Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 28
28 Litli-Bergþór
verslunarmannahelgina. Stjórn Loga ákvað því á fundi
sínum í lok júní 2015 að flytja mótið fram um helgi og
halda það í Hrísholti en halda svipuðu sniði á mótinu
í von um að betur gengi að halda og manna mótið. Á
sama tíma ákvað stjórn Smára að flytja sitt félagsmót
aftur um eina helgi og halda opið mót. Þessi mót lentu
þá á sömu helgi, opin mót að öllu eða nokkru leyti
sitthvoru megin við ána. Það var sérstakt að stjórnirnar
höfðu ekki samráð vegna þessara ákvarðana og
sérstaklega í ljósi mikils og góðs samstarfs en í sjálfu
sér var þetta engum að kenna. Stjórn Loga ákvað í
kjölfarið eftir nokkra umhugsun og samtal við Smára að
það væri lag að prófa eitthvað alveg nýtt. Ákveðið var
að halda sameiginlegt opið gæðingamót með Smára á
Flúðum helgina fyrir verslunarmannahelgi. Sú tilraun
heppnaðist frábærlega vel og tókst mótið á allan hátt
mjög vel. Skráning var góð, umgjörð til fyrirmyndar
og allir vellir og aðstaða gríðarlega góð. Einnig kom
fram betri kostnaðarskipting og nokkur hagnaður var
af mótinu sem stjórnir félaganna samþykktu að færi til
reiðhallarinnar. Einnig kom þetta reiðhöllinni til góða
þar sem veitingasala þar í umsjón hollvina tók góðan
kipp.
Það verður þó ekki litið hjá því að það voru margir
hryggir og undrandi yfir því að mótið var ekki að
venju í Hrísholti og spunnust ýmsar umræður um
það og ákvörðun stjórnar. Það er eðlilegt þar sem
mótahald í Hrísholti er byggt á gömlum merg og
mótsvæðið á margan hátt einstakt. Laugardaginn
um verslunarmannahelgi var haldinn fjölmennur
reiðtúr þar sem fjölmargir Logafélagar og aðrir
góðir hestamenn riðu frá Hrísholti yfir að Brekku
um Vatnsleysu og nutu þar góðgerða. Töldust þar
hafa verið rúmlega 50 manns á baki og langt síðan
svo margir fóru um Biskupstungur saman á hestbaki.
Sannarlega gott framtak sem var einnig viðbrögð við
ákvörðun stjórnar Loga.
Í haust var haldinn hefðbundinn samræmingarfundur
Loga, Smára og Trausta um dagsetningar fyrir
vetrarstarfið en þetta er mikilvægur fundur þar sem
vetrarstarfið er það öflugt
að nauðsynlegt er að festa
allar dagsetningar snemma.
Formaður og gjaldkeri fóru til
Reykjavíkur í nóvember og
sátu þar góðan formannafund
þar sem formenn og gjaldkerar
allrar hestamannafélaga á land-
inu komu saman og funduðu.
Miklar og góðar umræður voru
um starf hestamannafélaganna
og Landsmót 2016 kynnt.
Hestamannafélagið Logi á við
sama vandamál að etja og flest
hestamannafélög á landinu og
önnur félagasamtök sem standa
að skipulegu starfi byggðu
á sjálfboðaliðastarfi. Það er
erfitt að fá fólk til að að starfa.
Það eru einnig einskonar
kynslóðaskipti í Loga þar sem
árgangar eru að fara út sem hafa
verið virkir. Einnig eru hópar
sem hafa fengið alveg yfirdrifið Rósa Kristín á flugskeiði á Smala, Uppsveitadeild æskunnar 7. maí.
Guðný Helga E. Sæmundsen sem vann barnaflokkinn í
Firmakeppninni 2015