Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Qupperneq 15
sem aðalkarlinn í eldhúsinu. Ég væri frekar til í að vera aðstoð- armaður hjá öðrum sem kann meira en ég. Bestu kokkarnir okkar eru svo miklir listamenn; diskarnir sem þeir bera fram margir hverjir,“ seg- ir hann dreyminn og við fáum báðir vatn í munninn við tilhugsunina. Á krossgötum Eins og fram hefur komið er Þröst- ur á krossgötum; sagði skilið við leikhúsið í vor eftir áratuga farsælt starf. „Það kemur ekki til af góðu,“ segir hann alvarlegur í bragði. „Eins og margir vita lenti ég í sjó- slysi fyrir þremur árum og hef glímt við kvíða allar götur síðan. Þetta var farið að bitna á vinnu minni í leikhúsinu og ég fann að ég ræð einfaldlega ekki við þetta leng- ur. Það fylgir því mikið álag að vera leikari, að þurfa stöðugt að standa sína plikt fyrir framan fjölda fólks, og þegar kvíði er í spilinu, eins og hjá mér, fer þetta alls ekki vel saman.“ Kornið sem fyllti mælinn var at- vik í janúar síðastliðnum þegar Þröstur fékk kvíðakast í Þjóðleik- húsinu rétt fyrir sýningu. „Ég sat bara í stólnum í sminkinu og fann hvernig kvíðinn helltist allt í einu yfir mig. Á einni eða tveimur sek- úndum skipti ég hreinlega um lit; varð grár í framan. Sminkan sá að ekki var allt með felldu og hringdi á sjúkrabíl sem flutti mig á spítala. Ég náði mér fljótt en áttaði mig eigi að síður á því að ég yrði að skipta um vettvang. Leikhúsið væri ekki lengur fyrir mig.“ Fraus og mundi ekki textann Skömmu áður hafði þyrmt yfir Þröst á sviðinu – í miðri sýningu. „Allt í einu fór ég í „blakkát“. Fraus bara og mundi ekki textann. Þetta var mjög vandræðalegt. Það heyrðu allir í salnum í hvíslaranum enda Þröstur Leó með hnífinn á lofti í eldhúsinu á Hlemmur Square. Hann var ekki hár í loftinu þeg- ar hann flakaði sinn fyrsta fisk og hefur alla tíð haft yndi af matargerð. „Eins og margir vita lenti ég í sjóslysi fyrir þrem- ur árum og hef glímt við kvíða allar götur síðan. Þetta var farið að bitna á vinnu minni í leikhús- inu og ég fann að ég ræð einfaldlega ekki við þetta lengur. Það fylgir því mikið álag að vera leikari, að þurfa stöðugt að standa sína plikt fyr- ir framan fjölda fólks og þegar kvíði er í spilinu, eins og hjá mér, fer þetta alls ekki vel saman,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson. Morgunblaðið/Eggert 16.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.