Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
unum sem hefjast kl. 19.30 leikur
píanistinn Ingi Bjarni Skúlason
ásamt tríói sínu sem skipað er Bárði
Reinert Poulsen frá Færeyjum á
kontrabassa og Magnúsi Trygvasyni
Eliassen á trommur,“ segir Sunna
og bendir á að Ingi Bjarna sé ekki
aðeins að fagna nýrri útgáfu heldur
einnig útgáfusamningi við Dot Time
Records sem gerir út frá New York.
„Seinna tónleikarnir hefjast kl.
21.30 og þar leikur kvartett
trommuleikarans Scott McLemore.
Með honum leika Frakkarnir Pierre
Perchaud á gítar og Nicolas
Moreaux á kontrabassa og Hilmar
Jensson á gítar,“ segir Sunna og
tekur fram að fjórmenningarnir
hyggist vefa í kringum hver annan á
lýrískan og þokkafullan máta.
Dagskrá fimmtudagsins hefst
með tónleikum saxófónleikarans
Sigurðar Flosasonar og sænska
píanistans Lars Jansson í
Hannesarholti kl. 19.30, en tónleik-
arnir eru endurteknir kl. 21.30.
„Þeir leika tónsmíðar beggja í bland
við vel valda sígræna djassstand-
arda.“
Finnskur trompettsnillingur
Á föstudag verður einnig boðið
upp á tvenna tónleika í Tjarnarbíói.
„Bassaleikarinn Giulia Valle leikur
kl 19.30 með tríói sínu skipuðu
Marco Mezquida á píanó og David
Xirgu á trommur. Giulia er afskap-
lega spennandi og hefur verið á
hraðri uppleið undanfarin ár,“ segir
Sunna og bendir á að Valle hafi
komið fram á merkum djasshátíðum
eins og Montreal Jazz Festival, San
Francisco Jazz og klúbbum á borð
við Blue Note í New York. „Þau
leika eldheita tónlist, sem er bæði
hlý, fáguð og lagræn.“
Seinni tónleikarnir hefjast kl.
21.30 og þar fagnar tríó Sunnu
Gunnlaugs nýrri plötu sem nefnist
Ancestry. Með Sunnu leika Þor-
grímur Jónsson á kontrabassa,
Scott McLemore á trommur og Ver-
neri Pohjola á trompett. „Ég heyrði
fyrst í Verneri á hátíð fyrir nokkrum
árum og hreifst strax, enda er hann
algjör trompettsnillingur. Í lok síð-
asta árs þegar tríói mínu var boðið á
Tampere Jazz Happening í Finn-
landi spurði ég hvort ég mætti bjóða
Verneri að vera gestaleikari hjá
mér. Stjórnendur tóku mjög vel í
það, enda kom í ljós að á hátíðinni
fékk hann viðurkenningu fyrir fram-
lag sitt til finnsks djass,“ segir
Sunna og rifjar upp að að hátíð lok-
inni hafi þau farið í hljóðver Sibeli-
usarakademíunnar og tekið upp
plötuna sem nú er komin út. Fernir
tónleikar verða í boði á föstudag . Í
Tjarnarbíó kl. 19.30 fagnar bassa-
leikarinn Sigmar Þór Matthíasson
nýrri plötu. „Með honum leikur ein-
valalið íslenskra djassleikara, þeir
Snorri Sigurðarson á trompet, Jóel
Pálsson og Helgi Rúnar Heiðarsson
á saxófóna og klarínett, Kjartan
Valdemarsson á píanó og Magnús
Trygvason Eliassen á trommur,“
segir Sunna og lýsir tónlist sextetts-
ins sem blöndu af djassi, poppi og
rokki sem beri keim af nokkurri æv-
intýramennsku.
Sellóið sjaldheyrt í djassi
„Á seinni tónleikunum í Tjarnar-
bíó, eða kl 21.30, leikur gítarleik-
arann Ralph Towner frá Bandaríkj-
unum einleik á klassískan gítar.
„Ralph, sem er einstakur spilari, er
þekktastur fyrir leik sinn með
hljómsveitinni Oregon. Hann hefur
komið víða við á sínum ferli og leikið
inn á um óteljandi hljómdiska með
ýmsum stærstu nöfnum djassins.“
Í Iðnó verða einnig tvennir tón-
leikar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl.
