Morgunblaðið - 01.09.2018, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Skipuleggjendur kvikmynda-
hátíðarinnar BFI London Film
Festival hafa tilkynnt að 38% kvik-
myndanna sem eru á dagskrá
hátíðarinnar sé leikstýrt af konum.
Skipuleggjendur segja að þeir séu
því að taka skref í rétta átt þegar
kemur að jafnrétti kynjanna. The
Guardian greinir frá þessu.
Tricia Tuttle, listrænn stjórnandi
hátíðarinnar, segir það vera for-
gangsatriði að karlkyns og kven-
kyns leikstjórar séu jafn margir en
að kynjakvótar hafi ekki verið not-
aðir við val á efni. „Þrátt fyrir að
við viljum öll færast nær jafnrétti
viljum við ekki setja kynjakvóta.
Við erum að reyna að þjóna áhorf-
endum og dagskránni en það er
alltaf númer eitt,“ segir Tuttle, sem
bendir á að það hafi ekki verið
erfiðara að finna kvikmyndir sem
konur hafi leikstýrt.
Í fyrra voru kvikmyndir sem kon-
ur leikstýrðu 24% þeirra mynda
sem sýndar voru á hátíðinni.
Í ár var engin kona tilnefnd til
hinna virtu BAFTA-sjónvarps-
verðlauna sem besti leikstjóri. Ein-
ungis fimm kvenleikstjórar hafa
verið tilnefndir til Óskarsins.
Stjórnandi Tricia Tuttle er listrænn
stjórnandi BFI London Film Festival.
38% kvikmynda
leikstýrt af konum
Þrískipt sýning með verkum
Ágústu Oddsdóttur, Elínar Jóns-
dóttur og Egils Sæbjörnssonar
verður opnuð á morgun á Neðra-
Hálsi í Kjós, í gamla Borgar-
bókasafninu við Þingholtsstræti og
á barnum á Hótel Holti.
Ágústa er móðir Egils sem var
fulltrúi Íslands á Feneyjartvíær-
ingnum á síðasta ári og Elín er
móðir Ágústu og amma Egils.
Bresk-bandaríski myndlistar-
gagnrýnandinn Karen Wright er
sýningarstjóri en hún var eigandi
og ritstjóri listtímaritsins Modern
Painters til 20 ára og er því þekkt
innan listaheimsins bæði vestan
hafs og austan. Egill, Ágústa og El-
ín eiga öll ættir að rekja til Neðri-
Háls og eru rætur verkanna á sýn-
ingunni þaðan. „Endurvinnsla
Ágústu á kössum utan af tækjum
sem hún hefur teiknað á sögur frá
bænum og endurnýting Elínar á
öllu sem til féll, sem og sögusköpun
Egils og notkun á steinum er eitt-
hvað sem augljóslega má finna á
bænum og hans nánasta umhverfi, í
fjallinu og í náttúrunni,“ segir i til-
kynningu.
Sýningin í gamla Borgarbóka-
safninu verður opin einungis þrjá
daga, tvo tíma á dag, 2.-4. sept. frá
12 til 14 og hefur eigandi hússins,
Róbert Wessmann, lánað húsið fyr-
ir sýninguna. Sýningin á Neðra-
Hálsi verður opin frá 2.-9. septem-
ber kl. 12-18.
Á Hótel Holti er verk eftir Egil á
meðal teikninga Kjarvals á barnum
og er það aðgengilegt meðann bar-
inn er opinn.
Egill sýnir með mömmu sinni og ömmu
Ólíkindatól Egill Sæbjörnsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hljómsveitin
Grísalappalísa
og tónlistarmað-
urinn Andi halda
tónleika saman
annað kvöld kl.
20 í Iðnó. „Við
erum alveg að
verða búnir með
okkar nýjustu
hljóðversplötu
sem nefnist
Týnda rásin og langar að spila fyrir
ykkur efni af henni í bland við
eldra. Frítt inn, gott grín í boði.
Andi hitar upp,“ skrifa Gunnar
Ragnarsson og félagar í
Grísalappalísu um viðburðinn á
Facebook-síðu hans.
Grísalappalísa
og Andi í Iðnó
Gunnar
Ragnarsson
Brasilíski söngv-
arinn og gítar-
leikarinn Ife To-
lentino heldur
tónleika í Nor-
ræna húsinu í
kvöld kl. 21 til-
efni af því að nú
eru 16 ár síðan
hann kom fyrst
til Íslands. Með
honum leika Ósk-
ar Guðjónsson á saxófón, Eyþór
Gunnarsson á píanó og Skúli Sverr-
isson á bassa. Þeir munu flytja
frumsamin verk af næstu plötu Ife í
bland við eldri lög og lög helstu
meistara Brasilíu frá fyrri hluta 20.
aldar.
