Morgunblaðið - 01.09.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Miðað við íbúafjölgunina undanfarið
gæti íbúafjöldi Árborgar verið farinn
að nálgast ellefu þúsund árið 2021.
Nú stendur yfir mesta uppbygg-
ingarskeið í sögu svæðisins.
Sveitarfélagið hefur úthlutað 100
lóðum frá 2012 og einkaaðilar selt
um 115 lóðir. Á sama tímabili hafa
200 íbúðir verið byggðar á lóðum í
eigu sveitarfélagsins en 450 íbúðir á
lóðum í eigu einkaaðila.
Miðað við háspá gætu íbúarnir
verið orðnir um 10.800 árið 2021.
Bárður Guðmundsson, skipulags-
og byggingarfulltrúi Árborgar, segir
áformað að byggja um 200 íbúðir ár
hvert árin 2019 til 2021.
Styrkja vatnsveitukerfið
Þessi vöxtur kalli á nýja innviði.
Verið sé að undirbúa nýjan grunn-
skóla og leikskóla
og sækja meira
vatn, heitt og
kalt, og almennt
verið að stækka
dreifikerfin, bæta
gatnagerð o.s.frv.
Gísli Halldór
Halldórsson, bæj-
arstjóri Árborg-
ar, segir vöxt
sveitarfélagsins
vera áskorun.
„Við verðum auðvitað að vanda
okkur við uppbyggingu innviða
sveitarfélagsins og nýta tækifærið.
Við erum að þróast frá því að vera
bær yfir í að vera borg,“ segir Gísli.
„Við erum til dæmis að undirbúa
byggingu nýs grunnskóla. Skóla-
kerfið hefur sprengt utan af sér. Við
erum með mjög öflugt skólakerfi og
erum að byggja skóla. Það er eitt af
stóru verkefnunum sem við erum að
takast á við.“
Stjórnsýslan undirmönnuð
Gísli Halldór segir þróunina kalla
á fjölgun starfsmanna hjá Árborg.
„Þegar íbúafjölgunin er svona
mikil er stjórnsýsla sveitarfélagsins
víða orðin undirmönnuð. Það þarf að
tryggja nægan mannskap til að
sinna öllum verkefnum. Við erum
auðvitað líka, eins og frægt er orðið,
að taka þátt í að byggja upp nýjan
miðbæ með fyrirtækinu Sigtúni.
Nýja miðbæjarskipulagið hefur ver-
ið samþykkt. Það felast líka í því
gríðarleg tækifæri til að byggja upp
Selfoss og Árborg sem áhugaverðan
viðkomustað og góðan stað til að búa
á,“ segir Gísli Halldór.
Hann segir Árborg hafa mikið að-
dráttarafl. Þar sé góð þjónusta, nægt
landrými og hagkvæmara húsnæði.
„Ég held að á næstu 20 árum muni
Árborg telja einhverja tugi þúsunda
íbúa. Að við séum að stefna í kannski
30 þúsund íbúa á tímabilinu. Hér er
öll þjónusta til staðar og það er að
myndast dýnamískt og öflugt sam-
félag með kröftugum miðbæ. En það
þarf auðvitað að vanda sig. Því
skipulag í borg þarf að vera gott til
að hún nái að þróast vel sem slík.“
Eiga lönd í Flóahreppi
„Árborg er miðstöð fyrir allt
Suðurlandið. Við eigum mikið land-
rými til að byggja á og eigum reynd-
ar líka lönd í Flóahreppi þar sem
væri æskilegt að geta byggt. Það
þarf þá að leysa ýmis mál varðandi
sveitarfélagamörk. Þau eru í sitt-
hvoru sveitarfélaginu.
Ég tel að við séum í góðu færi til
þess að byggja upp borgarmenn-
ingu. Við þurfum að vera vakandi
fyrir atvinnutækifærum. Margir íbú-
ar Árborgar starfa á höfuðborgar-
svæðinu. Við höfum því töluverð
tækifæri í uppbyggingu skrifstofu-
húsnæðis og ýmissa atvinnutæki-
færa. Við erum með rómaða þjón-
ustu, meðal annars í skólakerfinu, og
hér er gott að ala upp börn. Maður
heyrir aðflutt fólk tala um að hér
sparist upp undir 2-3 tímar á dag í
ferðalög og skutlið á börnunum.“
Miklir möguleikar í flugvelli
Gísli Halldór segir verið að skoða
hugmyndir um uppbyggingu flug-
vallar á Árborgarsvæðinu.
