Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 32
Kærkominn vetur 1. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Árið 2011 hófu eigendur Leift-ur verslun að flytja inn Axkid bakvísandi barnabílstólana
og í kjölfarið varð Leiftur vefverslun
að veruleika árið 2013.
„Í dag bjóðum við upp á allar
öryggisvörur fyrir barnafjölskyldur
og meira en það,“ segir Benedikt
Ármannsson hjá Leiftur verslun.
„Axkid barnabílstólarnir eru
sænskir bakvísandi gæðastólar.
Bakvísandi stólar eru meira en fimm
sinnum öruggari en framvísandi
stólar og mælum við með því að
börn séu bakvísandi sem lengst.
Minikid stóllinn er vinsælastur, hann
er fyrir börn 0-25 kg., sem er fyrir
0-5 ára börn, þó að ég hafi séð börn
allt að sjö ára aldri í þeim. Stólarnir
eru langir og þægilegt er fyrir börnin
að sitja í þeim og sitja lengi í þeim,“
segir Benedikt. „Það er þægilegt að
festa stólinn í bílinn og fer lítið fyrir
honum.“
Minikid stóllinn fæst í fimm litum:
svartur, bleikur, blár, rauður og grár.
Mælir Benedikt þó ávallt með því að
nota ungbarnabílstól fyrir börnin til
að byrja með.
Þar sem bílstóllinn vísar bakinu
að bílstjóra, er einnig gott að kaupa
spegil sem festa má á höfuðpúð-
ann, svo hægt sé að fylgjast með
barninu. Fæst hann einnig hjá Leift-
ur verslun.
Kannanir hafa sýnt að allt að 80%
af stólum eru rangt festir.
„Við viljum að fólk máti stólinn í
bílinn og barnið í stólinn. Við að-
stoðum fólk við að festa stólana í
bílinn og fólk getur alltaf komið aftur
ef það er óöruggt með að stólinn
sé ekki rétt festur. Sem dæmi má
nefna þá var einn hjá mér í dag sem
var kominn með nýtt barn í stólinn
og vildi bara vera viss um að allar
festingar væru réttar. Um 80% stóla
eru rangt festir skv. könnunum, en
flestir sem eru með bakvísandi stóla
eru mjög meðvitaðir um stólana hjá
sér og öryggið.“
Firstbike jafnvægishjólin – Börn eru
enga stund að læra að hjóla
Leiftur verslun selur einnig Firstbike
jafnvægishjólin, en með þeim læra
börn að hjóla án hjálpardekkja. Hjól-
in má skoða bæði á firstbike.is eða
leiftur.is. „Hjólin eru ætluð börnum
á aldrinum 2-5 ára, en börn geta
notað þau með lækkunarbúnaði frá
2 ára aldri,“ segir Benedikt.
Hjólin koma í einni stærð, en
týpurnar eru fjórar, í mismunandi
litum og með mismunandi dekkjum.
Á öllum hjólunum er handbremsa.
„Börnin hlaupa eða labba með
hjólunum og ná jafnvæginu ótrúlega
hratt, það er ótrúlegt að sjá 2 ára
barn ná jafnvæginu bara á einum
degi. Þau eru farin að hjóla með þér
bara eftir 1-2 daga.“
Leiftur verslun selur einnig ung-
barnabílstóla og sessur með baki.
„Hjá okkur fæst allt frá snuðum upp
í trampólín,“ segir Benedikt, „við
bjóðum upp á gæðahluti á góðu
verði og handveljum inn gæðavörur í
sölu hjá okkur. Við erum með alls-
konar öryggisbúnað fyrir heimili þar
sem börn eru, hornhlífar, læsingar
og fleira. Við seljum barnavagna
og trampólín sem eru ein af þeim
öruggustu sem hægt er að fá.“
Leiftur verslun selur einnig Snuza
lífvaktina. Hún er sett á bleyju
barnsins og nemur andardrátt
þess og lætur vita ef öndun verður
óregluleg eða hættir. Snuza fæst í
Móðurást, Fífu og hjá Leiftur verslun.
Allt úrvalið má skoða í vefverslun
Leiftur verslun á leiftur.is og bilstol-
ar.is og í barnavöruversluninni Litli
Gleðigjafinn á Akureyri. Hluti af vör-
unum fást í Móðurás, Fífu, Heimkaup
og fleiri stöðum á höfuðborgar-
svæðinu. Hægt er að skoða og máta
barnabílstólana í Mosfellsbæ.
Allar upplýsingar má fá í síma
412-2990 og á netfanginu leiftur@
leiftur.is. n
LEIFTUR VERSLUN:
Börnin eru örugg
í Axkid-barnabílstólunum