Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Qupperneq 18
Frystu
bílalánin
Í lok nóvember
höfðu 20 þúsund
bílalán, af um 80
þúsund samn-
ingum fjögurra
stærstu
fjármögnunarfyrir-
tækjanna verið
fryst í fjóra
mánuði.
Morgunblaðið/Ómar
Klifraði upp á þak
Haukur Hilmarsson, sem talinn
er hafa fallið í Afrin-héraði í Sýr-
landi í byrjun þessa árs, klifraði
upp á þak Alþingishúsins og
flaggaði fána Bónus-verslana-
keðjunnar á flaggstöng hússins.
Handtaka hans tveimur vikum
seinna leiddi til áhlaups á lög-
reglustöðina við Hverfisgötu þar
sem Haukur var í haldi.
Morgunblaðið/Kristinn
Tíðir borgarafundir
Settir voru af stað sérstakir opn-
ir borgarafundir nokkrum vikum
eftir hrun þar sem almennir
borgarar viðruðu áhyggjur sínar
af ástandinu. Ráðamenn mættu
margir á þessa fundi og sátu fyrir
svörum milliliðalaust en fund-
irnir fóru ýmist fram í Iðnó, Nasa
og Háskólabíói. Fundirnir voru
vel sóttir og oft fullt út úr dyrum.
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Ómar
Sjötti laugardagurinn í röð
Mikill mannfjöldi var á mótmælafundi við Alþingishúsið laugardaginn 17. nóv-
ember og taldi lögreglan að um sex þúsund manns hefðu verið á staðnum en
skipuleggjendur mótmælanna töldu töluna nær tíu þúsundum.
Margfalt fleiri leituðu aðstoðar
Starfsfólk Mæðrastyrksnefndar í óðaönn að útdeila mat. Þeim sem leituðu
aðstoðar fjölgaði gríðarlega.
Morgunblaðið/RAXMorgunblaðið/Ómar
Einn bíll til landsins
Innflutningur til landsins minnkaði verulega mikið á síðustu vikum. Lýsandi dæmi var að einungis einn bíll kom til lands-
ins með Eimskip síðustu viku októbermánaðar.
Morgunblaðið/RAX
Áhugi fór ekki
eftir aldri
Hjalti Þór Ísleifsson, 12
ára drengur, hélt úti
bloggsíðu þar sem hann
ræddi ástandið í þjóð-
félaginu og sagði vini sína
ekki skilja neitt í sér.
Morgunblaðið/Golli
Ýmsar hugmyndir
Fólk var óspart á hugmyndir um hvernig
mætti bæta ástandið á þessum tímum.
Velvakandi fylltist af bréfum þar sem fólk
deildi sparnaðarráðum og tillögum að því
hvernig best væri að fara í gegnum þetta.
Hörð mótmæli vegna
morgunleikfiminnar
Fljótlega var tilkynnt að
morgunleikfimi Ríkisútvarpsins
undir stjórn Halldóru Björns-
dóttur yrði lögð af áramótin
2008-2009 í sparnaðarskyni, en
leikfimin hafði þá verið
samfleytt á dagskrá síðan
1957. Sjúkraþjálfarar og
íþróttakennarar sem og
almenningur mótmæltu
þessu hástöfum og í
desember var hætt við að
taka hana af dagskrá.
Pólverjar heim
með Norrænu
Feðgarnir Lukas og Stan-
islav halda heim á leið frá
Selfossi, þar sem þeir
höfðu búið og starfað.
Enga vinnu var lengur að
hafa og fylgdu myndatöku-
menn þeim og fleiri Pól-
verjum úr landi en þeir
voru að vinna frétt fyrir
þýsku sjónvarpsstöðina
ZDF.
10 ÁR FRÁ HRUNI
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.10. 2018
Morgunblaðið/Valdís Thor