel Fell hefur því oft átt vel við á meðan búið var á jörðinni”. Guðbjörg Jóhannsdóttir, barnabarn Kristjáns Loftssonar. Gamla húsið á Felli.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.