Morgunblaðið - 01.09.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 01.09.2018, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 áhugamál að skoða uppskriftir og horfa á matreiðsluþætti. Þú fylgdist alla tíð vel með fréttum og veðri og alltaf var sussað á mann þegar fréttirnar voru, hvort sem þær voru í út- varpi eða sjónvarpi. Ég man að ég spurði þig oft hvort það hefði gerst eitthvað nýtt frá því þú hlustaðir á fréttirnar klukkutíma áður. Svo var sofið yfir kvöld- fréttunum og veðrinu í sjónvarp- inu en þú þóttist alltaf hafa bara rétt dottað. Núna síðustu vikur hef ég ver- ið að leita mér að íbúð, alltaf vild- ir þú vita hvernig leitin gengi og svo þegar ég sagði þér um daginn að þetta væri komið, ég væri búin að finna íbúð og þetta myndi reddast þá varstu glaður. Þú brostir bara og kinkaðir kolli. Þú fylgist ábyggilega vel með, en mikið vildi ég óska að þú gætir komið í heimsókn. Elsku pabbi, við sjáumst aftur þegar minn tími kemur. Harpa. Þorvaldur Þorvaldsson hét hann fullu nafni, skírður í höfuðið á móðurafa sínum, hann Lalli Bald, bróðir minn. Hann lést 23. ágúst af afleiðingum bílslyss sem þau hjón, Lalli og Inga, lentu í í júní sl. Lalli var einn af átta systkin- um frá Sælandi á Árskógssandi. Nú hafa fimm bræður kvatt þessa jarðvist á fáum árum. Í uppvextinum átti Lalli tvö heimili, í Sælandi og Gilsbakka á Hauganesi hjá móðurömmu og Stjána móðurbróður sínum. Eins og flestir drengir þessa tíma þar um slóðir var sjómennskan í fyrsta sæti og varð hans starf um ævina. Honum Lalla var ýmislegt til lista lagt. Hann var mjög góður kokkur og liðtækur í því í seinni tíð. Hann þótti skarpur og skemmtilegur, hafði góðan húm- or en var snöggur upp á lagið og oft fljótfær. Hann var fljótur að tileinka sér nýjungar. Nú seinni ár var tölvan það tæki sem hann tileinkaði sér og notaði mikið. Ungur keypti hann sér segulbandstæki og raf- magnsgítar. Hann hafði gaman af tónlist og söng, enda var mikið sungið í Gilsbakka. Kristján frændi raulaði þessa vísu eftir Jón frá Ljárskógum. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Syngdu mig inn í svefninn ljúfi blær. Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draumgyðja ljúfa, ljá mér vinarhönd, og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Stjórnmálaskoðanir hans voru þess eðlis að það þýddi ekki að deila við dómarann. Hann vissi að Sjallarnir væru með þetta. Sterk minning kemur upp í huga minn frá Sælandi. Lalli var fljótur að ráða krossgátur. Hann kom heim með vikublaðið Fálk- ann sem í var krossgáta. Ég fylgdist með honum leysa gátuna og bað hann að kenna mér. Þú lærir þetta einhvern tímann var svarið. Ég stalst í blaðið þar sem hann lagði það frá sér og sá þar orð sem stóð „veiki“ og skrifaði bara „illt í maga“ í auða reiti. Þetta uppátæki mitt varð honum mikið hlátursefni og átti hann það til að minna mig á að ég væri helv … góð að ráða krossgátur. En Lalli réði ekki bara gátur í Fálkanum. Hann þurfti oft að ráða í krossgátur og gátur í lífinu sjálfu. Lalli og Inga bjuggu öll sín hjúskaparár á Dalvík, áttu hlý- legt heimili og mikið barnalán, sem er ríkidæmi. Þau eignuðust sex myndarbörn og eru afkom- endur þeirra nú á þriðja tug. Lífsgöngu Lalla er nú lokið hér á jörð eftir margar flóknar gátur og götur og eflaust bíður hans góð heimkoma