Litli Bergþór - 01.07.2016, Side 33
Litli-Bergþór 33
Verkefni til styrktar
Meðal verkefna sem klúbburinn kemur að eru
kaup á búnaði til heilsugæslunnar í Laugarási,
grunnskólans, björgunarsveitar og íþróttamannvirkja
í Biskupstungum. Sjóðurinn Góði er sameiginlegur
styrktarsjóður Rauða krossins, Kvenfélaga og
Lionsklúbba í Árnessýslu. Hann styrkir þá sem
minna mega sín í sýslunni fyrir jól og páska.
Útdeiling úr honum fer eftir ströngum reglum. Geysir
hefur komið að þessum sjóði í allmörg ár. Alþjóða
hjálparsjóðnum eru einnig gerð skil reglulega. En
það er eftir því sem næst verður komist stærsti sjóður
af því tagi í veröldinni. Klúbbnum er umhugað um
heilbrigðismál. Í nóvember býður klúbburinn upp á
fríar blóðsykurmælingar
og fleiri hugmyndir að
verkefnum sem stuðlað
geta að bættri heilsu, eru til
skoðunar hjá okkur.
Félagar og stjórnar-
hættir
Félagar telja nú 28, nýlega
voru teknir inn tveir
félagar. Einn félagi okkar,
Gunnar Haraldsson, kvaddi
þetta líf fyrir skömmu.
Blessuð sé minning hans.
Aldur félaga er frá 34 - 80
ára og meðalaldur er 57 ár.
Stjórn starfsársins skipa:
Guðmundur Ingólfsson
formaður, Þorsteinn Þór-
arinsson ritari og Snorri
Guðjónsson gjaldkeri. Í maí
taka við stjórnartaumunum
Helgi Guðmundsson, sem
verður formaður, Hjalti
Ragnarsson ritari og
Þórarinn Þorfinnsson gjaldkeri. Ævinlega fara fram
stjórnarskipti á hverju vori. Klúbburinn hefur starfað
í 32 ár og eru fimm af stofnfélögunum enn starfandi
í klúbbnum. Klúbburinn er í góðu samstarfi við aðra
klúbba í nágrannasveitum og telja Lionsfélagar í
Árnessýslunni um 230. Við horfum björtum augum
á framtíð klúbbsins og finnum mikinn meðbyr og
velvild í garð okkar í samfélaginu og hefur svo verið
um árabil. Fyrir það erum við þakklátir.
Fyrir hönd Lionsklúbbsins Geysis:
Þorsteinn Þórarinsson ritari
og Kristófer Tómasson siðameistari.
Í Stóra-Núpskirkju. Á myndinni má þekkja þau Svavar frá Drumboddsstöðum, Áslaugu á Spóastöð-
um, Borghildi frá Hæli, Sigurlaugu og Hallgrím heitinn (á bak við Gunnar) á Bjarkarbraut, Gunnar í
Hrosshaga, Evu á Tjörn, Gylfa lækni og Snorra á Tjörn.
Eftirtaldir styrkja útgáfu Litla-Bergþórs, blaðs Umf. Bisk:
Friðheimar Reykholti s: 486 8815
Gljásteinn ehf. Myrkholti s: 486 8757
Helgi Guðmundsson rafvirki Hrosshaga s: 864 6960
Hótel Gullfoss Brattholti s: 486 8979
Skjól - Camping Kjóastöðum s: 899 4541