Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.9. 2018 Þ ótt því sé haldið fram af einhverjum að sumarið 2018 hafi aldrei komið er eftirsjá að því eins og öðrum sumr- um. Kvöldblíðan lognværa á þó iðu- lega sviðið í september og kyssir hvern reit, svo of fljótt er að örvænta. Eitt af því sem gerir sumartíð svo huggunarríka á Ís- landi er að þessar vikur sem nóttin hverfur úr sólar- hringnum liggur pólitískur áhugi í dvala. Það tekur hann tíma að komast á dagskrá þótt fyrstu merki skammdegis sjáist. Því var eftirtektarvert að þegar nokkur félög sjálf- stæðismanna í Reykjavík boðuðu til fundar síðdegis á fimmtudegi upp í Valhöll skyldi húsið fyllast út úr dyrum. Úti var slengjandi slagveður og öll bílastæði tekin um það bil sem fundur hófst, en menn settu und- ir sig hausinn og flykktust inn. Strembið fundarefni Þó var fundarefnið og yfirskrift þess ólíklegt til að „trekkja,“ og það jafnvel þótt árstíminn hefði verið upplagðari fyrir pólitík: „Væntanleg innleiðing þriðja orkumálapakka Evrópusambandsins inn í EES samn- inginn.“ Það þyrfti að hafa fyrir því að finna óálitlegra fundarefni en þetta. Kannski þess vegna hafa einhverjir talið sér óhætt að læða málinu framhjá þjóðinni kjallaramegin, þótt líkindi stæðu til þess að embættiskerfið væri að láta stjórnmálaforystuna brjóta stjórnarskrána. Embættiskerfið ber enga ábyrgð en stjórnmála- menn gera það og sjálf stjórnarskráin mælir fyrir um að þannig skuli það vera. En fundarsóknin í kjölfar einnar blaðaauglýsingar samdægurs svarar því til að þessu máli verður ekki svo auðveldlega svindlað í gegn, þrótt brotaviljinn virðist óþægilega einbeittur. Pakkinn opnaður Fjórir prýðilegir framsögumenn voru á fundinum um orkumálapakkann. Þeir voru hver með sinn þátt undir og var það gagnlegt. Um sumt virtist málið flókið en á daginn kom að það sem skiptir máli var einfalt. Erind- in voru ítarleg og vönduð og fundarmenn virkir og því teygðist verulega á fundinum án þess að þynntist á bekkjunum. Varla getur nokkur maður sem leitar sér lágmarks- upplýsinga efast um það að þessi pakki verði færður inn í íslenska löggjöf og reyndar látinn yfirtaka mikil- vægan þátt hennar, að óbreyttum stjórnskipunar- lögum landsins. Það er jafn örðugt að sjá nokkra ástæðu til þess að þeim sömu stjórnaskipunarlögum yrði breytt til þess að tryggja framgang þessa máls. Það gengur hvert sem litið er öndvert á hagsmuni þjóðarinnar. Hin raunverulega ástæða Þótt það hafi aldrei verið viðurkennt upphátt gengur undarlegur og ógeðfelldur hringlandi um stjórnar- skrá landsins augljóslega út á það meginatriði að gera þeim flokkum sem amast mest við íslensku fullveldi auðveldara að koma því fyrir kattarnef. Engin skýring hefur hins vegar verið gefin á því af hverju hver ríkisstjórnin af annarri, þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn leggur til drjúgan stuðning, þótt hann sé enn fjarri því að hafa náð vopnum sínum, birt- ist í sífellu með þennan ógeðfellda laumufarþega inn- anborðs. Þessi kynlegi kækur gerir landsmönnum erf- iðara en ella að gleyma gönuhlaupi flokksins þegar hann birtist óvænt og skýringalaust sem björgunar- hringur Jóhönnu og Steingríms í Icesave. Stór hluti þáverandi kjósenda flokksins hefur ekki enn fyrir- gefið þetta og þeim sem öðrum bregður jafnan þegar glittir í tilþrif af því tagi. Flokkurinn gat aldrei út- skýrt málatilbúnað sinn, ekki fremur en hitt að hann reyndist ófær um að afturkalla aðildarumsókn að ESB, sem þarf aðeins einfalda þingsályktun til. Slík