í Sumarland- ið þar sem bræður hans og aðrir ættingjar taka vel á móti honum. Hver veit nema þau taki lagið! Kæri bróðir, blessuð sé minn- ing þín. Kæra Inga, börnin ykkar og fjölskyldur þeirra. Samúð okkar er hjá ykkur, Ragnheiður Baldvinsdóttir (Heiða) og fjölskylda. Í dag er ég að kveðja góðan dreng, vin og félaga, skóla- og fermingarbróðir, Lalla í Sælandi. Lalli eins og hann var kallaður jafnan, ólst upp í barnmargri, yndislegri, fjölskyldu og því oft þröngt á því heimili. Hann var ungur drengur þegar frændi hans Kristján í Gilsbakka á Hauganesi tók hann að sér og þá kynntumst við vel, jafnaldra guttar, alltaf í boltaleikjum, á bryggjunni og í bátum. Lalli var alltaf ljúfur og kátur, gerði að gamni sínu og man ég Lalla ekki í vondu skapi. Við gengum saman í barna- og unglingaskólann í Ár- skógi, og vorum fermdir saman, ásamt níu fermingarsystkinum, sem nú syrgja góðan vin. Fljótt eftir fermingu fórum við, á þess- um aldri, að stunda sjó, hann með frænda sínum á Draupni sem nú er á Síldarsafn- inu á Siglufirði. Ég var þá á Sævaldi með pabba mínum, báðir þessara báta voru á línuveiðum fram við Grímsey, þegar svo illa vildi til að Lalli lenti í spilinu og lærbrotnaði mjög illa. Þá var ekki hægt að hringja á þyrlu, eins og nú tíðk- ast, heldur sett á fulla ferð í land á 6-7 sjómílna hraða og tók 5-6 klukkustundir að komast í höfn. Síðan að keyra með hann til Ak- ureyrar á sjúkrahús. Auðvita ná menn sér aldrei al- veg eftir svona slys en Lalli var harður af sér og farinn að sparka bolta, ótrúlega fljótt aftur. Á táningsárunum ferðuðumst við mikið saman og eftir að ég keypti Willysinn fjölgaði ferðum okkar í Dalvíkurbíóið og á böllin sem haldin voru í nágrenninu. Svo skildi leiðir okkar, ég fór suður og í siglingar, sambönd slitnuðu en minningar okkar lifðu og þegar við hittumst hló Lalli innilega við upprifjun okkar á prakkarastrikunum og yndisleg- um stundum unglingsáranna. Bílslys gera ekki boð á undan sér, eitt augnablik og allt er breytt, lífsgleðin snýst upp í sorg og enginn veit þá kallið kemur eða hver er næstur. Ég minnist Lalla með hlýjum hug og góðum minningum og veit að fermingarsystkinin átta sem eftir lifa gera það einnig. Góður drengur, æskuvinur og félagi, fallinn frá. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Eftirlifandi eiginkonu, börnum og fjölskyldum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson. ✝ Þóranna Krist-ín Hjálmars- dóttir fæddist á Kambi í Deildardal 12. apríl 1936. Hún lést á Heilbrigðis- stofnuninni á Sauð- árkróki 19. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Hjálmar Pálsson bóndi, f. 3. mars 1904, d. 15. apríl 1983, og Steinunn Hjálm- arsdóttir, f. 11. júní 1905, d. 15. júlí 1942. Systkini Þórönnu eru Guð- rún Hjálmarsdóttir, f. 23.12. 1928, d. 8.1. 2018. Páll Ágúst Hjálmarsson, f. 22.12. 1929. Hjálmar Ragnar Hjálmarsson, f. 3.3. 1931, d. 10.1. 1998. Guð- finna Ásta Hjálmarsdóttir, f. 9.8. 1932, d. 1.12. 2014. Hösk- uldur Hjálmarsson, f. 13.11. 1934, d. 11.7. 1935. Hulda Hjálmarsdóttir, f. 13.11. 1934, d. 9.7. 1935. Hulda Hjálmars- dóttir, f. 28.9. 1938. Skarphéð- inn Hjálmarsson, f. 30.9. 1940. Stúlka Hjálmarsdóttir, f. 10.7. 1942, d. 10.7. 1942. Þóranna giftist Lárusi Haf- steini Lárussyni, f. 15.12. 1940, d. 11.4. 2007. Foreldrar hans voru Lárus Ingvar Sigurðsson, f. 10.4. 