Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.9. 2018
LESBÓK
FÓLK Uppistandarinn Louis C.K. var með sitt fyrsta uppistand í lang-
an tíma í New York á dögunum. Það hefur ekki farið mikið fyrir grín-
istanum upp á síðkastið, en í fyrra játaði kynferðisbrot gegn fimm kon-
um.
Meðal brotanna sem C.K. játaði á sig var að afklæðast fyrir framan
konurnar og fróa sér fyrir framan þær. Hann talaði ekki
um afbrot sín eða málin þar í kring í uppistandi sínu.
Endurkoman hefur vakið blendnar viðtökur á
samfélagsmiðlum. Sumir segja að C.K. sé að snúa
aftur of snemma og að meiri tími þurfi að líða
þar til sé við hæfi að hann fóti sig aftur í sviðs-
ljósinu. Eigandi staðarins sem stóð fyrir uppi-
standinu segist skilja gagnrýnina, en að ekki
megi refsa fólki að eilífu fyrir afbrot sín.
Aftur í sviðsljósið
Louis C.K.
Devil’s Advocate
Málsvari myrkva-
höfðingjans
The Matrix Re-
volutions
Bylt Fylki
The Hills Have
Eyes
Margt býr í fjöllunum
Manst þú eftir sjónvarps-þáttunum Vík milli vina(Dawson’s Creek), Ó
Ráðhús! (Spin City) og Fjör á
fjölbraut (Heartbreak High)? Það
þarf ekki að leita langt aftur í ís-
lenskar sjónvarpsdagskrár til að
finna íslenska þýðingar á flestum
dagskrárliðum. Framan af var
jafnvel aðeins þýddi titillinn birt-
ur og gat þá stundum verið erfitt
að vita um hvaða efni var að
ræða, sér í lagi ef þýðandinn tók
sér skáldlegt frelsi. Þar að auki
flæktust málin þar sem sömu titl-
ar voru oft notaðir yfir gjörólíkt
efni, en kvikmyndin Trainspott-
ing og þættirnir South Park voru
til að mynda bæði þýdd sem
Trufluð tilvera.
Það eru ekki allir sammála um
hvort á íslensku megi alltaf finna
svar. Margir reyna eftir fremsta
megni að þýða allt sem að kjafti
kemur, en öðrum finnst innihald-
ið getað rýrnað við þýðingu. Þótt
þessi umdeilda birtingarmynd
þýðingarlistarinnar í bíó- og
sjónvarpsdagskrám landsins sé
svo gott sem horfin, þá er gaman
að grúska í sögu hennar og finna
þá titla sem sitja eftir í minning-
unni.
Þýðing Die Hard
sem Á tæpasta
vaði er ódauðleg.
Hvað á þetta að þýða?
Dagblöð og aðrir þýddu lengi vel heiti nánast allra erlendra kvikmynda og sjónvarpsþátta á íslensku.
Þessi hefð er nánast horfin í dag, en hvaða þýðingar eru eftirminnilegastar?
Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is
Blade
Vopni
Mercury Rising
Hitnar í Kolunum
Look Who’s Talking
Pottormur í pabbaleit
Robocop
Riddari götunnar
The Crying Game
Hráskinnaleikur
Sleepy Hollow
Drungadalur
The Living
Daylights
Logandi hræddir
Spawn
Hetja úr neðra
Flatfoot Goes East
Harðjaxl í Hong
Kong
Jaws
Ókindin
Lethal Weapon
Tveir á toppnum
Cape Fear
Víghöfði
It’s the Rage
Syrtir í álinn
Every Which Way
But Loose
Viltu slást?
Point Break
Þrumugnýr
SJÓNVARP Óskarsverðlaunahafinn Ben
Kingsley mun fara með hlutverk í væntan-
legri sjónvarpsþáttaröð sem ber heitið
Our Lady, LTD. Þættirnir munu segja frá
loddara sem ætlar að svindla á sóknar-
presti en kemst að því að hann er mun
hættulegri en hann virðist við fyrstu sýn.
Kingsley mun fara með hlutverk prestsins
í þáttunum sem eru væntanlegir á næsta
ári, en framleiðendurnir hafa pantað tíu
þátta fyrstu seríu.
Kingsley státar af löngum og glæstum
kvikmyndaferli, en hann hefur ekki leikið
mikið í sjónvarpi undanfarna áratugi.
Varasamur sóknarprestur
Ben Kingsley
kvikmyndaleikari
Lady Gaga
Frumsemur
tónlistina
TÓNLIST Tónlistarkonan Lady
Gaga samdi ný lög fyrir myndina A
Star is Born þar sem hún fer með
aðalhlutverkið á móti Bradley
Cooper. Plata með lögunum úr
myndinni kemur út samhliða frum-
sýningu hennar 5. október og hefur
nítján laga listi hennar verið birtur
sem inniheldur meðal annars ný lög
frá Gaga.
KVIKMYNDIR
Hinn kraftmikli
Dwayne Johnson
hefur verið ráðinn
til að fara með
aðalhlutverkið í
væntanlegri mynd
DC um andhetjuna
Black Adam. John-
son er tekjuhæsti
leikarinn í Hollywood í dag og ætl-
ar greinilega ekki að láta sig vanta
í ofurhetjuæðið. Black Adam er
ekki vel þekkt ofurhetja og átti
upprunalega að birtast í væntan-
legu myndinni Shazam! sem auka-
hlutverk, en það er líklegt að að-
dráttarafl Johnsons muni stuðla að
mikilli aðsókn.
Svarti Adam
Dwayne
Johnson
TÓNLIST Rapparinn Eminem gaf
óvænt út plötuna Kamikaze í vik-
unni. Hann hafði nokkrum dögum
fyrr gefið sýnishorn af lagi á plöt-
unni sem verður notað í myndinni
Venom, en útgáfa plötunnar var
ekki auglýst. Eminem gaf síðast út
plötuna Revival, þar sem hann fékk
meðal annars Ed Sheeran og
Beyoncé sér til liðs.
Eminem
Óvænt plata