Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 38
38 Litli-Bergþór
Landgræðslufélagið hefur efnt til fræðsluferða fyrir
félagsmenn. Einnig hefur það útvegað trjáplöntur
fyrir Lionsklúbbinn Geysi, sem þeir hafa sett
niður í Rótarmannagil í árlegri útplöntunarferð
klúbbmeðlima og fjölskyldna þeirra. Jafnframt hefur
landgræðslufélagið stutt við og unnið með nemendum
í Bláskógaskóla í Reykholti
að útplöntun og fræðslu um
afréttinn.
Stjórn félagsins árið 2015-
2016 skipa: formaður Ingvi
Þorfinnsson Spóastöðum, ritari
Guðmundur Ingólfsson Iðu,
gjaldkeri Helgi Kjartansson
Reykholti og er hann jafnframt
fulltrúi sveitarstjórnar.
Hlutverk landgræðslufélags-
ins er og verður áfram að
virkja áhuga allra þeirra sem
vilja bæta ástand afréttarins í
samráði við eigendur, notendur
og Landgræðslu ríkisins.
Félagið er með opna síðu á
Facebook og þar má m.a. sjá
ýmsar myndir úr starfi þess.
Það skal tekið fram að öllum
sem áhuga hafa á uppgræðslustarfi er velkomið að
ganga til liðs við Landgræðslufélag Biskupstungna
og þeir sem vilja styrkja starf félagsins er bent á
bankareikning 0151-05-469 Kt: 570895-2069
Guðmundur Ingólfsson, ritari
Afferming á rúllum við Lambafell.
Bílalest með heyrúllur á leið í Lambafell.