1911, d. 9.9. 1999, og Daníela Jóna Jóhannesdóttir, f. Guðrúnar Helgu Harðardóttur, f. 28.6. 1972, eru Rebekka Ýr, f. 28.12. 1992, og Sunneva Eir, f. 7.8. 1996. Steinunn Daníela, f 28.1. 1976, sambýlismaður Sig- urjón Leifsson, f. 12.1. 1971, börn þeirra eru Þóranna Ósk. f. 26.4. 1996, Hafdís Lind, f. 27.12. 1999, Ívar Elí. f. 17.1. 2011. Þóranna ólst upp á Kambi til sex ára aldurs þegar móðir hennar lést af barnsförum. Þá fór hún í fóstur á Háleggsstaði til Þórðar Hjálmarssonar, f. 3.8. 1879, d. 2.1. 1978, og Þór- önnu Þorgilsdóttur, f. 2.5. 1879, d. 11.9. 1963. Hún fór í Húsmæðraskólann á Löngumýri. Hún var mikil hannyrðakona og eru til mörg listaverkin eftir hana. Síðan fór hún að vinna við síld á Siglufirði og fór síðan til Reykjavíkur og vann þar á Víf- ilsstöðum, hóteli og Skálatúni. Í janúar 1959 fór hún vestur til Hnífsdals til að vinna í fiski. Þar kynntist hún eiginmanni sínum Hafsteini og hófu þau búskap í Hnífsdal. Árið 1964 fluttu þau á Háleggsstaði í Deildardal og bjuggu þar til 1998, með búskap, en hún vann líka með í frystihúsinu á Hofs- ósi þegar þau seldu vegna veik- inda Hafsteins. Bjuggu þau á Hofsósi til 2000 en þá fluttu þau á Sauðárkrók. Þóranna dvaldi á Dvalarheimilinu á Sauðárkróki síðustu tvö árin Útför Þórönnu fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 1. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 14. 14.4. 1914, d. 8.3. 1981. Börn Þórönnu og Hafsteins eru: Þórður Steinar Lárusson, f. 16.8. 1965, kvæntur Þor- björgu Bergsdótt- ur, f. 21.8. 1965, synir þeirra eru Þorsteinn Orri, f. 26.2. 1992. Þor- björn Atli, f. 26.3. 1994, sonur hans Þorbjörn Adam, f. 23.8. 2010, og Þórður Berg, f. 30.3. 2001. Dætur Þórðar og Brynju Júlíusdóttur, f. 19.1. 1967, d. 12.12. 2009, eru Lára Dögg, f. 20.6. 1985, sam- býlismaður Sigmar Örn Péturs- son, f. 6.11. 1982. Börn þeirra eru Hafsteinn Ingi, f. 18.8. 2005, Daníel Þór, f. 30.9. 2009, og Anna Guðbjörg, f. 23.1. 2015. Sólveig Anna, f. 20.9. 1988, sambýlismaður hennar er Hilmir Gunnar Ólason, f. 18.1. janúar 1991, börn þeirra Ásdís Ýr, f. 11.11. 2010, Reynir Logi, f. 27.6. 2012, París Anna, f. 29.3. 2013, og Brynja Björk, f. 12.5. 2018. Einar Jóhannes Lárusson, f. 13.6. 1967, kvæntur Sólveigu Birnu Gísladóttur, f. 6.1. 1973, börn þeirra eru Gísli Hafsteinn, f. 17.1. 2008, og Birna Sól, f. 28.6. 2010. Dætur Einars og Elsku mamma mín, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur verið mér og mínum og hlýja mér við góðar minningar um þig, og veit að nú eruð þið pabbi loks- ins sameinuð. Þú vildir allt fyrir alla gera og varst svo glöð og stolt þegar vel gekk hjá okkur og börnunum mínum, en hafðir líka miklar áhyggjur þegar eitthvað var að hjá okkur. Þið pabbi voruð yndislegir foreldrar og mun ég varðveita minningu ykkar um aldur og ævi. Takk fyrir allt. Ég kveð þig með ást og sökn- uði, elsku mamma. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þín dóttir Steinunn Daníela. Elsku amma. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. Takk fyrir allt. Þóranna Ósk, Hafdís Lind og Ívar Elí. Þóranna kom inn í líf okkar fjölskyldunnar 1959. Þá kynnt- ust þau Hafsteinn bróðir, hann var þá að læra húsasmíðar og hún kom til þess að vinna í Hrað- frystihúsinu í Hnífsdal ásamt Ragnheiði vinkonu sinni og Hjálmari föður sínum. Þau Haf- steinn hófu sambúð í Grænadal 1962. Og litla stelpuskottið ég hlakkaði til að kynnast þessari stelpu sem stóri bróðir var að kynnast, henni Þórönnu. 