Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 29
Kærkominn vetur1. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ STÍLVOPNIÐ LANGAR ÞIG TIL AÐ SKRIFA? Ritlistarnámskeið Stílvopnsins Stílvopnið er einnar konu fyrir-tæki,“ segir Björg Árnadóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Stílvopnsins, lítils fræðslufyrirtækis sem býður ritlistarnámskeið og ráð- gjöf um ritun og útgáfu. Vinsælustu námskeið Stílvopnsins eru í endur- minningaskrifum, greinarskrifum og skapandi skrifum en þau síðast- nefndu fjalla um að skrifa skáldskap. Björg kennir sjálf öll námskeiðin og veitir ráðgjöfina. Flest námskeiðanna eru opin almenningi en Stílvopnið sérsníður líka námskeið fyrir hópa og vinnustaði. Námskeiðin eru haldin í ReykjavíkurAkademíunni, Þórunnar- túni 2, en einnig víða um land. Ráð- gjöf um ritun og útgáfu er veitt í formi samtala eða bréfaskipta og snýst um ólíkar þarfir ráðþeganna, en oftast um hugmyndavinnu, yfirlestur og umræður um skrifin. Óttinn við auða blaðið yfirstiginn „Ég stofnaði Stílvopnið árið 2015 til að gefa út ferðabók sem ég hafði skrifað um Mývatnssveit. Þegar ég var komin með kennitölu, lógó og vefsíðu datt mér í hug að auglýsa ritlistarnámskeiðin sem ég hafði kennt í lokuðum hópum í áratugi. Nám- skeiðin hafa gengið vonum framar og ég er eiginlega komin í stórútgerð enda virðist fólk þyrsta í að skrifa. Á námskeiðunum öðlast þátttakendur öryggi eftir að hafa yfirstigið ótta sinn við auða blaðið eða skjáinn. Ég legg á það áherslu á öllum námskeiðum mínum að hjálpa fólki að yfirstíga þennan alþekkta ótta við að byrja að skrifa en bæti svo smám saman við æfingum sem fjalla um viðfangsefni hvers námskeiðs.“ Löng reynsla af fræðslumálum Björg er enginn nýgræðingur í fræðslustörfum enda hefur hún kennt síðan hún útskrifaðist sem myndlist- arkennari árið 1983. „Ég fór að kenna myndlist í Svíþjóð en kynntist þar fljótlega ritlistarkennslu sem höfðaði meira til mín. Ég tel þó myndlistar- námið afar góðan grunn fyrir ritlist- arkennara, enda kennir myndlistin okkur að horfa og sjá, sem rithöfund- ar þurfa svo sannarlega að temja sér. Ég lauk námi í blaðamennsku í Sví- þjóð og flutti svo heim árið 1989 og hef skrifað og kennt síðan og nú hefur mér tekist að flétta saman ævistörfin í Stílvopninu,“ segir Björg sem einnig hefur M.Ed.-gráðu í kennslu skapandi greina og skipulagi fræðslu. „Ég hef nær alltaf kennt fullorðnum og var svo heppin um áraþúsundamótin þegar mikil gerjun var í fullorðins- fræðslunni að fá að stýra þremur stofnunum á þessu áhugaverða skólastigi um tólf ára skeið. Að þeirri reynslu bý ég hjá Stílvopninu.“ Byggt á virkni og reynslu þátttak- endanna Á námskeiðum Stílvopnsins er lögð áhersla á kennsluhætti sem byggja á virkni nemenda. „Þegar þú skrifar er það reynsla þín sem skiptir mestu máli, hvort sem þú ert að rifja upp minningar, færa skoðanir þínar í orð eða nota ímyndunaraflið til að skálda nýjan veruleika. Ég hjálpa fólki að sækja efniviðinn inn á við en legg einnig afar mikla áherslu á hlutverk hópsins sem spegil fyrir skrif einstaklinganna. Galdurinn felst að mínu mati í því að fólk fær að vera það sjálft en gefst þó tækifæri til að spegla sig í öðrum,“ segir Björg Árnadóttir um námskeiðin sem hún hefur þróað í nafni fyrirtækis síns, Stílvopnsins. Nánari upplýsingar á stilvopnid.is og á Facebook-síðunni Stílvopnið ehf. Þórunnartún 2, 105 Reykjavík Sími: 899-6917 Netpóstur: bjorg@stilvopnid.is n Engar áhyggjur, þú þarft ekki að liggja á gólfinu þótt þessi ungmenni á ritlistarnám- skeiði Stílvopnsins í Slóveníu hafi gert það. Björg Árnadóttir,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.