Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 2
2 1. febrúar 2019FRÉTTIR
exótískir hlutir sem vantar í borgina
DV fagnar þeim
fyrirætlunum Reykja-
víkurborgar að auðga
flóru Íslands með því að flytja
suðræna pálma til landsins. Munu
þeir einnig standa um aldur og
ævi sem minnisvarði um valdatíð
faraóans Dagutkhamun B. Egg-
ertshotep sem færði okkur smá
exótík í gráan hvers-
dagsleikann.
Hér eru fimm
aðrar rándýrar
hugmyndir
sem borg-
arstjórn
ætti að
raungera.
Krókódílar í
Reykjavíkurtjörn
Húsvíkingar vildu
flytja inn krókódíla
fyrir tuttugu árum
en voru stöðvaðir af
ráðherra. Nú er öldin
önnur og tilvalið að
reyna aftur. Tjarnar-
pollurinn fyrir framan
Ráðhúsið yrði fyrirtaks
laug fyrir nokkra
Nílarkrókó-
díla.
Sfinx í
Nauthólsvík
Hvítir sandar eru
þegar til staðar
á ylströndinni í
Nauthólsvík. Staðinn
skortir átakanlega
snefil af mikilfengleik
og einn sfinx yrði
lausnin á því. Nokkur
hundruð tonn af
kalksteini ættu ekki að
vera of stór biti fyrir
borgarsjóð.
Pöndur í
Húsdýragarðinn
Forveri borgarstjóra
lofaði ísbjörnum í
Húsdýragarðinn en
það var hvergi nærri
nógu háleit hugmynd.
Allir helstu dýragarðar
heimsins státa af
risapöndum. Semja
þyrfti sérstaklega við
kínversku ríkisstjórn-
ina um að fá nokkra
bangsa og hugsanlega
gefa eftir skika af
borgarlandi í staðinn.
Grafarvogs-
múrinn
Grafarvogsbúar hafa
um nokkurt skeið
viðrað hugmyndir um
sjálfstæði og myndu
taka hugmyndinni
um múr fagnandi.
Yrði Grafarvogur þá
sjálfstjórnarhérað en
áfram skattland borg-
arinnar. Ekki væri bjóð-
andi að byggja múrinn
úr íslenskri steypu.
Sérpanta þyrfti steina
úr Kínamúrnum,
Berlínarmúrnum og
Grátmúrnum.
Húðflúrlistasafn
í Geldinganesi
Það er með öllu ótækt
að fólk taki þessi
glæsilegu listaverk
með sér í gröfina.
Því verði sett á stofn
húðflúrlistasafn á
Geldinganesi þar sem
flúraðir einstaklingar
verða húðflettir eftir
andlátið og þannig
gerðir ódauðlegir.
Á þessum degi,
1. febrúar
1835 – Þrælahaldi er kastað fyrir róða
á eynni Máritíus.
1896 – Óperan La bohème er
frumsýnd í Torinó, undir stjórn Arturos
Toscanini.
1964 –The Beatles kemst í fyrsta skipti
á topp vinsældalista í Bandaríkjunum,
með laginu I Want To Hold Your Hand.
1979 – Íranski höfuðklerkurinn
Ruhollah Khomeini kemur til Tehran
eftir tæplega fimmtán ára útlegð.
2009 – Fyrsta ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur er mynduð. Hún verður
forsætisráðherra fyrst íslenskra kvenna
og fyrsti opinberlega samkynhneigði
stjórnarleiðtoginn á heimsvísu.
Síðustu orðin
„Það er veggfóðrið eða
ég, annað hvort verður að
fara.“
– Írski rithöfundurinn Oscar Wilde
(1854–1900)
Birgir leiðir grasrótina gegn Bergþóri og Gunnari Braga
B
irgir Þórarinsson, þing-
maður Miðflokksins, vakti
athygli á Alþingi í vikunni
þegar hann steig í pontu
með skilti sem á stóð „Not in My
Parliament“ eða „Ekki á mínu
þingi.“ Auk þess hélt hann kröft-
uga ræðu um mikilvægi þess að
karla á þingi stæðu með sam-
starfskonum sínum og útrýmdu
kynferðisofbeldi gegn þeim. Tók
þingheimur undir þessi skilaboð.