tillaga var lögð fram og eftir það var fullkomlega óhjá- kvæmilegt að afgreiða hana. Það var ekki gert þótt heilt þing væri til þess. Aldrei hefur verið upplýst hvers vegna flokkurinn hefur staðið að því í fjórum ríkisstjórnum í röð að gera atlögu að lýðveldis- stjórnarskránni og það jafnvel eftir að flokksbrotið sem var áhugasamt um það var horfið úr flokknum. Skýringarleysið er verst Fréttir af „formannafundi í Þingvallabæ“ báru allar með sér að tilgangurinn var ekki annar en sá að læð- ast aftan að íslensku fullveldi. Og nú virðist þessi orkupakki orðinn að bögglingi Sjálfstæðisflokksins! Landsfundur hefur þegar afgreitt málið með þunga. Það var m.a. gert á sama fundi og núverandi iðnaðar- ráðherra var kjörinn varaformaður. Þess vegna er erfitt að horfa upp á þann ráðherra láta rugla sig í ríminu. Rökin sem helst eru nefnd eru ekki beysin. „Það myndi eitthvað mjög alvarlegt koma fyrir ef við hlýðum ekki skrifstofumönnum í Brussel, eins og við gerum alltaf.“ Þetta var reyndar inntakið í gerningaveðri áróðurs- ins vegna Icesave. Og því er gjarnan bætt við að Brusselvaldið gæti tekið upp á að refsa okkur ef við hlýddum ekki fyrir- mælum þess. Eins gott Það er gleðiefni fyrir þjóðina að útfærsla íslenskrar landhelgi er ekki í höndunum á stjórnmálamönnum samtímans. Þá væri línan enn bundin við þrjár mílur. Því eins og menn muna voru þeir í Evrópu heilmikið á móti því í hvert eitt sinn og höfðu í hótunum og fylgdu þeim eftir. Allur er þessi aumingjadómur með miklum ólíkindum. ESB gæti vissulega samkvæmt samn- ingnum um Evrópska efnahagssvæðið gripið til „sam- bærilegra mótvægisákvarðana“ ef Ísland hefði ekki lögtekið eitthvað í sínar bækur sem því bæri að gera og hefði ekki málefnalegar ástæður til að hafna. Á þetta hefur aldrei reynt því að Ísland kyngir jafn- an öllu. En Brusselliðið, sem litla fólkið í ráðuneyt- unum umgengst eins og börn umgangast leikskóla- kennara, hefði enga stöðu til að yggla sig í þessum efnum. Það á ekki við, eins og hefur legið fyrir frá fyrsta degi og mátti lesa úr þessum fína fundi í Val- höll. ESB er sem stofnun fullkomlega ljóst, eða ætti að vera það, að Ísland mætti aldrei og myndi aldrei lög- taka reglugerðir eða tilskipanir sem því væri óheimilt í stjórnarskrá. Frá fyrsta degi samningaviðræðna um EES var við- semjandanum gerð grein fyrir þessari staðreynd. Ríkisstjórnin fékk vandaðan hóp fræðimanna til að fara yfir það hvort EES-samningurinn stæðist stjórn- arskrá, enda hafði í átökum um hann verið fullyrt að svo væri ekki. Andstæðingarnir nutu lögfræðiað- stoðar að sínu leyti og fengu þá niðurstöðu að EES- samningurinn færi út fyrir mörkin sem stjórnarskráin leyfði. Ríkisstjórnin og aukinn meirihluti Alþingis féllst hins vegar á það mat sem hin opinbera laga- nefnd hafði í sinni niðurstöðu. En það fór aldrei á milli mála og var viðurkennt og ítrekað á fundinum á fimmtudag að þar var farið að ystu mörkum. Heildarmyndin skiptir öllu Á fundinum var á það bent að í mörgum einstökum og vissulega stundum minniháttar innleiðingum benti flest til að farið væri út fyrir heimildir stjórnarskrár. Suma pakka er best að sleppa því að opna ’ Engin skýring hefur hins vegar verið gefin á því af hverju hver ríkisstjórnin af annarri, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til drjúgan stuðning, þótt hann sé enn fjarri því að hafa náð vopnum sínum, birtist í sífellu með þennan ógeðfellda laumufarþega innanborðs. Reykjavíkurbréf31.08.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.