Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Side 17
Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverki Snæfríðar og Þröstur Leó í hlutverki Magnúsar í Bræðratungu í sýningu Borg- arleikhússins á Snæfríði Íslandssól 1996. Þröstur í hlutverki tónskáldsins Jóns Leifs í kvikmyndinni Tár úr steini árið 1995. Með honum er Bergþóra Ara- dóttir sem lék dóttur Jóns, Líf. Þröstur sem Mikki ref- ur í Dýrunum í Hálsa- skógi í Þjóðleikhúsinu 2003 ásamt Bessa heitnum Bjarnasyni sem lék sama hlutverk mörgum árum áður. Þröstur og Ólafur Darri Ólafsson í hlut- verkum sínum í Brúð- gumanum árið 2008. Morgunblaðið/Árni TorfasonMorgunblaðið/Golli Þröstur sé jafnvígur á grín og al- vöru. „Ég hef verið svo heppinn alla tíð að hafa fengið að leika grín og drama jöfnum höndum. Þurfi ég að velja á milli þykir mér grínið skemmtilegra. Það er líka glettilega erfitt að gera góðan gamanleik; velt- ur svo mikið á tímasetningum og stemningu. Salurinn er auðvitað mjög mikilvægur í dramatískum verkum en hann er ennþá mikilvæg- ari í gríninu. Tengi áhorfendur ekki strax getur sýningin hæglega fallið flöt. Og við finnum þetta yfirleitt mjög snemma, hvort salurinn er með á nótunum eða ekki. Það getur verið heilmikill munur milli kvölda á sama verkinu. Einmitt þess vegna eru engar tvær leiksýningar eins.“ Þegar talið berst að kvikmynd- unum nefnir Þröstur fyrst Tár úr steini eftir Hilmar Oddsson, þar sem hann lék tónskáldið Jón Leifs. „Það var stór persóna og eftirminnileg glíma, ekki síst fyrir þær sakir að ég þurfti að leika að hluta á þýsku – sem ég talaði ekki. Fékk hins vegar góða hjálp og held að það hafi sloppið.“ Og aftur, rúmlega það, svo vitnað sé í umsögn Erlendar Sveinssonar um myndina í Morgunblaðinu: „Þetta eru átakanlegar manneskjur af holdi og blóði í stórkostlegri túlk- un Þrastar Leós Gunnarssonar, sem leikur Jón Leifs, Rutar Ólafsdóttur, sem leikur eiginkonu hans Annie Riethof Leifs, Bergþóru Aradóttur, sem leikur yngri dótturina Líf, og Sigrúnar Lilliendahl, sem leikur eldri dótturina Snót.“ Fjör í Flatey Þröstur segir líka hafa verið gaman að gera Brúðgumann úti í Flatey, þar sem Baltasar Kormákur leikstýrði. „Það var mjög skemmtileg vinna en við vorum öll saman í mánuð úti í eynni. Það væri eins og að flytja leik- ara og aðra sem koma að bíómynd inn í sjálft kvikmyndaverið.“ Loks nefnir hann Djúpið, einnig eftir Baltasar Kormák. „Þetta var árið 2012 og ég gerði mér enga grein fyrir því þá að þremur árum síðar ætti ég sjálfur eftir að lenda í svipuðum aðstæðum. Ég synti að vísu ekki í land eins og Guðlaugur en margt var líkt með þessum slysum; þeir komust líka upp á kjölinn en ákváðu að reyna að synda í land þeg- ar þeir áttuðu sig á því að engin hjálp var á leiðinni.“ Raunar fékk Þröstur símtal frá téðum Guðlaugi Friðþórssyni eftir að hann lenti í slysinu fyrir vestan. „Það var mjög dýrmætt símtal en Guðlaugur hefur, eins og ég, barist lengi í þessum öryggismálum sjó- manna. Við áttum gott spjall og ákváðum að hittast við tækifæri. Ekki hefur orðið af því ennþá en vonandi gerist það fyrr en síðar. Saga Guðlaugs er auðvitað einstök.“ Enda þótt Þröstur Leó Gunn-arsson hafi ekki leikið sittsíðasta hlutverk er þetta ekki verri tímapunktur en hver annar til að horfa um öxl og rýna í vörðurnar á löngum vegi. „Úff,“ segir Þröstur og hallar sér aftur í sætinu, þegar spurt er hvaða hlutverk í leikhúsinu séu eft- irminnilegust. „Það er svo erfitt að gera upp á milli hlutverka, upp- færslurnar eru orðnar svo margar. Ætli sé ekki freistandi að svara þessu á þann veg að uppáhalds- hlutverkið sé hlutverkið sem maður glímir við hverju sinni.“ Hann glottir. Sleppur þó ekki svona auðveld- lega af önglinum. „Það eru ekki endilega stærstu rullurnar sem skilja mest eftir sig. Ég hef alltaf haft gaman af smærri hlutverkum, þar sem maður fær kannski ekkert alltof miklar leiðbeiningar í handrit- inu. Slíkar rullur bjóða oftar en ekki upp á skemmtilegar útfærslur í túlk- un. En, jú, jú, mörg stærri hlutverk eru líka eftirminnileg. Ég lék til dæmis sjálfan Hamlet þegar ég var ekki nema 27 ára. Kunni nú ekki mikið fyrir mér á þeim tíma, eftir á að hyggja, en skakklappaðist gegn- um þetta.“ Tja, rúmlega það, ef marka má umsögn Hávars Sigurjónssonar um sýninguna í Morgunblaðinu: „Þröst- ur Leó vinnur hér leiksigur, ein- hvern veginn finnst manni blasa við af hversu mikilli einlægni og virð- ingu hann hefur nálgast hlutverk sitt; án þess að ofmetnast, án þess að láta hugfallast og útkoman er full- komlega trúverðugur Hamlet sem gengur á vit örlaga sinna vegna þess að aðrar leiðir virðast ekki færar. „Að vera eða ekki vera“ er þekkt- asta upphaf ræðu í leikriti – þeir eru sennilega færri sem þekkja fram- haldið – og þegar ungum leikara tekst að blása lífi í þessa gömlu ræðu, þannig að maður trúir því að verið sé að segja hana í fyrsta skipti, þá … ja, þá er maður einfaldlega á réttum stað það kvöldið.“ Grínið skemmtilegra Þröstur getur heldur ekki sleppt að nefna aðra goðsögn úr leik- bókmenntunum; Mikka ref í Dýrunum í Hálsaskógi. „Hann mun alltaf loða við mig.“ Óhætt er að fullyrða að Fékk símtal frá Guðlaugi Þröstur ásamt Guðjóni Davíð Karlssyni í leikritinu Gói og Baunagrasið árið 2012. Morgunblaðið/Frikki Þröstur var valinn besti leikari í aukahlutverki á Edduhátíðinni 2003 fyrir leik sinn í Nóa Albínóa. 16.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 MIÐASALA HAFIN! Björgvin Halldórsson · Daði Freyr · Dagur Sigurðsson · FRiðrik Dór Gissur Páll · Glowie · Jóhanna Guðrún ·Selma Björnsdóttir · Svala OG SÍÐAST EN EKKI SÍST jólasTJARNAN 2018 Miðasala fer framáharpa.is/jolagestir og í síma 528 5050

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.