Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 42
42 Litli-Bergþór
Til að gefa lesendum Litla-Bergþórs
hugmynd um hvað er að gerast í
málefnum Skálholts, hefur blaðið
fengið leyfi til að birta útdrátt úr skýrslu
stjórnar Skálholts 2015 og fer sá
útdráttur hér á eftir:
Núverandi stjórn Skálholts var skipuð
af kirkjuráði í framhaldi af kirkjuþingi
2014. Stjórnina skipa:
Drífa Hjartardóttir bóndi og
kirkjuþingsmaður, formaður, Kristófer
Tómasson sveitarstjóri Skeiða- og
Gnúpverjahrepps og sr. Þorvaldur Karl
Helgason, fv. Biskupsritari.
Varamenn eru: Jónína Bjartmarz,
lögfræðingur og kirkjuþingsfulltrúi,
Þórarinn Þorfinnsson, bóndi, Spóastöðum
og sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari.
Verkefni sem stjórn Skálholts hefur
fjallað um á árinu eru m.a.:
Skálholtskirkja. Mjög umfangsmiklar viðgerðir eru orðnar nauðsynlegar á dómkirkjunni og hefur
Verkís gert úttekt á ástandi kirkjunnar. Hefur stjórnin, í samstarfi við stjórn Skálholtsfélags hins
nýja, áform um að koma á fót sérstökum sjóði til að standa straum af viðgerðum, m.a. á gluggum
Skálholtskirkju.
Gengið hefur verið frá drögum að samkomulagi milli Skálholtsstaðar og Skálholtssóknar um skiptingu
rekstrarkostnaðar Skálholtskirkju, þar sem Skálholtssókn greiði 20% heildarkostnaðar (þó ekki yfir
30% af heildarinnkomu sóknargjalda á ári hverju) á móti 80% Skálholtsstaðar.
Í drögunum er reiknað með að tekjur af tónleikahaldi í kirkjunni skuli miðast við að lágmarksgjald
fyrir afnot af kirkjunni sé kr. 30.000, eða 10% af innkomu fyrir seldan aðgang, þó að lágmarki kr.
30.000.
Endurskoðað verði hlutfall kostnaðar við störf organista milli sóknanna og Skálholtsstaðar, en
upphaflegur samningur gerði ráð fyrir að sóknirnar greiddu 35% af launum organista á móti 65%
Skálholtsstaðar. Undanfarin ár hefur Skálholtsstaður þó greitt 75% launanna vegna fjárhagserfiðleika
sóknanna, en í ljósi breyttra aðstæðna eftir sameiningu Mosfells- og Skálholtsprestakalla, er ástæða til
að endurskoða hlutfallið.
Vegna þessa þarf einnig að endurskoða starfslýsingu og erindisbréf organistans, sem og vegna þess
að frá hausti 2014 hefur sameiginlegt barnastarf allra sóknanna kallað á skyldumætingu organistans í
u.þ.b. 30 vikur á ári, sem ekki var fyrirséð við ráðningu hans 2009.
Í undirbúningi er einnig samningur Skálholtskirkju og kirkjuvarðar á ársgrundvelli, en hann mun halda
utan um kirkjustarf og jarðarfarir í kirkjunni.
Bókasafn Skálholtsstaðar er varðveitt í turni Skálholtsdómkirkju. Ákveðið hefur verið, í samráði við
Ríkisendurskoðun, að afskrifa safnið að fullu á þrem árum, þar sem þjóðargersemar af þessu tagi
Staðan í Skálholti
- útdráttur úr skýrslu stjórnar Skálholts 2015 -