Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 30
Kærkominn vetur 1. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ Veturinn er kominn í Nítró Nítró hefur lengi verið þekkt á með-al mótorhjóla- og fjórhjólafólks en það eru færri sem vita að Nítró þjónustar einnig allt sem viðkemur vetrarsporti. Fyrst má nefna Arctic Cat vélsleð- ana sem þeir selja, en Arctic Cat kynnti til sögunnar í vetur einn byltingar- kenndasta vélsleða sem komið hefur fram á sjónarsviðið í langan tíma, en það er Alpha One sem er bara með einn leiðara í búkka og gerir hann einstaklega skemmtilegan í akstri. Að sjálfsögðu býður Arctic Cat áfram upp á M8000, Hardcore og Mountain Cat sem hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt. En Nítró einblínir ekki bara á Arctic Cat því þar er hægt að fá ýmsa slit- og aukahluti fyrir allar tegundir vélsleða t.d. rífara, nagla, meiða, karbíta, sleðahjól (dollies), hita í handföng og ýmislegt fleira. Einnig er hægt að sérpanta véla- og varahluti í nær allar tegundir vél- sleða. Nítró er í umboðsaðili fyrir Kimpex sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegund- ar í vélsleðasportinu með hundruð vöruflokka. Einnig sjá þeir um vélahluti í gegnum CVTech sem sérhæfir sig í þeim. Nýjasta æðið í vetrarsportinu er svokölluð snjóhjól, en það eru torfæru- hjól sem beltabúnaður og skíði eru sett undir. Í Nítró er að finna beltabúnað frá Yeti og Motortrax í nokkrum mismunandi útgáfum. Hlý föt fyrir sportið En það er ekki nóg að eiga góð tæki, því það þarf líka að klæða sig rétt þegar kuldaboli bítur í kinnar. Í versluninni er að finna allan fatnað í vetrarsportið; heilgalla, úlpur, buxur, ásamt skóm, hönskum, undirfötum og hjálmum frá toppframleiðendum eins og FXR, Motorfist, CKX, Airoh og fleirum. Og þeir sem vilja setja öryggið á oddinn þá fást snjóflóðapokar, ýlur og stangir frá BCA í versluninni. Sumarið í Nítró Þegar sól hækkar á lofti fyllist búðin af sumarvörum. Ein allra vinsælasta fermingargjöf síðustu ára hefur verið vespa og hefur Nítró verið í farar- broddi á þeim markaði með Znen bensínsvespurnar og ZTech raf- magnsvespurnar. Það þarf einungis að vera 13 ára til að mega aka þeim og það þarf hvorki að skrá þær né tryggja. Svo er líka gott að minna á CFMoto fjórhjólin og buggy-bílana, Kawasaki og Beta mótorhjólin og allan búnað og fatnað ásamt vara- og aukahlut- um sem viðkoma mótorsportinu. Og þeir sem þurfa að láta gera við tæki þurfa ekki að leita langt yfir skammt því fullkomið verkstæði er á staðnum sem sinnir öllum gerðum og tegundum tækja, hvort sem þau eru á tveimur hjólum, fjórum eða á belti. Nú er sérstakt tilboð á vetrarskoðun fyrir vélsleða á verkstæðinu sem stendur út mars. Versluninn og verkstæðið eru í 1.000 fermetra húsnæði að Urðarhvarfi 4. Opið í versluninni kl. 10.00–18.00 alla virka daga. Heimasíðan nitro.is hefur verið mikið endurnýjuð og er enn í vinnslu. Þar er að finna alla vöruflokka sem verslunin selur. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.