Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 31
Litli-Bergþór 31
göngustíg að brúnni. Var það gert og einnig rudd
göngubraut í hring um reitinn. Samningurinn var
síðan undirritaður í lundinum á afmælisdeginum 12.
júní, af núverandi ábúendum, þeim Ingva og Þórarni
Þorfinnssonum og Hildi Maríu Hilmarsdóttur, í fallegu
veðri að viðstöddu fjölmenni. Kom upp sú tillaga
hjá kvenfélagskonum að lundurinn verði framvegis
nefndur Ingulundur í minningu Ingibjargar.
Félagsstarf kvenfélagskvenna hefur annars verið
hefðbundið á starfsárinu.
Jólamarkaður félagsins var haldinn í Aratungu 5.
desember, þrátt fyrir slæmt veður og ófærð (allsstaðar
nema í Tungunum). Tókst hann vonum framar.
Jólafundurinn okkar var haldinn þann 19. nóvember,
í Bergholti og var ósköp notalegur; drukkið heitt
súkkulaði eða kaffi og maulaðar smákökur. Leynigestur
fundarins var Agnes Geirdal með Skapandi prjón.
Kom hún með prjónaprufur af mismunandi stærðum
og gerðum sem unnar höfðu verið út frá ljósmyndum
og kynnti fyrir félagskonum hugmyndafræðina að
baki prufunum.
Í nóvember var farið á leikverkið „Mæður
Íslands“ sem frumsýnt var hjá Leikfélagi
Mosfellssveitar. En eins og segir í
kynningu verksins: „Mæður Íslands er
nýtt, íslenskt leikverk, þar sem sagan er
sögð frá sjónarhorni konunnar, móðurinnar
og dótturinnar. Leikverkið er unnið út frá
frásögnum og sögum um íslenskar konur, líf
þeirra, tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á
aðra og hvernig aðrir upplifa þær.“ Skemmtu
allir sér mjög vel enda frábær sýning í alla
staði og eftir sýningu var farið og borðuð
dásamleg kjúklingasúpa á Kaffihúsi Álafoss.
Á haustfundinum okkar, þann 8. október
2015, á Kaffi Mika, kom Jóhanna
Magnúsdóttir, sérþjónustuprestur á Sól-
heimum í Grímsnesi til okkar. Hún hélt mjög
áhugaverðan fyrirlestur um meðvirkni og
gleðina á einstaklega skemmtilegan og gefandi hátt.
Þar talaði Jóhanna meðal annars um að lífskeið hverrar
manneskju væri eins og perlufesti og hver og ein perla
í festinni ætti að skína skært.
Í jólablaði Litla-Bergþórs var sagt frá ferð Kvenfélasins
og eldriborgara í Borgarfjörðinn þann 4. september,
2015, svo það verður ekki endurtekið hér. En það var
mjög skemmtileg og góð ferð.
Þann 7. júlí, 2015 var Skógarvinnugleðidagurinn þar
sem farið var í skógarreit kvenfélagins að Spóastöðum
og tré snyrt og kvistuð. Hreinsað frá þar sem nýr
göngustígur á að koma, þrjú grenitré gróðursett til
að mynda skjól og grasflöt slegin. Að loknum góðum
degi var borðað nesti og mikið spjallað.
Kvenfélagið tók þátt í 17. júní hátíðarhöldunum og
Tveim úr Tungunum í ágúst 2015 eins og áður.
Einnig sáu Kvenfélagskonur um erfidrykkju í fjórum
erfidrykkjum frá því í nóvember 2015 til maí 2016.
Því sem safnast í fjáröflun félagsins skilum við aftur
til samfélagsins okkar.
Helstu gjafir kvenfélagsins á árinu 2015 voru:
30 stólar í Bergholt kr. 688.452,-
Eldriborgarastarf 184.800,-
Styrkur til Tvær úr Tungunum
v/hoppukastala 40.000,-
Félagið tók þátt í jólaballi grunnskóla
Bláskógabyggðar, kr. 30.000,-
Auk þess má nefna verðlaun til nemenda
Tónlistarskólans, upplýsingaspjöld, sem
afhent eru 10. bekkingum við útskrift,
söluborð fyrir 10. bekkinga á mörkuðum og
fleira.
Framundan á þessu ári er síðan Tvær úr
Tungunum þann 13. ágúst og margt annað
skemmtilegt.
Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir í
kvenfélagið.
Agnes Geirdal formaður.
Gengið upp að vörðunni, Sigríður Egilsdóttir á brúnni.
Þorfinnur segir frá tilurð samningsins, systur hans, Gurra, Stenna, Badda,
Sigga og Ragnhildur standa á bak við hann.