Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Page 33
1. febrúar 2019 FRÉTTIR 33
Æsingur vikunnar:
Á
föstudaginn í síðustu viku
greindi DV frá því að Gunn
ar Bragi Sveinsson, þing
maður Miðflokksins, hefði
logið til um minnisleysi sitt varð
andi kvöldið örlagaríka á barnum
Klaustri í nóvember. Daginn eftir
ætlaði fréttastofa Bylgjunnar að
toppa það og sagði að Gunnar Bragi
hefði einnig sagt ósatt um bindindi
sitt eftir Klaustursmálið. Fréttin var
illa unnin og kom það á daginn að
allt sem þar var sagt var uppspuni
frá rótum. Upp hófst mikill æsingur
meðal stuðningsmanna Gunnars
Braga, sem var viðbúið í kjölfar fyrri
Klaustursæsings. Á mánudaginn
var Gunnar Bragi orðinn fórnar
lamb vondra fjölmiðla og flestir,
ef ekki allir, voru búnir að gleyma
æsingnum sem átti sér stað í vik
unni á undan.
Nýr æsingur blossaði upp á
þriðjudagskvöldið. Þá var greint frá
því í kvöldfréttum RÚV að til stæði
að planta tveimur pálmatrjám utan
dyra í nýrri íbúðabyggð sem mun
rísa austan við Sæbrautina. Yrðu
þau inni í sérstökum hitastýrðum
glerbúrum. Um er að ræða listaverk
eftir þýsku listakonuna Karin Sand
er. Hjálmar Sveinsson, borgarfull
trúi og formaður dómnefndarinn
ar sem valdi verkið, mætti stoltur
í fréttatímann og sagði að verkið
mundi verða kennileiti fyrir nýja
hverfið. Undir lok fréttarinnar kom
fram að kostnaðurinn við pálma
trén tvö verði um 140 milljónir.
Hver veit nema stór hluti virkra
í athugasemdum, með takmarkaða
samúð með listum og meirihlut
anum í Reykjavík, hafi kastað upp
kvöldverðinum. Aðrir fjölmiðlar
voru aðeins nokkrar mínútur að
grípa töluna 140 milljónir á lofti
og birta fréttir. Fyrir hádegi á mið
vikudaginn var kapphlaup um
að hæðast að pálmatrjánum. Var
meirihlutinn sakaður um óráðsíðu,
bruðl og fíflagang. Meira að segja
Landgræðslan hæddist að borgar
yfirvöldum og rifjaði upp stráin
frægu í Nauthólsvík. Garðyrkju
maður sagði í viðtali við DV að það
væri verið að „kvelja“ plöntur.
Eftir hádegi fóru aðstandendur
pálmatrjánna að tjá sig um málið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar,
sem gátu ekki þvegið hendur sín
ar af málinu, sögðu að lóðarhafar
myndu greiða fyrir verkið með
innviðagjaldi. Rök sambærileg því
og að segja að Marel sé að borga
rekstrarkostnað menntaskóla í
gengum innheimtu skatta. Það
skapaðist nokkur úlfúð innan Sam
fylkingarinnar vegna málsins, sak
aði Kristín Soffía Jónsdóttir borgar
fulltrúi grasrót flokksins um að
taka þátt í æsingnum. Logi Einars
son, formaður flokksins, maldaði í
móinn. Ólöf Kristín Sigurðardóttir,
safnstjóri Listasafns Reykjavíkur,
sem stóð að samkeppninni um
verkið, sagði það ekki dýrt og
raunhæft verð fyrir útilistaverk.
Æsingurinn var að mestu leyti bú
inn um kvöldið, en hélt áfram á síð
um Morgunblaðsins og mun líkleg
ast gera það áfram fram yfir helgi.
Nema til komi ný vending í málinu.
Annars sjáum við pálmatrén ekki
fyrr en í næsta áramótaskaupi.
Pálmatrén
Raðauglýsingar