Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 10
10 1. febrúar 2019FRÉTTIR - ERLENT H in þaulreynda þingkona Nancy Pelosi er nýr leið- togi Demókrata í full- trúadeild Bandaríkja- þings. Demókratar náðu góðum meirihluta í deildinni í kosn- ingunum í haust og var Pelosi kjörin leiðtogi þeirra í byrjun árs þegar leið að því að þingið tæki til starfa. Hún er stundum nefnd skákmeistarinn þar sem hún þykir slóttugur stjórnmála- maður sem getur lesið vel í stöð- una og áttað sig á hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún á enda mikla reynslu í stjórnmálum að baki því hún hefur setið á þingi áratugum saman, en hún er 78 ára. En þrátt fyrir að leiðtogar flokkanna á þingi fái yfirleitt mikla athygli þá er það önnur þingkona Demókrata sem fær meiri athygli þessar vikurnar en Pelosi. Það er hin unga stjarna Alexandria Ocasio-Cortes frá New York eða dansstjarnan eins og sumir hafa nefnt hana. Svo virðist sem Repúblikönum standi mest ógn af henni því þeir hafa ráðist harkalega á hana á undanförnum vikum en hún hefur staðið allar atlögur þeirra af sér og virðist ekkert bíta á hana. Pelosi og Donald Trump for- seti hafa tekist á undanfarið vegna fjárlagadeilu fulltrúadeildarinn- ar, en Trump hefur þvertekið fyrir að samþykkja fjárlög nema milljörð- um dollara verði varið til að reisa múr á landa- mærunum við Mexíkó. Þetta taka Demókrat- ar ekki í mál. Hafa stálin stinn mæst þegar Pelosi og Trump takast á. Sumir stjórn- málaskýrendur í Washington hafa sótt fyrirmynd í heim kvikmynd- anna þegar þeir lýsa þessum átök- um og einn ráðgjafi Trump lýsti átökum Pelosi og Trump sem hér væri King Kong að etja kappi við Godzilla. Pelosi er í fararbroddi í sókn Demókrata gegn Trump en auk þess hefur hún sýnt flokks- félögum sínum hver það er sem ræður för. Þegar atkvæði voru greidd um hver skyldi vera leið- togi Demókrata í fulltrúadeildinni greiddu nokkrir Demókratar at- kvæði gegn henni og þeir hafa nú fengið að kenna á því. Einn þeirra, Kathleen Rice, fékk til dæmis ekki sæti í hinni valdamiklu dóms- málanefnd deildarinnar þrátt fyrir að röðin væri komin að henni. Politico segir að Pelosi hafi náð fram hefndum gegn ein- um uppreisnarmanna úr röðum Demókrata. Fæddist inn í flokkinn Það má segja að Pelosi hafi fæðst inn í stjórnmál og Demókrata- flokkinn. Faðir hennar var borgar- stjóri í Baltimore. Hún hefur verið áberandi og áhrifamikil í flokkn- um frá því á miðjum átt- unda áratugnum. Hún var fyrsta konan sem var kjörin leiðtogi fulltrúadeildarinnar, en því embætti gegndi hún frá 2007 til 2011 og aftur nú. Mikil reynsla hennar og góður skilningur á valdataflinu í banda- rískum stjórnmálum mun væntanlega koma henni til góða í þeirri bar- áttu sem hún á fyrir höndum gegn Trump. Það var Pelosi sem var ein helsta driffjöðrin að baki því að koma heilbrigðisfrumvarpi Obama, hinu svokallaða Obamacare, í gegnum þingið og hún hefur orð á sér fyrir að vera sannkallaður stórmeistari í valdataflinu á þinginu. „Hún veit hvernig á að telja atkvæði. Hún veit hvernig á að sannfæra fólk vinsamlega, en líka hvernig á að gera það harkalega. Þetta eru hæfileikar sem leiðtogi þarf að hafa. Hún er óárennileg