Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 104.900 kr. á mann í tvíbýli.
Ferðir til og frá Glasgow flugvelli innifaldar.
sp
ör
eh
f.
Glasgow í jólabúningi
NÝ FERÐ!
Í ár bjóðum við í fyrsta sinn upp á skemmtilega
aðventuferð til Glasgow. Á þessum árstíma er borgin
klædd í fallegan jólabúning því jólamarkaðir, jólailmur
og jólaljós einkenna Glasgow sem hefur í mörg ár verið
ein besta og hagstæðasta borgin til að versla í fyrir jólin.
Möguleiki á dagsferð til Edinborgar.
29. nóvember - 2. desember
Fararstjórar: Carola & Gúddý
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Mikil spenna ríkir fyrir leik íslenska
kvennalandsliðsins gegn því þýska í
undankeppni HM í knattspyrnu sem
leikinn verður klukkan 14.55 á
Laugardalsvelli í dag. Leikurinn er
einn sá stærsti í sögu kvennalands-
liðsins, en með sigri tekur það stórt
skref í átt að heimsmeistaramótinu í
Frakkalandi á næsta ári. Uppselt er
á leikinn og er það í fyrsta sinn sem
uppselt er á leik kvennalandsliðsins
hér á landi, en Laugardalsvöllur
tekur um 9.800 manns í sæti. Áhorf-
endamet kvennalandsliðsins mun
því falla í dag, en þetta er langtum
meiri fjöldi en sótt hefur leiki
kvennalandsliðsins síðustu ár. Síð-
ast var sett met þegar ríflega 7.000
manns sáu leik liðsins við Brasilíu í
aðdraganda EM í fyrra.
Ómar Smárason, markaðsstjóri
KSÍ, segir að talsverður viðbúnaður
sé í kringum leikinn. „Þetta er í
raun sami viðbúnaður og alltaf þeg-
ar uppselt er á landsleik á Laugar-
dalsvelli. Það er í sjálfu sér bara box
sem við þurfum að tikka í varðandi
þjónustu, öryggisgæslu og annað.
Þegar þessi fjöldi er á leikjum verð-
ur að vera ákveðið viðbragð,“ segir
Ómar.
Gríðarlegur áhugi í Þýskalandi
Mikill fjöldi starfsmanna á vegum
þýska ríkissjónvarpsins verður við-
staddur leikinn í dag, en gríðarlegur
áhugi er fyrir leiknum í Þýskalandi.
Alls verður þýska ríkissjónvarpið
með um 70 starfsmenn á leiknum.
Til marks um mikinn áhuga þar í
landi var ákveðið að breyta tíma-
setningu leiksins að ósk þýska ríkis-
útvarpsins. „Ég þekki ekki ná-
kvæmlega ástæður þess en þýska
sjónvarpið hefur mikil áhrif á þetta
líkt og sjónvarpsrétthafar hafa oft.
Það óskaði eftir þessu og enginn á
vegum KSÍ eða Stöð 2 Sport gerði
athugasemd við það,“ segir Ómar og
bætir við að leikurinn verði í opinni
dagskrá á Stöð 2 Sport. „Það er ekki
regla að leikir sem þessir séu í op-
inni dagskrá en það var hins vegar
samkomulagið milli okkar og þeirra
að hafa það þannig,“ segir Ómar.
Spurður hvort margir fjölmiðla-
menn verði að störfum í kringum
leikinn kveður Ómar nei við. Þó
verði um tíu fjölmiðlamenn frá
nokkrum löndum. „Það verða tíu
fjölmiðlamenn frá hinum ýmsu lönd-
um, þar á meðal Bretlandi, Banda-
ríkjunum og Frakklandi. Þess utan
verða auðvitað ýmsir tæknimenn,
lýsendur og aðrir starfsmenn frá
þýska sjónvarpinu,“ segir Ómar.
Tólfan hitar upp á Ölveri
Fyrir leik kvennalandsliðsins í
dag verður stuðningsmannasvæði á
bílastæðunum fyrir framan Laugar-
dalsvöll þar sem áhorfendur geta
hitað upp fyrir leikinn og byggt upp
stemningu. Að sögn Ómars er vert
að benda fólki á að talsvert færri
bílastæði standa til boða sökum
stuðningsmannasvæðisins. KSÍ
bendi fólki á að nýta sér almenn-
ingssamgöngur.
