Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Page 17
„Ég tengi við hana þó að ég hafi aldrei hitt hana eða neitt þannig. Amma mín og systir hennar eru mjög duglegar að segja mér sögur af því hversu yndisleg hún var og mér finnst ég þurfa að halda heiðri hennar á lofti. Mér finnst frábært að fá það verkefni,“ segir Gunnhildur Yrsa. „Mér finnst hún eiga það skilið að ég heiðri hana.“ Gunnhildur segist ekki trúuð í hefðbundnum skilningi en lítur svo á að einhver stærri öfl en bara mannfólkið hljóti að hafa áhrif á heiminn; hlutirnir gerist ekki að ástæðulausu. Hún hef- ur oft þurft að halda fast í þá hugsun á sínum ferli, enda hefur hún slitið krossband þrisvar sinnum. Óviðjafnanlegur andlegur styrkur Það fer ekki endilega mikið fyrir Gunnhildi ut- an vallar. Hún er gamansöm og traust vinkona en lætur almenn lítið fyrir sér fara. Innan vall- ar neistar keppnisskapið hinsvegar úr aug- unum á henni. Hún gerir allt til að sigra og er mikill vinnuhestur: hefur sterka nærveru í vörninni, er öflug í loftinu og hleypur völlinn endilangan eftir þörfum. Michelle Betos, fyrrverandi samherji henn- ar hjá Vålerenga í Noregi, lýsir henni sem kvenkyns útgáfu af franska miðjumanninum Kanté: framlag hennar er ekki alltaf sýnilegt á tölfræðinni en það er engu að síður gífurlegt. Það er þó andlegur styrkur Gunnhildar sem Betos þykir mest til koma, meiðsli sem myndu binda enda á feril flestra íþróttamanna virðast hreint ekki hafa áhrif á færni hennar. Svo fór þó nærri, að sögn Gunnhildar. „Maður var bara við það að hætta,“ segir hún blátt áfram, um árið 2005. Hún var þá snú- in heim, spilaði með Stjörnunni og hafði kom- ist í U17 landsliðið þegar hún sleit krossband á hægra hné. Hún tók ár í að ná sér, fór í aðgerð og daglega til sjúkraþjálfara og komst í U19 árið 2007 en þá sleit hún að nýju, aftur á hægri. Efasemdaraddirnar komu upp að nýju en innst inni vissi Gunnhildur að hún myndi aldrei hætta, þetta var það sem hún vildi gera. „Þú ert búin að leggja allt þetta á þig,“ sagði hún sjálfri sér, „af hverju ekki að halda áfram?!“ Og það gerði hún, staðráðin í að verða enn betri en áður. Hún sneri aftur til Bandaríkj- anna og spilaði fyrir Pepperdine-háskóla í tæpt ár og sú reynsla sannfærði hana um að hún vildi verða atvinnumaður. Hún varð fyrir- liði Stjörnunnar og leiddi liðið að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli árið 2011. „Við unnum held ég fimm titla á tveimur ár- um og þá vissi ég strax að ef ég vildi ná lengra og gera meira þyrfti ég að fara út. Út fór hún, til Noregs nánar tiltekið, en hafði ekki spilað lengi þegar ólukkan dundi yf- ir að nýju. Hún sleit í þriðja skiptið árið 2013, í þetta skipti á vinstra hné og það aðeins viku áður en landsliðið kom saman fyrir EM. „Á tímabili var ég bara … af hverju ég?“ segir hún. Líkamlegu veikindin voru eitt en það að geta haldið geðheilsunni í gegnum þau var allt annað. Hún lagði sig alla fram við að koma eins sterk til baka og hún gat. „Ég hugsaði bara: stjórnaðu því sem þú stjórnar og slepptu svo takinu af restinni,“ segir Gunnhildur. „Ég lagði ótrúlega mikla vinnu á mig og fórnaði miklu en það hefur skil- að sér í dag.“ Klakarnir í ísteinu hennar eru löngu bráðn- aðir. Það er eflaust tekið að volgna í sólinni sem skín viðstöðulaust inn um gluggann, en hún gefur því lítinn gaum. Aftan á hægri upp- handlegg glittir í æðruleysisbænina. „Ég hugsa oft til hennar. ... Það er gott að eiga hana inni, segir Gunnhildur Yrsa um frænku sína Gunnhildi Sif, “ sem hefði orðið fyrsta íslenska konan til að spila á HM hefði hún lifað. Morgunblaðið/Hari ’Heima og í Noregi er deildinsvo skipt. Efsta liðið er sjaldanað fara að tapa fyrir neðsta liðinuen hérna þarf maður án gríns að fara í alla leiki hundrað prósent og ef maður á ekki góðan dag þá er maður að fara að tapa. Það er bara ákveðin pressa og maður þarf að fara í alla leiki eins og maður sé að fara í landsleik. Gunnhildur í tölum Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Fædd 28. september 1988 63Hún hefur spilað 63 leiki með A-landsliðinu og skorað níu mörk, þar af fjögur í undankeppni HM 2019. Þegar hún spilar með landsliðinu klæðist hún treyju númer fi mm. 23 Gunnhildur Yrsa klæðist treyju númer 23 hjá Utah Royals og hefur spilað alla leiki liðsins frá upphafi til enda, alls 2.070 mínútur í 23 leikjum. 20Hún á að baki eitt mark og tvær stoðsendingar en 20 lykilsendingar. 67,4Hún hefur unnið 67,4 prósent tæklinga sinna. 62Brotið hefur verið á henni 62 sinnum. 39Sjálf hefur hún hefur verið dæmd brotleg 39 sinnum og hlotið fjögur gul spjöld en ekkert rautt. 5 2.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.