19.30 og þar er um að ræða útgáfu-
tónleika tríósins NOR undir stjórn
bassaleikarans Richard Andersson
með Óskari Guðjónssyni á saxófón
og Matthías Hemstock á trommur,
en diskur þeirra nefnist The Six of
Us. „Uppistaða efnisskrár er tón-
smíðar Richards og Óskars en þeim
mætti lýsa sem tærum og einföldum,
þó svo að samleikur og meðferð
hljómsveitarinnar geti verið marg-
slunginn.“
Seinni tónleikarnir hefjast kl.
21.30 og þar leiðir sellóleikarinn
Þórdís Gerður Jónsdóttir sextett
sinn í flutningi á eigin tónsmíðum.
„Sellóið er sjaldheyrt hljóðfæri í
djassinum, en Þórdís leitast við að
finna sellóinu hlutverk sem leiðandi
hljóðfæri í djassi og spuna en einnig
að nálgast djass eins og um sígilda
kammertónlist væri að ræða,“ segir
Sunna. Með Þórdísi leika Andri
Ólafsson á kontrabassa, Grímur
Helgason á klarinettu, Guðmundur
Pétursson á rafgítar, Matthías
Hemstock á slagverk og Stein-
grímur Karl Teague á píanó.
Laugardaginn 8. september verð-
ur alls boðið upp á fimm tónleika.
Söngkonan Katrín Halldóra Sigurð-
ardóttir ríður á vaðið ásamt Hauki
Gröndal og hljómsveit hans Arctic
Swing Kvintett á Grand hóteli kl. 13.
„Efnisskráin samanstendur af lög-
um frá gullaldarárum djassins í
skemmtilegum útsetningum þar
sem áherslan er á sveiflu, lagræn
sóló og almennan hressleika,“ segir
Sunna og tekur fram að með því að
bjóða upp á ólíkar tíma- og staðsetn-
ingar tónleika hátíðarinnar sé það
von skipuleggjenda að allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Gítarleikarinn Andrés Þór fær til
sín einn fremsta djassleikara
Slóvakíu, víbrafónleikarann Miro
Herak á tónleikum kl. 15 í gömlu
kartöflugeymslunum. Þeir leika ljúf-
an, melódískan nútímadjass og sam-
anstendur efniskráin af blöndu af
lögum þeirra beggja og samtíma
djasstónsmíðum.“
Blanda af djassi og heimstónlist
Seinni síðdegistónleikarnir í
gömlu kartöflugeymslunum hefjast
kl. 16.30 og þar fagnar DOH tríóið
nýjum diski. „Tríóið er skipað okkar
yngri kynslóðar djassleikurum, sem
eru reyndar búin að starfa saman í
fimm ár en eru fyrst núna að senda
frá sér sinn fyrsta disk,“ segir
Sunna. DOH skipa Helgi Heiðars-
son á saxófón, Daníel Helgason á
gítar og rafbassa og Óskar Kjart-
ansson á trommur.
„Eftir góða pásu þar sem gestir
hátíðarinar geta nært sig verður
boðið upp á tvenna tónleika á Grand
hóteli. Þetta verður sannkölluð
veisla sem engin má missa af.
Klukkan 19.30 leiðir slagverksleik-
arinn Marilyn Mazur tíu kvenna
sveit sem nefnist Shamania. Mazur
er án efa drottning danska djassins
enda eina konan sem hefur verið í
hljómsveit goðsagnarinnar Miles
Davis,“ segir Sunna og bendir á að
tónlistin verði spennandi blanda af
djassi og heimstónlist. „Þetta verður
magnaður seiður rytma og tóna.“
Seinni tónleikar kvöldsins hefjast
kl. 21.30. „Þar kemur fram Marcin
Wasilewski Trio frá Póllandi, sem
hefur verið áberandi nafn í djass-
heiminum síðustu árin. Þeir hafa
spilað saman í yfir 20 ár og því ekki
að undra að samspil þeirra einkenn-
ist af mýkt og næmni,“ segir Sunna
og bendir á að tríóið fagni útkomu
nýs disks hjá ECM í september.