Upphitun mun hefjast um tveim-
ur klukkustundum fyrir leik og er
fólk hvatt til að mæta tímanlega. Á
svæðinu verður boðið upp á tónlist-
aratriði, blöðrulistamenn, knatt-
þrautir, andlitsmálningu og hoppu-
kastala. Þá mun Jóhanna Guðrún
auk annarra tónlistarmanna halda
uppi fjörinu fram að leik.
Á sama tíma verða meðlimir Tólf-
unnar með upphitun á Ölveri í
Laugardal. Hilmar Jökull Stefáns-
son, einn forsprakka Tólfunnar, seg-
ir að gríðarleg spenna sé meðal
meðlima Tólfunnar fyrir leiknum.
„Við erum allir gríðarlega spennir
og höfum mikla trú á stelpunum í
dag. Við ætlum að hittast á Ölveri
klukkan tólf og förum síðan á stuðn-
ingsmannasvæðið um klukkutíma
fyrir leik. Þar ætlum við að reyna að
gíra fólk almennilega upp í leikinn,“
segir Hilmar, sem er vongóður um
að íslenska liðinu takist að ná í góð
úrslit í leiknum í dag. „Við í Tólfunni
munum allavega syngja og tralla all-
an leikinn og styðja þétt við bakið á
þeim. Það er vonandi að þær nái í
góð úrslit og taki skref í átt að HM,“
segir Hilmar.
Athygli vakin á Parkinson
Fyrir leikinn í dag munu ellefu ís-
lenskar konur, sem allar glíma við
Parkinsonsjúkdóminn, ganga inn á
völlinn. Þar munu þær standa sam-
hliða íslenska landsliðinu á meðan
þjóðsöngurinn er leikinn, en þetta
er gert til að vekja athygli á sjúk-
dómnum. „Eins og sjást mun í dag
þarf að leiðrétta þann misskilning
að Parkinson sé öldrunarsjúkdóm-
ur, en því miður er fólk á öllum aldri
að greinast með sjúkdóminn,“ segir
Vilborg Jónsdóttir, formaður Park-
insonsamtakanna, sem vonast til að
með þessu verði fólk betur meðvitað
um sjúkdóminn. Þá sé afar ánægju-
legt að vekja athygli á málefninu
þegar nýtt áhorfendamet verður
slegið á kvennalandsleik á Laugar-
dalsvelli.
Mikil stemning vegna landsleiksins
Áhorfendamet kvennalandsliðsins á Laugardalsvelli fellur í dag Um 70 manns á vegum þýska
ríkisútvarpsins starfa í kringum útsendingu á leiknum Upphitun hefst um tveimur tímum fyrir leik
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalsvöllur Þýska landsliðið æfði á vellinum í gær. Búast má við um 10.000 manns á leiknum í dag.
„Við erum með sömu ráð og alltaf.
Það er að mæta tímanlega og
leggja löglega í eitthvert af þeim
1.700 bílastæðum sem eru í kring-
um völlinn,“ segir Kolbrún Jóna-
tansdóttir, framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, í sam-
tali við Morgunblaðið. Að hennar
sögn mega ökumenn sem leggja
ólöglega búast við um tíu þúsund
króna sekt. Eftirlit á vegum Bíla-
stæðasjóðs vegna leiksins verður
sambærilegt við það sem notast er
við í kringum aðra stórviðburði á
Laugardalsvelli. „Það hefur ekki
verið svona mikill viðbúnaður áður
vegna kvennaleiks. Við höfum náð
góðum tökum á karlaleikjunum
enda veit fólk af eftirlitinu og
hættir þar af leiðandi að leggja
ólöglega,“ segir Kolbrún og bætir
við að bifreiðum sem lagt er ólög-
lega á stórviðburðum fari ört
fækkandi. „Mér hefur fundist
þetta vera mikið betra undanfarið.
Fólk er að læra þetta, sem er gott,
enda viljum við ekki að fólk sé að
leggja svona,“ segir Kolbrún.
