Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að út-
hluta Minjavernd lóð og bygging-
arrétti fyrir flutningshús við Star-
haga 1 í Reykjavík. Umrædd lóð er á
mótum Starhaga og Suðurgötu,
skammt frá Reykjavíkurflugvelli.
Hún er á hægri hönd þegar Suður-
gatan er ekin í átt að Skerjafirði.
Minjavernd greiðir samtals krónur
27.912.120 fyrir byggingarréttinn og
gatnagerðargjaldið.
Skrifstofa eigna og atvinnuþróun-
ar Reykjavíkurborgar auglýsti lóð-
ina Starhaga 1 lausa til umsóknar í
október 2017 fyrir flutningshús.
Lóðin var boðin á föstu verði sam-
kvæmt mati tveggja löggiltra fast-
eignasala. Engar tillögur um flutn-
ingshús bárust á auglýsinga-
tímanum en nokkrar tillögur bárust
um að byggja þarna nýtt hús í göml-
um stíl. Í grein-
argerð skrifstou
eigna og at-
vinnuþróunar
kemur fram að
haft var samband
við tvo aðila sem
vitað var að ættu
flutningshús.
Sóttu þeir báðir
um, annar aðilinn
var Laug ehf. en
hinn var Minja-
vernd með flutningshúsið sem áður
stóð við Laugaveg 36.
Í umsögn skipulagsfulltrúa dags.
5.1. 2018 var komist að þeirri niður-
stöðu að húsið Laugavegur 74 félli
betur að lóðinni en Laugavegur 36
og úthlutaði borgarráð Laug ehf.
lóðinni hinn 17. maí 2018. Laug féll
frá úthlutun á lóðinni þar sem
Laugavegur 74 skemmdist í eldi á
geymslustað úti á Granda. Var því
óskað eftir úthlutun lóðarinnar til
Minjaverndar fyrir flutningshúsið
sem áður stóð á Laugavegi 36.
Minjavernd hefur á undanförnum
árum staðið myndarlega að upp-
byggingu gamalla húsa víða um
landið.
Húsin þurftu að víkja
Að sögn Þorsteins Bergssonar,
framkvæmdastjóra Minjaverndar,
var húsið sem stóð upphaflega á
Laugavegi 36 orðið fyrir vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda við hótel-
byggingu á lóðinni árið 2014. Þar hjá
stóð einnig húsið Grettisgata 17a
sem einnig var fyrir vegna fram-
kvæmdanna.
Minjastofnun, Borgarsögusafn og
Reykjavíkurborg lögðu áherslu á að
húsin yrðu ekki rifin og þeim fargað.
Minjavernd tók þá að sér að beiðni
Reykjavíkurborgar að flytja húsin,
finna þeim framtíðarstað í samvinnu
við Reykjavíkurborg og annast og
kosta endurgerð þeirra. Húsin voru
fyrst flutt út á Grandagarð haustið
2014, en síðar að aðstöðu Minja-
verndar á Esjumelum. Að endur-
gerð lokinni verða þau seld. Húsið af
Grettisgötu 17 verður sett niður á
lóð að Grettisgötu 9a. Unnið hefur
verið að niðurstöðu með framtíðar-
stað fyrir Laugavegshúsið og kann-
aðir nokkrir kostir.
„Þegar það atvikast svo að húsið
af Laugavegi 74 brennur að hluta á
geymslustað á Grandagarði og að
niðurstöðu verður að það fari ekki á
Starhaga 1 var sú lóð skoðuð á ný
fyrir þetta hús og Minjavernd boðin
lóðin með það í huga. Félagið hefur
ákveðið að taka því og verður stað-
setningin nú skoðuð í ljósi fyrirliggj-
andi skipulagsheimilda á Starhaga,“
segir Þorsteinn.
Minjavernd hefur þegar endur-
byggt húsið að hluta til og var sú
lagfæring unnin í samráði við Minja-
stofnun og Borgarsögusafn. Húsið
stendur á athafnasvæði Minjavernd-
ar á Kistumel og var endurbyggt
þar.
Nú þegar í stefnir að það fari á
Starhaga 1 verður skoðað hvernig
það falli best innan þeirra skipulags-
heimilda sem þegar eru fyrir hendi á
þeim stað, segir Þorsteinn. Gera
megi ráð fyrir að þar verði m.a.
kannað hvort rétt sé að byggja eitt-
hvað við húsið.
Í dag er grunnflötur þess rúmur
51 fermetri og gert ráð fyrir kjall-
ara, hæð og risi eða tæpum 150 fer-
metrum, en á Starhaga er heimild
fyrir stærra húsi eða allt að 240 fer-
metrum. Það liggur ekki fyrir hve-
nær Minjavernd mun hefjast handa
við frekari undirbúning eða flutning
hússins að Starhaga, en líklega verð-
ur það á næsta ári, að sögn Þor-
steins.
Ljósmynd/Minjavernd
Laugavegur 36 Stendur nú á Kistumel og verður brátt tilbúið til flutnings á nýjan stað.
Morgunblaðið/sisi
Starhagi Lóðin við Skerjafjörð, þangað sem húsið verður flutt. Gula húsið heitir Túnsberg, Starhagi 5.
Gamalt hús flutt á lóð við Starhaga
Minjavernd fær lóð undir hús sem áður stóð við Laugaveg 36 Hefur verið endurbyggt að hluta
Þorsteinn
Bergsson
Í bók Guðjóns Friðrikssonar sagn-
fræðings, Litbrigði húsanna, kemur
fram að húsið Laugavegur 36 hafi
verið byggt árið 1896 fyrir Guð-
mund Einarsson.
Tveimur árum
síðar, 1898, selur
hann húsið Torf-
hildi Þ. Hólm rit-
höfundi. Þar mun
hún hafa ritað sín-
ar sögulegu skáld-
sögur m.a. um þá
biskupa Jón Vídal-
ín og Brynjólf
Sveinsson og gefið út ársritið
Draupni og mánaðarblaðið Dvöl.
Þetta hús verður því að teljast mik-
ilvægt í bókmenntasögunni.
Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm
(1845-1918) er jafnan kölluð fyrsti
atvinnurithöfundur Íslands.
„Hún var brautryðjandi á mörg-
um sviðum íslenskra bókmennta;
hún var fyrsta íslenska konan sem
skrifaði og gaf út skáldsögur; hún
var fyrsti íslenski rithöfundurinn
sem skrifaði sögulegar skáldsögur;
hún var fyrsta íslenska konan sem
hlaut skáldastyrk frá alþingi. Styrk-
inn hlaut hún fyrst árið 1891 og var
upphæðin 500 krónur,“ segir Soffía
Auður Birgisdóttir í ritgerð um Torf-
hildi.
Torfhildur bjó í Ingólfsstræti 18
síðustu æviárin, en hún lést úr
spænsku veikinni árið 1918.
Húsið Laugavegur 36 stóð upp-
haflega fremst á þeirri lóð í götu-
línu. Þetta var frekar lítið timbur-
hús á hlöðnum sökkli. Árið 1925 er
núverandi hús byggt á lóðinni,
Sandholtsbakarí, teiknað af Einari
Erlendssyni arkitekt, og fyrir þá
framkvæmd var húsið flutt aftast á
lóðina og sett undir það hæð af
steinsteypu. Þar stóð húsið fram til
ársins 2014.
Sem átti og við um fleiri lítil hús
þess tíma – og síðar – var það með
mansardþaki, segir Þorsteinn
Bergsson. Það var ein leið til að ná
fram betri nýtingu á efri hæð sök-
um þess hvað húsin voru jafnaðar-
lega lítil. „Við höfum gætt þess að
halda í karaktereinkenni hússins
við þá endurgerð sem lokið er og á
sama máta eigum við allt nýtanlegt
efni innan úr húsinu tilbúið til end-
urnýtingar. Ástand þess var orðið
ákaflega bágborið og rétt á mörk-
um þess að það væri flutningshæft,
en til þess stóð vilji og var gert. Að
endurbyggingu lokinni verður þetta
svosum bara vinalegt hús, held ég,“
segir Þorsteinn.
Lóðin Starhagi 3 er óbyggð. Hún
er í einkaeigu. Við Starhaga 5
stendur reisulegt gult timburhús
sem heitir Túnsberg.
Fyrstu sögulegu skáldsög-
urnar voru ritaðar í húsinu
LAUGAVEGUR 36 MIKILVÆGUR Í BÓKMENNTASÖGUNNI
Torfhildur Hólm
Þurr augu!
Fæst í öllum helstu apótekum.
Tvöföld virkni
Sex sinnum lengri ending
Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir
innblástur beint til náttúrunnar.
Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við náttúrulegu efnin
trehalósa sem verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar og
hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka.
Augnheilbrigði
TREHALÓSI
Finnst í mörgum jurtum og
hjálpar þeim að þrífast við þurrar
aðstæður. Trehalósi verndar
frumurnar og gerir þeim kleift að
starfa með fullum afköstum.
HÝALÚRONSÝRA
Er að finna í augunum og
hefur einstaka getu til að binda
vatn. Hjálpar til við að smyrja
og viðhalda táravökvanum á
yfirborði augans.
Án rotvarnarefna