Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 51
FERÐALÖG 511. febrúar 2019 Ó hætt er að fullyrða að New York sé borg sem allir verða að heimsækja að minnsta kosti einu sinni. New York hefur eitthvað fyrir alla, sama hver maður er, hvaðan maður kemur eða hverju maður hefur áhuga á. Hér má finna yfirlit yfir nokkra staði sem verða að telj- ast ómissandi fyrir þá sem eru að heimsækja Stóra eplið í fyrsta skipti. Rétt er þó að benda á að eingöngu er einblínt á Manhattan- eyju og listinn er engan veginn tæmandi, enda dugir varla ævin til að uppgötva borgina. New York er ein af þeim borgum sem hægt er að heimsækja aftur og aftur. Það liggur beinast við að fyrsti áfangastaðurinn sé Times Square, miðpunktur leikhúsa-, bíóhúsa- og skemmtanahverfis- ins og eitt helsta kennileiti borg- arinnar. Upplifunin er einfaldlega ómissandi. Háhýsin, mannmergð- in og risavaxin auglýsingaskiltin fá þig til að finnast sem maður sé staddur í nafla alheimsins, og eftir að rökkva tekur breytist svæðið í einhvers konar neonljósa- draumaheim. Í hliðargötunum má finna flest stærstu Broadway- leikhúsin og það er í raun sama hvað mann langar að gera gera, sjá, borða eða drekka. Allt er inn- an seilingar. Búðaráp er ómissandi í hug- um margra Íslendinga en í raun er ekki hægt að benda á eitt ákveðið svæði í New York, heldur á hvert hverfi í borginni sitt eigið verslun- arhverfi. Í kringum Times Square má finna flestar af þeim verslunar- keðjum sem eru vinsælar á með- al Íslendinga. East Village, West Village, Midtown og Soho eru sömuleiðis vinsæl hverfi. Þar má finna vinsælar bandarískar versl- anakeðjur á borð við Target, Mars- halls og JC Penney að ógleymdri Macy’s-versluninni frægu. Stór- verslanir á borð við Tiffany’s, Barneys, Bloomingdale og Saks er síðan að finna á Fifth Avenue. Heimsókn á 86. hæð Empire State skýjakljúfsins er einnig ómissandi, og þaðan er 360 gráðu útsýni yfir Manhattaneyju. Varla er hægt að finna betri bakgrunn fyrir myndatökur fyrir Instagram eða Snapchat, og nú er einnig hægt að taka lyftuna upp á 102. hæð byggingarinnar. Reynsluboltar mæla með að komið sé snemma að morgni til að fylgjast með sól- arupprás eða seint að kvöldi til að virða fyrir sér sólsetrið, og bóka miða á heimasíðu byggingarinnar, esbnyc.com. Frelsisstyttan á Liberty Island er að sjálfsögðu á listanum en heimsókn þangað getur tekið tvær til þrjár klukkustundir. Til að spara tíma og sleppa við að greiða að- gangseyri og standa í löngum bið- röðum, þá er tilvalið að skella sér í ókeypis útsýnisferð með Staten Is- land-ferjunni. Hægt er eyða heilu dögunum í almenningsgarðinum Central Park. Skreppa í lautarferð með nesti og liggja í sólbaði á góðviðris- dögum, fylgjast með götulista- mönnum, skella sér í bátsferð á vatninu, leigja hjól eða bara fylgj- ast með mannlífinu. Fjölmenningarhverfin eru þónokkur í New York og heimsókn í Chinatown svíkur engan. Ljósker- in, kínversku merkingarnar, örtröð- in og óskipulagið er óneitanlega framandi upplifun. Viltu kaupa lif- andi skjaldböku eða fá þér ferskan ál í hádegismat? Á hverju horni er að finna undarlegar sérverslanir, lítil kínversk apótek og þá þarf vart að nefna veitingastaðina og kaffi- húsin. Eftir heimsókn í Kínahverfið er síðan tilvalið að heimsækja Little Italy sem er í næsta nágrenni og fá sér alvöru „gelato“ eða pítsusneið og rauðvínsglas. Það er enginn skortur á söfn- um í New York og líklega verður að teljast óraunhæft að ætla að heim- sækja þau í einni ferð. Þau listasöfn sem líklega teljast með þeim allra vinsælustu eru The Metropolitan Museum of Art, The Museum of ModernArt (Moma) og Guggen- heim. Önnur vinsæl söfn eru Amer- ican Museum of Natural History, sædýrasafnið New York Aquari- um að ógleymdu Minningarsafn- inu 9/11 Memorial & Museum sem byggt var í kringum rústir World Trade Center. Íþróttaaðdáendur verða að sjálf- sögðu ekki sviknir af heimsókn á einn frægasta leikvang heims, Madison Square Garden. Varla er til betri leið til að upplifa sig eins og heimamann með því að að fara á alvöru amerískan hafnaboltaleik með New York Knickerbockers eða „The Knicks.“ n Sjáðu úrvalið á goddi.is Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550 Sa na- og gistitun ur ása t viðarkyntum pottum Sjáðu úrvalið á goddi.is Margar gerðir Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð aðeins 58.500 kr. Þessir staðir eru ómissandi Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Times Square er ótrúlegur áfangastaður Það er ó issandi að heimsækja Chinatown í New York MYNDIR GUÐFINNA/DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.