Skiltið er liður í átaki Evrópu-
ráðsins gegn kynbundnu ofbeldi
á þjóðþingum álfunnar og Birgir
vildi koma þeim skilaboðum
áleiðis til Íslands. Birgir tók sæti
Bergþórs Ólasonar í Evrópuráð-
inu á meðan hinn síðarnefndi fór
í leyfi vegna Klaustursummæla
sinna. Hefði mörgum þótt það
undarlegt að sjá Bergþór flytja
þennan boðskap heim ef hann
hefði setið fundinn, í ljósi undan-
genginna atburða, og lítt trúan-
legt. Þá sérstaklega gróf og kyn-
ferðislega hlaðin orð hans um
Lilju Dögg Alfreðsdóttur mennta-
málaráðherra.
Engum dylst að skilaboð Birgis
voru innileg en einnig skýr merki
um að stór hluti flokksmanna vill
sjá breytingar innan flokksstarfs-
ins með lýðræðislegum hætti.
Ef þessar breytingar gangi ekki í
gegn gæti sá hluti misst áhugann
og yfirgefið flokkinn fyrir fullt og
allt. Yrði það sérlega blóðugt í því
uppbyggingarstarfi sem
flokkurinn er í. Að sögn
þess Miðflokksfólks sem
DV hefur rætt við kom
endurkoma Bergþórs og
Gunnars Braga Sveins-
sonar á Alþingi því jafn
mikið á óvart og öllum
öðrum.
Birgir hefur lýst því
yfir að hann vilji að boð-
að verði til flokksráðs-
fundar þar sem stað-
an eftir Klaustur verður
metin. Telur hann ekki
rétt að Bergþór og
Gunnar Bragi geti geng-
ið að stöðum sínum vísum. Birgir
hefur markað sér stöðu sem tals-
maður grasrótar flokksins og er
einnig vinsæll utan hans. Er því
mikil vigt í orðum hans.
Orðið á götunni
Birgir Þórarinsson Skýr krafa um breytingar.
Selma slær
sér upp
L
eikstjórinn og tónlistarkonan Selma Björnsdótt-
ir er byrjuð að slá sér upp með Kolbeini Tuma
Daðasyni, fréttastjóra Vísir.is. Turtildúfurnar hafa
farið á nokkur stefnumót saman en fara sér að
engu óðslega. Á dögunum var Selma í hlutverki veislu-
stjóra á þorrablóti Stjörnunnar og sló í gegn eins
og endranær með dansi og söng. Nýi kærast-
inn mætti að sjálfsögðu á gleðina og
dáðist að drottningunni á sviði.
Heiða hætt
á Stundinni
H
eiða B. Heiðars,
auglýsingastjóri
Stundarinn-
ar, hefur lokið
störfum á miðlinum
sem hún hjálpaði til
við að stofna. Heiða
hóf störf á auglýs-
ingadeild DV árið
2010 og tók síð-
an þátt í stofnun
Stundarinnar í jan-
úar 2015. Aðspurð
hvað tæki við sagði
Heiða: „Núna er ég að
horfa á Netflix, svo
sé ég til.“
Inga Lind og Árni Haukur
skilin
H
eyrst hefur að Inga Lind
Karlsdóttir fjölmiðla-
kona og Árni Hauksson
fjárfestir séu skilin að
skiptum.
Inga Lind býr í einbýlishúsi
þeirra í Mávanesi í Garðabæ, en
þau fluttu í húsið árið 2012. Árni
býr hins vegar í Fossvogi.
Húsið í Mávanesi er 800 fer-
metra hús sem þau byggðu eft-
ir að hafa rifið húsið sem stóð
þar fyrir. Húsið stendur á sjávar-
lóð og þykir sérstaklega fallega
hannað og þá sérstaklega séð úr
fjörunni.
Inga og Árni hafa verið
saman í um tvo áratugi, þau eiga
saman fjögur börn, en Árni átti
eina dóttur fyrir.