„Einkaaðilar og verkfræðistofur
eru að skoða það af alvöru en Árborg
hefur ekki verið með það mál á sinni
könnu, eða barist fyrir því enn þá.
Þessir aðilar eru að byrja að kynna
okkur þessar hugmyndir. Ég held að
það séu gríðarlegir möguleikar í
þessu.
Í fyrsta lagi erum við með öfluga
höfn í Þorlákshöfn sem myndi geta
styrkt slíka uppbyggingu. Það getur
skapast gott samband milli flugvall-
ar og hafnar.
Í öðru lagi er gríðarlegur ferða-
mannastraumur um Suðurlandið.
Það mælir því ekkert á móti því að
þeir lendi á Suðurlandi og fari þaðan
í ferðalög, frekar en að lenda á Kefla-
víkurflugvelli. Það gæti létt á Kefla-
víkurflugvelli sem er náttúrulega
orðinn ásetinn.
Án þess að hafa skoðað þessar til-
lögur ítarlega held ég að það gætu
falist í þessu mikil tækifæri,“ segir
Gísli Halldór.
Stefna á þrjátíu þúsund íbúa
Bæjarstjóri Árborgar spáir allt að þreföldun íbúafjöldans á næstu 20 árum Nýir skólar byggðir
Segir mikil tækifæri í nýjum alþjóðaflugvelli Þá geti nýr miðbær reynst lyftistöng fyrir svæðið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfoss Fjöldi íbúða er nú í smíðum í Árborg. Margir nýju íbúanna koma frá höfuðborgarsvæðinu.
Íbúafjöldi í Árborg 2015-2018
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
Íbúafjöldi Spá:* 3,5% 6% árleg fjölgun
2015
1. ársfj.
2016
1. ársfj.
2017
1. ársfj.
2018
1. ársfj.
2018
2. ársfj.
2019
spá
2020
spá
2021
spá
Heimild: Hagstofa Íslands
*Spá Sveitarfélagsins Árborgar
8.090 8.280 8.550
9.100 9.230
9.981-
10.722
Fjölgun 1.
ársfj. 201
5-2. ársfj.
2018
14,1%
Gísli Halldór
Halldórsson
Húsnæðisverð í Árborg 2015-2018*
Fermetraverð, þúsundir króna
300
250
200
150
100
50
0
Fjölbýli Sérbýli
2015 2016 2017 2018*
Heimild: Þjóðskrá Ísl.
*Janúar-ágúst 2018.
178
164
208208
245
295
274
288
Elvar Orri
Hreinsson,
sérfræðingur
hjá Íslands-
banka, bend-
ir á að fast-
eignaverð á
Selfossi hafi
hækkað
hraðar en á
höfuðborg-
arsvæðinu á
síðustu árum.
„Frá og með árinu 2015 hefur
íbúðaverð á Selfossi, hvort sem
horft er til sérbýlis eða fjölbýlis,
hækkað um 14-15% að meðaltali
á ári. Til samanburðar hefur
hækkunin á höfuðborgarsvæð-
inu verið 10-11% á sama tímabili.
Íbúðaverð á Selfossi hækkaði því
meira en á höfuðborgarsvæðinu.
Mesta hækkunin á Selfossi var í
fyrra. Þá hækkaði meðal-
fermetraverð, samkvæmt kaup-
samningum á Selfossi, um 42% í
fjölbýli og 18% í sérbýli.“
Elvar Orri segir rétt að hafa í
huga að meiri verðsveiflur séu í
viðskiptum með fjölbýli á Sel-
fossi enda liggi þar færri samn-
ingar að baki. Hann segir að-
spurður að svo miklar hækkanir
gangi ekki til lengri tíma. Þær
séu miklar í sögulegu tilliti.
„Ólíklegt verður að teljast að
áðurgreindar hækkanir haldi
áfram til lengri tíma og benda
tölur fyrir 2018 til að þegar sé
farið að hægja á hækkun íbúða-
verðs á Selfossi.“
Hækkaði um
14-15% á ári
FASTEIGNAVERÐIÐ
Elvar Orri
Hreinsson
Ert þú í söluhugleiðingum?
Við erum til þjónustu reiðubúin
-örugg fasteignaviðskipti
Heiðrún Björk Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali og HDL.
Björn Þorri Viktorsson
Löggiltur fasteignasali og HRL.
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jóhann Örn B. Benediktsson
Skrifstofu- og fjármálastjóri MBA
Miðborg fasteignasala | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | Sími 533 4800 | www.midborg.is