Vilja að fólk mæti tímanlega
BÍLASTÆÐASJÓÐUR VERÐUR MEÐ EFTIRLIT Á LEIKNUM
Hörður Felixson,
fyrrverandi skrif-
stofustjóri Trygg-
ingamiðstöðvar-
innar, lést á
dvalarheimilinu
Skjóli í Reykjavík
að morgni dags 29.
ágúst síðastliðinn,
86 ára að aldri.
Hörður fæddist í
Reykjavík 25.10.
1931. Foreldrar
hans voru Ágústa
Bjarnadóttir, kenn-
ari og húsmóðir, f.
2.8. 1900, d. 3.10.
1978, og Felix Pétursson bókari, f.
7.2. 1900, d. 3.9. 1987.
Hörður var stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og lauk
prófum í viðskiptafræði frá Há-
skóla Íslands. Hann starfaði alla
tíð í Tryggingamiðstöðinni, frá
1959 til 1999, lengst af sem skrif-
stofustjóri.
Hörður var mikill íþróttamaður
og félagsmaður. Hann varð marg-
faldur Íslands- og bikarmeistari
með KR í knattspyrnu og reyndar
einnig Íslandsmeistari með KR í
handknattleik 1958 ásamt því að
sinna félagsstörfum fyrir félagið.
Þá lék hann 11 landsleiki fyrir Ís-
lands hönd í knattspyrnu. Þar á
meðal spilaði hann með bræðrum
sínum, Bjarna og
Gunnari, í landslið-
inu 1963 á móti
Bretlandi í undan-
keppni Ólympíu-
leikanna í Tókýó
1964. Þetta var í
fyrsta sinn í knatt-
spyrnusögunni sem
þrír bræður léku
saman í landsleik og
var það skráð í
heimsmetabók
Guinness.
KR naut krafta
Harðar í áratugi og
var hann sæmdur
gullmerki félagsins fyrir störf sín
á þeim vettvangi. Auk þess tók
hann virkan þátt í félagsstörfum
og gegndi trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, Seltjarnar-
nesbæ og fleiri samtök og félög.
Hörður lætur eftir sig eigin-
konu, Kolbrúnu Skaftadóttur, og
þrjú uppkomin börn, Skafta,
Ágústu og Hörð Felix, ásamt
barnabörnum og barnabarnabörn-
um.
Útför Harðar verður gerð frá
Neskirkju miðvikudaginn 5.
september kl. 15. Liðsmenn KR
leika með sorgarbönd vegna frá-
falls Harðar þegar þeir sækja FH
heim í Pepsi-deild karla á morgun,
sunnudag.
Andlát
Hörður Felixson
Staðfest hefur verið með greiningu á
vegum Hafrannsóknastofnunar að
þrír af fjórum löxum sem veiddust á
Vestfjörðum nýlega og voru úr eldi.
Laxarnir voru úr Laugardalsá í Ísa-
fjarðardjúpi, Selá í Skjaldfannardal
og Staðará í Steingrímsfirði. Fjórða
sýnið sem rannsakað var reyndist
vera náttúrulegur lax úr Hvanna-
dalsá í Ísafjarðardjúpi.
Á heimasíðu Hafrannsóknastofn-
unar kemur fram að þessi fjöldi
eldislaxa í ám á þessum svæðum sé í
samræmi við það sem áhættumat um
erfðablöndun gerir ráð fyrir miðað
við núverandi umfang sjókvíaeldis
hér við land. „Hlutfall eldislaxa í
þessum ám er, miðað við þennan
fjölda laxa, vel undir þeim mörkum
að erfðasamsetningu villtu stofnanna
sé hætta búin,“ segir á heimasíðunni.
Hafrannsóknastofnun annast
ýmsa þætti varðandi vöktun á lax-
veiðiám til að fylgjast með því í hve
miklu mæli strokfiskar úr eldi skila
sér í veiðiár. Hluti af þeirri vöktun er
að laxar sem veiðast og eru grunaðir
um að vera af eldisuppruna eru
sendir í svokallaða arfgerðagrein-
ingu á erfðarannsóknastofu Matís
ohf.
Þrír eldis-
laxar úr
veiðiám
Vel undir mörkum