13. apr- íl 1963 er stór dagur í fjölskyld- unni, bræðurnir Lárus Haf- steinn og Einar Jóhannes kvæntust Þórönnu og Finneyju í Kapellunni í Hnífsdal og stutt að fara í veisluna, yfir götuna á Bakkaveg 10, hjá foreldrum okk- ar. Kynni okkar Þórönnu urðu góð og ævinlega gott að heim- sækja þau, hvort heldur var í Hnífsdal eða norður í Skaga- fjörð. Sumarið 1965 var fyrsta ferð mín norður til þeirra í Deildar- dal í nokkra daga. Þá var Stella með í för og ýmislegt myndað á kvikmyndatökuvél sem frægt varð í fjölskyldunni og margir búnir að hafa gaman af, þó ég hafi ekki enn séð myndbrotin öll. Mikið var gaman og allir kátir, húsið málað og mikið hlegið. Við Stefán komum fyrst sam- an norður 1968 og þá var hey- skapur á fullu og nóg af sól og blíðu í Deildardalnum. Og bræð- urnir Þórður og Jói fæddir og loks prinsessan. Þegar við hjón- in komum með drengina okkar notuðu þau stundum tækifærið og skruppu með börnin til ætt- ingja suður eins og sagt var, en við hjónin pössuðum að allt gengi sinn vanagang í sveitinni á meðan, með dyggri aðstoð sum- ardvalardrengjanna að sjálf- sögðu. Skemmtilegur tími á Há- leggsstöðum. Og þó húsakynnin væru ekki tiltakanlega stór var ótrúlegt hve margir gátu samt gist þar og um réttirnar var sofið í öllum krókum á Háleggsstöðum og mikil kátína. Slegið upp veislu og terturnar hennar voru víðfræg- ar. Aldrei hef ég náð að baka eins góða brúna randalínu og Þóranna, og þykist ég þó nota uppskriftina hennar. Það fækkar ört í hópnum okk- ar. Nú bætist fallega söngröddin þín í raddirnar á efri hæðinni og mikið verður sungið, og sungið, heyri „Vagga, vagga, . . .“ hljóma og pabba strjúka fingurgómana af tilfinningu. Ég kveð Þórönnu með kær- leika og veit að vel er tekið á móti henni, þar sem við hitt- umst, þegar minn dagur kemur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Þín mágkona, Bára Björk. Þóranna Kristín Hjálmarsdóttir Áskær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÓLI SVEINN BERNHARÐSSON vélstjóri, Birkihlíð 21, áður Hátúni 10, Vestmannaeyjum, lést hinn 23. ágúst á sjúkrahúsi á Tenerife. Jarðarförin verður auglýst síðar. Bernharð Ólason Soffía Eiríksdóttir Hafþór Ólason Bryndís Hauksdóttir Hrafnhildur Hlöðversdóttir Brynjólfur Sigurðsson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, HÖRÐUR FELIXSON, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 29. ágúst. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 5. september klukkan 15. Blóm vinsamlegast afþökkuð en bent er á Alzheimersamtökin. Kolbrún Skaftadóttir Skafti Harðarson Sara Magnúsdóttir Ágústa Harðardóttir Eyjólfur Sigurðsson Hörður Felix Harðarson Guðrún Valdimarsdóttir Bjarni Felixson Gunnar Felixson barnabörn og barnabarnabörn Elsku, fallega stelpan okkar, KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, Dyngjuvegi 17, Reykjavík, lést á Barnaspítala Hringsins föstu- daginn 24. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 3. september klukkan 11. Halldór Geir Jensson Birgitta Rut Birgisdóttir Brynjar Bjarmi Halldórsson Arnór Bjarki Halldórsson ömmur, afar og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.