Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Blaðsíða 27
Getty Images/iStockphoto
Kóngamörgæsir eru með-
al þeirra fimm tegunda
mörgæsa sem ráfa um
strendur Falklandseyja.
Flestir ferðamenn koma til eyjanna til að sjá mörgæsir.
Íslenskt vandamál
Ferðamennska hefur aukist gríð-
arlega á síðustu árum á Falk-
landseyjum. Árið 2010 komu í
kringum 500 ferðamenn til
eyjanna, en áratug seinna, árið
2015, voru ferðamennirnir orðnir
rúmlega 60 þúsund.
„Oft og tíðum fjölgar fólki á
eyjunum um meira en helming á
einum degi, þegar skemmtiferða-
skip koma í höfn,“ segir Stewart-
Reid, en ferðamennska hefur orðið
einn stærsti hlutinn í hagkerfi
eyjanna.
Í kjölfarið hafa Falklandseyj-
ingar þurft að glíma við vandamál
sem við á Íslandi þekkjum betur
en við kærum okkur um, líkt og
slæma umgengni ferðamanna og
sóðaskap.
Íbúar Falklandseyja eru aðeins í
kringum þrjú þúsund, en tæplega
20 sinnum fleiri ferðamenn heim-
sækja eyjarnar á ári hverju.
Til að sporna við þeim vanda-
málum sem fylgja aukinni ferða-
mennsku hafa óformlegar hegð-
unarreglur verið settar sem
ferðamenn eru beðnir um að fylgja.
Samkvæmt þeim eru ferðamenn til
dæmis beðnir um að halda sig við
vegi, gefa villtum dýrum ekki mat,
tína ekki blóm – þar sem þau gætu
verið friðuð – og flytja ekki bein,
egg eða slíkt úr landi.
Fáni Falklandseyja er dæmigerður fyrir yfirráðasvæði Breta.
Falklandseyjar eru í Suður-Atlantshafi, við strendur Argentínu.
Getty Images/iStockphoto
2.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Nýjar
vörur
Vasi antiq brass
22.900
Spegill 80cm
18.900
Hliðarborð á hjólum
120.000
Viðar hliðarborð 38.500
Ljós 35.900
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST