Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Blaðsíða 37
Atli Rafn í hlutverki Jóhanns og Kaspar Velberg í hlutverki Igors.
forðast klisjurnar og hugsar frekar
um spurninguna hvernig við getum
mögulega reynt að öðlast betri skiln-
ing á samfélaginu.
„Kvikmyndir eru svo flottur miðill
sem er hægt að nota til að hjálpa
samfélaginu og spyrja spurninga.“
Miðað við heimildarmyndabak-
grunn Ara kemur ekki á óvart að
fyrst hafi hann hugsað sér að gera
heimildarmynd um þetta mál. „Hug-
myndin var að kortleggja þennan
fíkniefnaheim og hvernig þetta eigi
sér stað,“ segir hann.
Dýragarðsbörnin besta for-
vörnin
Hann rifjar upp að kvikmyndin Dýra-
garðsbörnin hafi haft mikil áhrif á
hann sjálfan þegar hann var ungling-
ur og sá hana 14 ára gamall með
bekknum sínum í Danmörku.
„Ég held að þetta hafi verið ein-
hver besta forvörn sem þú gætir
mögulega lent í sem unglingur,“ segir
hann.
Hann gerði heimildamynd um
Breiðavík, Syndir feðranna, „sem var
verkefni sem breytti landslögum“, en
hann sat í stjórn Breiðavíkursamtak-
anna í mörg ár.
Er ekki að prédika
„Ég hef fengið mér nokkra gúlsopa af
lífinu sjálfur og fengið loftsteina í
hausinn,“ segir Ari, sem hræðist
greinilega ekki erfiðu málin.
„Það væri svo auðvelt að sigla í
gegnum lífið og láta eins og erfiðu
málin væru ekki til staðar og helst að
sitja bara og fordæma,“ segir hann
og leggur áherslu á að hann sé ekki
að prédika í Undir halastjörnu.
Í spennandi stiklu fyrir myndina
kemur fram í fréttaklippu að enginn
viti hver maðurinn í höfninni sé og
enginn sakni hans. Ara er mikið í
mun að segja mannlegu söguna af
þessum strákum sem eru í erfiðum
aðstæðum og hvernig þeir komu sér í
aðstæðurnar.
„Ég set forsögu í myndina til að
gera þá mennskari,“ segir hann.
Myndin hefst árið 1991 í Eistlandi, en
Ísland var fyrst allra ríkja til að
viðurkenna sjálfstæði Eystrasalts-
ríkjanna. „Þess vegna fá þeir áhuga á
Íslandi. Ísland verður svona land
vonar og framtíðar. Myndin byrjar á
því að Sovétríkin eru að liðast í sund-
ur og persónurnar eru kynntar til
sögunnar en þeir voru æskuvinir í
raunveruleikanum. En ég tek mér
mikið skáldaleyfi,“ segir hann.
Samvinna við Eistland
Eins og áður segir voru strákarnir
frá Litháen í raunveruleikanum en í
myndinni eru þeir frá Eistlandi.
„Ég hef unnið með eistnesku fram-
leiðslufyrirtæki í mörg ár þannig að
allt aðgengi þar var svo miklu betra.
Landið skipti heldur ekki máli fyrir
söguna,“ segir Ari en hann gerði
þetta líka til að skapa ákveðna fjar-
lægð frá kvikmyndinni og hinum
raunverulegu atburðum.
„Ég lagði mikið í að finna réttu
leikarana,“ segir Ari, sem vann með
eistneskri umboðsskrifstofu. Hann er
ánægður með samvinnuna við Eist-
land. „Eistland er svo mikil kvik-
myndaþjóð og það er nauðsynlegt að
hafa tengsl út í heim.“
Ari er menntaður myndlistar-
maður en starfar ekki lengur sem
slíkur. „Kvikmyndagerð er svo stór-
kostlegt fyrirbæri. Ég gæti ekki
hugsað mér að gera neitt annað þó að
ég hafi áhuga á öllum listum og sé
menntaður myndlistarmaður. Í kvik-
myndagerð koma öll formin saman.
Þetta er ákveðin áhættufíkn og
ábyrgðarleysi; þú leiðist út í kvik-
myndagerð,“ segir hann í bæði gamni
og alvöru.
Flækjustig fíkniefnaheims-
ins
Ari segir að hann sé fyrst og fremst
að benda á að þetta flækjustig fíkni-
efnaheimsins hafi bara stækkað.
Hann vill sjá meira gert í baráttunni
gegn fíkniefnum á Íslandi.
„Það er ástæða fyrir því að það fyr-
irfer sér ein manneskja á viku á Ís-
landi, þetta er svo mikið mein en það
er engin lausn í sjónmáli. Það er bara
verið að slökkva elda. Þetta er
krabbamein í samfélaginu og er alltaf
að vaxa. Ég þekki enga fjölskyldu
sem er ekki með fjölskyldumeðlim
sem er alkóhólisti, dópisti eða með
geðræn vandamál,“ segir hann.
Draugur í sögunni
Það er saga á bak við nafnið á mynd-
inni, Undir halastjörnu. „Það kemur
sterkt í ljós snemma í myndinni en
Mihkel finnur stein sem hann heldur
að sé mögulega halastjarna. Í öllum
fornsamfélögum, bæði hjá Inkum og
Egyptum, boðaði það að sjá hala-
stjörnu ógæfu. Þessi halastjarna sem
Mihkel finnur sem barn leiðir okkur
áfram gegnum söguna. Það er draug-
ur í myndinni og það er líka draugur í
raunverulegu sögunni,“ segir hann og
lýsir því hvernig allt hafi gengið á
afturfótunum hjá gerendunum í mál-
inu.
„Þeir taka allar þær röngu ákvarð-
anir sem hægt er að taka og maður-
inn deyr. Þeir henda honum í höfnina
í Neskaupstað og þá fer kafari þarna
daginn eftir sem hafði aldrei farið
þarna niður. Þeir bara áttu ekki að
komast upp með þetta,“ segir Ari,
sem þrátt fyrir myrkt umfjöllunar-
efni trúir á hið góða. „Ég trúi á hið
góða í manninum, það er ekki spurn-
ing. Þetta er líka spurning um það að
læra að fyrirgefa fólki sem hefur gert
eitthvað á þinn hlut,“ segir Ari, en
honum er ofarlega í huga samfélags-
ábyrgð okkar gagnvart þeim sem eru
minnimáttar.
Í fyrstu stóð til að gera myndina
árið 2008 en hann segir að það hafi
frestast því Kvikmyndasjóður Ís-
lands hafi verið skorinn niður um
helming eftir hrun.
„Þá var ég með annað leikaralið og
aðeins öðruvísi sýn á verkefnið. Ég er
feginn að þetta frestaðist þó að ég sé
ekki að segja að það eigi að taka 14 ár
að gera bíómynd! Ég var svolítið bú-
inn að ýta þessu verkefni frá mér áð-
ur en þessi draugur kom aftur,“ segir
Ari en hann vildi greinilega ekki láta
gleyma sér.
Ari og félagar eru nú komnir til
Suður-Kóreu, en Undir halastjörnu
tekur þátt í World Cinema-hluta
Busan, stærstu kvikmyndahátíð As-
íu, sem fram fer 4.-13. október og er
þetta jafnframt heimsfrumsýning á
myndinni. Tvær íslenskar myndir eru
á hátíðinni, en Lof mér að falla er
sýnd í sama flokki.Tómas Lemarquis í hlutverki Bóbós.
7.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 26. október
Vertu
viðbúinn
vetrinum