Ife og félagar í
Norræna húsinu
Ife
Tolentino
Gérard Depardieu, einn þekktasti
leikari Frakka, hefur verið kærð-
ur fyrir nauðgun. Tuttugu og
tveggja ára leikkona tilkynnti
málið til lögreglu fyrr í vikunni.
Árásin á að hafa átt sér stað á
heimili Depardieu fyrr í þessum
mánuði. The Guardian greinir frá
þessu.
„Ég átti langan fund með Dep-
ardieu og er algjörlega sann-
færður um að sakleysi hans verði
staðfest,“ segir Hervé Temime,
lögmaður leikarans. Segir hann
leikarann „sleg-
inn“ vegna
málsins sem
stríði gegn „öllu
sem hann standi
fyrir og virði“.
Samkvæmt
BBC þekktust
Depardieu og
unga konan áð-
ur en árásin á
að hafa átt sér stað. Umboðs-
maður konunnar segir hana „nið-
urbrotna“ vegna atviksins.
Gérard Depardieu kærður fyrir nauðgun
Gerard Depardieu
Nýjar hendur - Innan
seilingar
Guðmundur Felix missti
báða handleggi í hræðilegu
vinnuslysi árið 1998. Hann á
sér þá ósk heitasta að geta
faðmað dætur sínar og áset-
ur sér að komast í aðgerð til
að fá nýja handleggi.
Bíó Paradís 20.00
Adrift 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Bíó Paradís 22.00
Kvíðakast
Bíó Paradís 20.00, 22.20
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 18.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
Bíó Paradís 22.00
Whitney
Bíó Paradís 17.40, 20.00
KIN 12
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.15, 17.30, 19.30,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni
15.00, 17.20, 19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 17.30,
20.00
Alpha 12
Metacritic 63/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 14.00, 15.00,
17.30, 19.30, 20.00, 21.50,
22.20
Háskólabíó 15.40, 18.00,
21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.30
Crazy Rich Asians
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00, 19.30
Sambíóin Akureyri 17.30
Sambíóin Keflavík 17.30,
20.00
The Happytime
Murders 16
Laugarásbíó 20.00, 22.00
Smárabíó 19.40, 22.10
Slender Man 16
Smárabíó 19.50, 22.10
Háskólabíó 21.00
Mile 22 16
Laugarásbíó 22.15
Smárabíó 22.00
Háskólabíó 20.30
Mamma Mia!
Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00,
19.50
Smárabíó 14.00, 16.40,
17.10, 19.40
Háskólabíó 15.50, 18.20,
21.10
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30
Ant-Man and the
Wasp 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 70/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Egilshöll 15.00
The Spy Who
Dumped Me 16
Metacritic 51/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Hereditary 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 87/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Háskólabíó 18.30
Össi Laugarásbíó 13.50, 15.50,
17.50
Smárabíó 13.00, 15.10,
17.20
Háskólabíó 15.30
Borgarbíó Akureyri 15.00,
17.30
Christopher Robin Metacritic 59/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 20.00
Sambíóin Egilshöll 15.00
Sambíóin Kringlunni 17.20
Sambíóin Akureyri 15.00,
17.15
Sambíóin Keflavík 15.00
Úlfhundurinn Metacritic 61/100
IMDb 6,9/10
Smárabíó 17.30
Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.30
Sambíóin Egilshöll 15.00
Sambíóin Kringlunni 14.30
Sambíóin Akureyri 15.00
Sambíóin Keflavík 15.00
Hótel Transylvanía 3:
Sumarfríið Metacritic 54/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00
Smárabíó 12.50, 15.10
Háskólabíó 15.40
Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra
hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu
við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í
neðansjávarrannsóknarstöð
Metacritic 46/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10
Sambíóin Akureyri 19.30, 22.15
The Meg 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir
yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar-
verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há-
lendi Íslands þar til mun-
aðarlaus stúlka frá
Úkraínu stígur inn í líf
hennar.
Morgunblaðið
bbbbb
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 18.00
Mission Impossible -Fallout 16
Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við
tímann eftir að verkefni misheppnast.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
18.00, 21.00, 21.45
Sambíóin Egilshöll 18.00,
21.00
Sambíóin Kringlunni 22.00
Sambíóin Akureyri 22.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio