Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 4

Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 4
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Mæðgur Þær Ellen og Anne Claire Wilson heimsóttu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í vikunni þar sem hin síðarnefnda fæddist óvænt fyrir 60 árum. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Árið 1958 voru Ellen B. Wilson og eiginmaður hennar Gordon Wilson um borð í flugvél frá París til New York þegar Ellen, sem var komin um átta mánuði á leið, missti vatnið. Vegna veðurs gat vélin ekki lent í Bretlandi og var því ákveðið að fljúga 600 mílur af leið til Keflavík- ur. Þar fæddist stúlkan Anne Claire Wilson Hemingway. Þær mæðgur ákváðu nú 60 árum seinna að heim- sækja landið í tilefni af sextugs- afmæli Anne Claire. „Í sannleika sagt hélt ég að ég myndi aldrei koma hingað. Þegar ég ólst upp heyrði ég sögur af fæð- ingu minni. Þetta hljómaði eins og ævintýri og að koma hingað hefur verið æðisleg upplifun,“ segir Anne Claire og bætir við í gríni að nafnið hennar ætti í raun að vera Gordons- dóttir. Þær heimsóttu í vikunni Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) þar sem Anne Claire fædd- ist. „Við skoðuðum einnig bandaríska sendiráðið en þangað fór faðir minn þegar ég fæddist til að skrá fæð- inguna og ég vildi sjá hvert hann fór. Sendiráðið hefur verið á sama stað frá því að hann var þarna.“ Ljósmæður á „mjólkurbíl“ Ellen segist muna vel eftir þess- ari ævintýralegu nótt þegar hún fæddi sitt fyrsta barn í ókunnugu landi. „Við fórum í loftið frá París og við héldum þokkalega að við myndum ekki lenda neinsstaðar nema í New York. Vélin var komin of langt til að geta snúið við þegar ég missti vatnið. Það er þá sem allt breyttist. Þeir fóru með okkur 600 mílur af leið til að lenda í Keflavík. Tvær ljósmæður mættu okkur á flugvellinum og fóru með mig í sjúkrabíl sem líktist gömlum banda- rískum mjólkurbíl,“ segir Ellen og hlær. „Þegar við vorum hálfnuð á spítalann varð sjúkrabíllinn bens- ínlaus. Það var einn bensíntankur í miðjum óbyggðunum og þeir þurftu að ýta sjúkrabílnum að bens- íntanknum. Þeir náðu að fylla á og fóru síðan með mig á spítalann og þar fæddist dóttir mín.“ Ellen var á ferðalagi ásamt eig- inmanni sínum Gordon en hann var verkfræðingur og sá um skoðun á orkuverum m.a. í Bretlandi. „Þetta var meira ævintýrið. Ég var sett þann 15.desember en nokkrum mánuðum áður var eiginmaður minn sendur til London. Þar vakn- aði hann á hverjum morgni til að taka lest í lítinn bæ fyrir utan London og ég og aðrar eiginkonur vorum eftir heima. Hann var verk- fræðingur og sá um skoðun á spennubreytum í orkuverum,“ segir Ellen en þau hjónin ferðuðust einn- ig til Zürich, Mílanó og Vatíkansins áður en þau héldu til Parísar. Þegar kom að því að fljúga heim til Bandaríkjanna var flugi þeirra seinkað af einhverjum ástæðum og minnist Ellen þess að það var orðin mið nótt þegar þau hjónin fóru loks í loftið. Í bréfi sem flugmaður vél- arinnar skrifaði þeim hjónum seinna meir segir hann að slæmt skyggni hafi valdið því að ómögu- legt hafi verið að lenda í Bretlandi og eina glufan í gegnum skýin var að beina vélinni til Íslands. Hvar er læknirinn? Ellen þakkar íslensku ljósmæðr- unum sem tóku á móti henni í „mjólkurbílnum“ en segist hafa ver- ið afar hissa á því að ljósmæðurnar einar ætluðu að aðstoða hana við barnsburðinn. „Ég vissi ekki að þessar ljósmæður myndu taka á móti henni. Þannig að ég var allan tímann að öskra á lækni og það var læknir þarna. Eiginmaður minn bað lækninn á endanum að standa í dyr- unum svo ég gæti séð hann. Lækn- irinn gerði það og þá þagði ég. Næsta sem ég veit, þá var hún þarna, fallega dóttir mín.“ Hittu þær mæðgur í heimsókn- inni eina ljósmóðir sem var viðstödd fæðinguna og var í þjálfun á þessum tíma á HSS og segir Ellen að hún hafi munað eftir sér. Saga þeirra mæðgna vakti athygli fjölmiðla hér- lendis og Ellen segir að þetta hafi verið umtalað í litla bænum sem hún bjó í þeim tíma. Heimsóttu Ísland 60 árum eftir fæðingu  Röð tilviljana leiddi til þess að Ellen B. Wilson fæddi stúlku á Íslandi árið 1958  Missti vatnið í flugi frá París til New York og endaði í Keflavík  Ljósmæður HSS komu til bjargar á flugvellinum Flug Fæðingin vakti athygli á sínum tíma. Anne segist finna mikla tengingu við land og þjóð og segist þakklát þeim sem aðstoðuðu við fæðinguna. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Stúdenta- myndatökur Veður víða um heim 16.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 alskýjað Hólar í Dýrafirði 1 léttskýjað Akureyri 1 skýjað Egilsstaðir 0 heiðskírt Vatnsskarðshólar 6 alskýjað Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 8 skýjað Kaupmannahöfn 6 heiðskírt Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 9 skýjað Lúxemborg 6 heiðskírt Brussel 5 þoka Dublin 13 skýjað Glasgow 13 alskýjað London 9 þoka París 6 þoka Amsterdam 4 þoka Hamborg 7 heiðskírt Berlín 5 heiðskírt Vín 7 heiðskírt Moskva -2 heiðskírt Algarve 19 léttskýjað Madríd 15 skýjað Barcelona 16 skýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 12 skýjað Winnipeg -10 snjókoma Montreal -4 snjókoma New York 4 léttskýjað Chicago 3 þoka  17. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:04 16:23 ÍSAFJÖRÐUR 10:29 16:07 SIGLUFJÖRÐUR 10:13 15:49 DJÚPIVOGUR 9:38 15:47 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Suðlæg átt, víða 10-18 m/s, en allt að 23 m/s til fjalla. Talsverð rigning sunnan- og vest- antil fyrri hluta dags, en dregur smám saman úr úr- komu og vindi þegar líður á daginn. Hiti 5 til 10 stig. Hvöss sunnanátt og vætusamt víða á landinu, annars þurrt og bjart veður á köflum norðaustan- lands. Hiti víða 8 til 13 stig. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar maður er kominn í þetta al- þjóðlega umhverfi þá rekst maður á menningarmun. Þessi ástarsaga stendur svolítið í Bretunum,“ segir Lilja Sigurðardóttir rithöfundur. Nýlega kom önnur bók Lilju, Net- ið, út í Bretlandi. Eins og íslenskir spennusagnaunnendur þekkja vel er hún hluti af þríleik þar sem ást- arsaga tveggja kvenna kemur við sögu. Þegar unnið var að útgáfu bók- anna í Bretlandi kom það Lilju nokk- uð á óvart að ritstjórinn vildi gera minna úr lesbísku ástarsögunni af ótta við viðbrögð lesenda þar í landi. „Það eru nettar kynlífssenur í bók- unum, enginn dónaskapur að mínu mati. Bara eitthvað sem er hluti af lífinu, krydd í tilveruna. Frökkunum finnst þetta æði, alveg geggjað en þetta stendur í Bretunum. Ég hef þurft að vinna með breska forlaginu í að snyrta þetta aðeins,“ segir Lilja í samtali við Morgunblaðið. Hún segist hafa komist að því að bæði sé yfir höfuð mikil andstæða við kynlífslýsingar í glæpasögum í Bret- landi og eins sé forleggjari hennar alls ekkert fyrir kynlífslýsingar í bókum yfirleitt. „Ég hélt reyndar fyrst að þetta væri einhver tepru- skapur af því að um lesbíur væri að ræða en svo er ekki. Það hafa fleiri höfundar lent í þessu,“ segir Lilja. Hún segist reyndar hafa fengið at- hugasemdir frá breskum lesendum um að þeim þyki óþægilegt að lesa um lesbíur og telur að slík viðbrögð kunni að stafa af því að aðallesendur glæpasagna í Bretlandi eru eldri konur. „Þarna er greinilega kynslóðamunur sem maður finnur ekki fyrir á Íslandi hvað þetta varðar svo og blæbrigðamunur milli menn- ingarheima. Á Íslandi þakkar fólk mér fyrir að fá innsýn í samband tveggja kvenna og Frakkarnir eru æstir í þetta en aðrir eiga kannski eftir að venjast þessum minna hefl- aða stíl í norræna krimmanum. Ég hef heyrt að lesbíska ástarsagan standi í útgefendum víðar en í Bret- landi.“ Athygli vekur þó að Lilja er komin með arabískan útgefenda og mun Gildran koma út í Egyptalandi á næsta ári. Það er nokkuð áhugavert í því ljósi að söguhetjan er lesbískur dópsmyglari en það telst vart al- gengt í bókum þar um slóðir. Vildu tóna niður lesbíska ástarsögu  Breskur útgefandi bóka Lilju Sigurðardóttur óttaðist viðbrögð við kynlífssenum lesbía  Menningar- munur, segir höfundurinn  Þurfti að snyrta textann  Frakkar afar hrifnir og vilja engu breyta Morgunblaðið/Hari Útgáfa „Ég hélt reyndar fyrst að þetta væri einhver tepruskapur af því að um lesbíur væri að ræða en svo er ekki,“ segir Lilja Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.