Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 51
FERÐALÖG 511. febrúar 2019
Ó
hætt er að fullyrða að New
York sé borg sem allir verða
að heimsækja að minnsta
kosti einu sinni. New York
hefur eitthvað fyrir alla, sama
hver maður er, hvaðan maður
kemur eða hverju maður hefur
áhuga á. Hér má finna yfirlit yfir
nokkra staði sem verða að telj-
ast ómissandi fyrir þá sem eru
að heimsækja Stóra eplið í fyrsta
skipti. Rétt er þó að benda á að
eingöngu er einblínt á Manhattan-
eyju og listinn er engan veginn
tæmandi, enda dugir varla ævin til
að uppgötva borgina. New York er
ein af þeim borgum sem hægt er
að heimsækja aftur og aftur.
Það liggur beinast við að
fyrsti áfangastaðurinn sé Times
Square, miðpunktur leikhúsa-,
bíóhúsa- og skemmtanahverfis-
ins og eitt helsta kennileiti borg-
arinnar. Upplifunin er einfaldlega
ómissandi. Háhýsin, mannmergð-
in og risavaxin auglýsingaskiltin
fá þig til að finnast sem maður sé
staddur í nafla alheimsins, og eftir
að rökkva tekur breytist svæðið
í einhvers konar neonljósa-
draumaheim. Í hliðargötunum
má finna flest stærstu Broadway-
leikhúsin og það er í raun sama
hvað mann langar að gera gera,
sjá, borða eða drekka. Allt er inn-
an seilingar.
Búðaráp er ómissandi í hug-
um margra Íslendinga en í raun er
ekki hægt að benda á eitt ákveðið
svæði í New York, heldur á hvert
hverfi í borginni sitt eigið verslun-
arhverfi. Í kringum Times Square
má finna flestar af þeim verslunar-
keðjum sem eru vinsælar á með-
al Íslendinga. East Village, West
Village, Midtown og Soho eru
sömuleiðis vinsæl hverfi. Þar má
finna vinsælar bandarískar versl-
anakeðjur á borð við Target, Mars-
halls og JC Penney að ógleymdri
Macy’s-versluninni frægu. Stór-
verslanir á borð við Tiffany’s,
Barneys, Bloomingdale og Saks er
síðan að finna á Fifth Avenue.
Heimsókn á 86. hæð Empire
State skýjakljúfsins er einnig
ómissandi, og þaðan er 360 gráðu
útsýni yfir Manhattaneyju. Varla er
hægt að finna betri bakgrunn fyrir
myndatökur fyrir Instagram eða
Snapchat, og nú er einnig hægt
að taka lyftuna upp á 102. hæð
byggingarinnar. Reynsluboltar
mæla með að komið sé snemma
að morgni til að fylgjast með sól-
arupprás eða seint að kvöldi til að
virða fyrir sér sólsetrið, og bóka
miða á heimasíðu byggingarinnar,
esbnyc.com.
Frelsisstyttan á Liberty Island
er að sjálfsögðu á listanum en
heimsókn þangað getur tekið tvær
til þrjár klukkustundir. Til að spara
tíma og sleppa við að greiða að-
gangseyri og standa í löngum bið-
röðum, þá er tilvalið að skella sér í
ókeypis útsýnisferð með Staten Is-
land-ferjunni.
Hægt er eyða heilu dögunum
í almenningsgarðinum Central
Park. Skreppa í lautarferð með
nesti og liggja í sólbaði á góðviðris-
dögum, fylgjast með götulista-
mönnum, skella sér í bátsferð á
vatninu, leigja hjól eða bara fylgj-
ast með mannlífinu.
Fjölmenningarhverfin eru
þónokkur í New York og heimsókn
í Chinatown svíkur engan. Ljósker-
in, kínversku merkingarnar, örtröð-
in og óskipulagið er óneitanlega
framandi upplifun. Viltu kaupa lif-
andi skjaldböku eða fá þér ferskan
ál í hádegismat? Á hverju horni er
að finna undarlegar sérverslanir,
lítil kínversk apótek og þá þarf vart
að nefna veitingastaðina og kaffi-
húsin. Eftir heimsókn í Kínahverfið
er síðan tilvalið að heimsækja Little
Italy sem er í næsta nágrenni og fá
sér alvöru „gelato“ eða pítsusneið
og rauðvínsglas.
Það er enginn skortur á söfn-
um í New York og líklega verður að
teljast óraunhæft að ætla að heim-
sækja þau í einni ferð. Þau listasöfn
sem líklega teljast með þeim allra
vinsælustu eru The Metropolitan
Museum of Art, The Museum of
ModernArt (Moma) og Guggen-
heim. Önnur vinsæl söfn eru Amer-
ican Museum of Natural History,
sædýrasafnið New York Aquari-
um að ógleymdu Minningarsafn-
inu 9/11 Memorial & Museum sem
byggt var í kringum rústir World
Trade Center.
Íþróttaaðdáendur verða að sjálf-
sögðu ekki sviknir af heimsókn
á einn frægasta leikvang heims,
Madison Square Garden. Varla er
til betri leið til að upplifa sig eins
og heimamann með því að að fara
á alvöru amerískan hafnaboltaleik
með New York Knickerbockers eða
„The Knicks.“ n
Sjáðu úrvalið á goddi.is
Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
Sa na- og
gistitun ur ása t
viðarkyntum pottum
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Margar gerðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð aðeins 58.500 kr.
Þessir staðir eru ómissandi
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Times Square er ótrúlegur áfangastaður
Það er ó issandi að heimsækja Chinatown í New York
MYNDIR GUÐFINNA/DV