Lokatónleikar hátíðarinnar verða
í gömlu kartöflugeymslunum og
hefjast kl. 23. „Þar mun dúóið Skeltr
frá Bretlandi og Una Stef Band
halda uppi stuðinu. Á lokadegi hátíð-
arinnar, sunnudaginn 9. september,
verður haldin þakkargjörð í kirkju
Óháða safnaðarins sem hefst kl. 17.
„Þar verður Guðmundur Stein-
grímsson, öðru nafni Papa Jazz,
heiðraður fyrir sitt framlag til djass-
tónlistar á Íslandi,“ segir Sunna.
Allar nánari upplýsingar eru á
reykjavikjazz.is og miðar seldir á
tix.is.
Samspilaðir Marcin Wasilewski Trio leikur á Grand hóteli á laugardag.
Virtur Gítarleikarann Ralph Tow-
ner leikur í Tjarnarbíói á föstudag.
Magnaður seiður Slagverksleikarinn Marilyn Mazur leiðir kvennaband.
Ævintýri Bassaleikarinn Sigmar
Þór Matthíasson fagnar nýrri plötu.
Um fleira fólk má lesa á slóðinni
www.radiobongo.net/quadrantes.
Þess má geta að Mary Ann
Hobbs hjá BBC6 (sem er pælinga-
útvarp með stóru P-i!) spilaði hluta af
Quadrantes nr. 1 í þætti sínum síð-
asta nóvember. Hús- og teknó-
listamaðurinn Yotam Avni endur-
hljóðblandaði þá Quadrantes nr.3
fyrir stuttu og lék það í hlaðvarpi
sínu fyrir Groove Magazine. Og mun
Hobbs spila þá útgáfu á BBC6 þætti
sínum næsta miðvikudag.
Ævintýri, svo sannarlega, og
vert að fylgjast með frá byrjun.
Listamaðurinn hefur meðal annars
stuðst við Karolina Fund upp á fjár-
mögnun og hægt er að fræðast meira
um útfærslurnar á því hér:
www.karolinafund.com/project/
view/2187.
Ljósmynd/Gabríel Patay
Mektarmaður President Bongo,
reiðubúinn í ævintýri næstu ára.
Tvær sýningar verða opnaðar í dag
kl. 17 í Kling & Bang í Marshall-
húsinu, annars vegar sýning Auðar
Ómarsdóttur, Stöngin-inn, og hins
vegar sýning Páls Hauks Björns-
sonar, Dauði hlutarins. Á sýningu
sinni steypir Páll Haukur saman
naumhyggjulegum skúlptúrum við
maximalíska umhverfishönnun
„þar sem hið lögbundna mætir hinu
óstjórnlega með ófyrirséðum
fagurfræðilegum afleiðingum,“
eins og segir í tilkynningu. Um
verk Auðar segir að í þeim megi sjá
vísanir í íþróttamenningu, tákn úr
listasögunni, popptónlist í bland við
persónulegar upplifanir. „Þú tekur
ákvörðun, skýtur og til verður röð
afleiðinga sem gera þig annaðhvort
að hetju eða skúrk,“ segir um verk-
in.
Tvöföld opnun í Kling & Bang
Listamennirnir Auður Ómarsdóttir
og Páll Haukur Björnsson.
Myndlistarkonan Solveig Thorodd-
sen opnar sýninguna Náttúrulega í
dag kl. 17 í galleríinu Ekkisens. Sol-
veig sýnir verk um náttúruna og
tengsl manneskjunnar við hana og
mun bjóða upp á te úr íslenskum
villijurtum ásamt léttum rauðum og
hvítum veitingum. Sýningin verður
opin á morgun kl. 15-17 og á mánu-
dag og þriðjudag kl. 16-18.
Solveig starfaði lengst af sem
grunnskólakennari og starfar nú
sem leiðsögumaður. Hún vinnur í
ýmsa miðla og eru umfjöllunar-
efnin gjarnan samskipti manns og
náttúru sem og pólitísk samfélags-
mál. Hún hefur tekið þátt í samsýn-
ingum bæði hér á landi og erlendis
og árið 2017 gaf Partus út ljóðabók
hennar Blekrými í bókaflokkinum
Meðgönguljóð.
Solveig sýnir í Ekkisens
Náttúra Solveig Thoroddsen sýnir í
Ekkisens, Bergstaðastræti 25b.