Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 27
Litli-Bergþór 27
Logafréttir
Starfsár hestamannafélagsins Loga árið 2015 var bæði
með hefðbundnu og óhefðbundnu sniði. Aðalfundur
var haldinn 16. apríl 2015 og hætti Hólmfríður Ing-
ólfsdóttir sem gjaldkeri eftir margra ára farsælt og gott
starf. Voru henni þökkuð öll hennar góðu störf enda
vandfundinn samviskusamari og tryggari Logafélagi.
Á aðalfundinum var Freydís Örlygsdóttir kjörin í
stjórn og tók hún við starfi gjaldkera.
Árið 2015 var stjórn félagsins því þannig skipuð:
Einar Á. E. Sæmundsen formaður
Sólon Morthens varaformaður
Freydís Örlygsdóttir gjaldkeri
Líney Kristinsdóttir ritari
Marta Margeirsdóttir meðstjórnandi.
Starf hestamannafélagsins var með hefðbundnu
sniði framan af ári. Vetrarmót í samstarfi við Trausta
voru haldin í Hrísholti og á vellinum í Laugardal
en voru ekki of vel sótt og vill stjórnin leggja til að
hugsa þessi mót upp á nýtt. Mótahaldið hefur þó
verið mjög líflegt yfir vetrarmánuðina í reiðhöllinni
á Flúðum með mismunandi mótum, Uppsveitadeild
Loga, Trausta og Smára og Flúðasveppa, Upp-
sveitadeild æskunnar og sameiginlegu töltmóti
hestamannafélaganna miðvikudaginn fyrir skírdag.
Öll þessi mót heppnuðust mjög vel og var tekið
eftir þeim. Einkenndi þau samhugur og ánægja með
framkvæmd og umgjörð. Allir þessir viðburðir hafa
vakið athygli og hleypt miklu lífi í hestamennsku í
Uppsveitunum. Frábært reiðnámskeið Loga og Smára
var haldið í Hestheimum í lok maí 2015 þar sem
Æskulýðsnefndir Loga og Smára tóku höndum saman
og höfðu tveggja daga námskeið. Krakkarnir fóru í
reiðtúra, fengu bóklega kennslu og reiðkennslu fyrir
utan að kynnast, skemmta sér og leika saman. Þetta
sýndi mjög vel hvernig félögin geta unnið saman að
góðum málum. Í byrjun júní var mjög vel heppnað
reiðnámskeið Loga haldið að venju í Hrísholti og
var gaman að sjá hve margir sóttu þangað fróðleik
hjá Rósu Birnu Þorvaldsdóttur. Í kjölfarið var haldin
firmakeppni sem gekk vel. Dagskráin fyrri part ársins
fylgdi því hefðbundnu sniði.
Undanfarin ár hefur gengið mjög illa að manna
og fá fólk til undirbúnings á Hestaþingi Loga um
Skvísurnar, Sigríður, Salka og Þórhildur Júlía að gíra sig upp í firmakeppnina.