og menn skyldu ekki vanmeta hana,“ sagði meðal annars í tímaritinu The Atlantic á síðasta ári. Vilja endurnýjun Demókrataflokkurinn þráir endurnýjun og Pelosi er frekar skammtímalausn en framtíðar leiðtogi enda vel við aldur. Hún mun því ekki vera í fararbroddi hvað varðar að sýna hvert flokk- urinn stefnir. Ljóst er að mikil undiralda er í flokknum um að nú sé komið að kynslóðaskiptum og eru konur og minnihlutahóp- ar í mikilli sókn innan hans. Þessi þrá eftir nýjum og yngri andlit- um hefur örugglega ekki minnkað við að Pelosi tók við leiðtogastöð- unni og þá staðreynd að næstu menn á eftir henni í valdastigan- um eru þeir Steny Hoyer og James Clyburn, en þeir eru 79 og 78 ára. Ein helsta orkusprauta flokks- ins og ein stærsta vonarstjarna hans þessi misserin er fyrrnefnd Alexandria Ocasio-Corters sem var kjörin á þing í kjördæmi í New York sem nær meðal annars yfir Bronx og Queens. Hún vann yfir- burðasigur í sínu kjördæmi, fékk um 80 prósent atkvæða. Hún er ættuð frá Púertó Ríkó og hefur valdið fjaðrafoki á Capitol Hill. Hún er ný á sjónarsviðinu en hún komst fyrst í kastljósið í júní á síðasta ári þegar hún sigraði Joe Crowley, þungavigtarmann, í for- vali Demókrata. Hún vekur mikla athygli hvar sem hún kemur sem og á samfélagsmiðlum en hún er dugleg við að nota þá. Hún er með 2,5 milljónir fylgjenda á Twitter, fleiri en Pelosi, en á þó langt í land með að ná Trump sem er með 57 milljónir fylgjenda. Óvinir hennar fylgjast grannt með henni og hafa reynt að gera henni skráveifur, en án árangurs enn sem komið er. Nýlega birtu Repúblikanar mynd- band af henni, frá háskólaárum hennar, þar sem hún dansar. Með myndbandinu skrifuðu Repúblik- anar: „Sjáið hvernig nýjasti uppá- haldskommúnisti Bandaríkjanna skemmtir sér.“ En áhrifin urðu allt önnur en lagt var upp með og sú niður- læging sem þetta átti að verða fyrir Ocasio-Cortez varð að sigri henn- ar. Hún svaraði Repúblikönum nýlega með myndbandi á Twitter þar sem hún sést taka nokkur létt dansspor fyrir framan skrifstofu sína. Demókratískur sósíalisti Ocasio-Cortez lýsir sjálfri sér sem „demókratískum sósíalista“ en það er vægast sagt óvenjulegt að heyra þetta í bandarískum stjórn- málum. Hún hefur þegar sýnt að hún lætur ekki nægja að lýsa sjálfri sem slíkri heldur hefur hún viðrað hugmyndir um 70 prósenta skatt á þá efnamestu, sjúkratrygginga- kerfi að evrópskri fyrirmynd og mikla aukningu í framleiðslu á umhverfisvænni orku. Þetta fer illa í marga Repúblikana sem hafa látið hörð orð falla um hana. En margir Bandaríkjamenn virð- ast styðja hugmyndir hennar. Könnun, sem Hill-HarrisX gerði, sýnir að 59 prósent aðspurðra eru jákvæð í garð hugmynda hennar um hátekjuskatt. n • Bókhald • Afstemmingar • Ársreikningar BÓKHALD • Launavinnsla • Árshlutauppgjör • Virðisaukaskattsskil 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 Demókratar á krossgötum Skákmeistarinn og hin dansandi stjarna í sviðsljósinu „Hún er óárennileg og menn skyldu ekki vanmeta hana Nancy Pelosi Fæddist inn í flokkinn. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Alexandria Ocasio-Cortez Vonarstjarna Demókrata.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.