Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fram-úr-keyrslur í opinberum fram- kvæmdum eru viðvarandi vandamál. Svo virðist sem úti- lokað sé að halda áætlanir og skekkjan er nánast und- antekningarlaust á einn veg. Verkið verður dýrara en ætlað var í upphafi. Nóg er af dæmum. Upp á síðkastið hafa bragginn í Nauthólsvíkinni og Vaðla- heiðargöngin verið í frétt- um. Sumir mega ekki sjá Hörpuna án þess að rifjist upp fyrir þeim að kostn- aður við hana var 188% um- fram áætlun. Erfitt er að átta sig á hvernig á þessu getur stað- ið, en orð eins og sjálftaka og eftirlitsleysi koma upp í hugann í verstu tilfellunum. Ætla mætti að þeir, sem gera áætlanir, myndu læra af reynslunni. Ef síðasta áætlun þeirra var röng myndu þeir reyna að hafa þá næstu rétta vilji þeir að mark sé á þeim tekið. Áætl- anir eru ekki gerðar frítt þannig að það hlýtur að vera hægt að ætlast til hóf- legra skekkjumarka. En í þessum efnum virðist úti- lokað að læra af reynslunni. Stundum er yfirkeyrslan með þeim hætti að jafnvel þótt öll bönd séu tekin af ímyndunaraflinu er hún of- ar skilningi og sú spurning vaknar hvers vegna enginn sagði hingað og ekki lengra. Opinberar framkvæmdir eiga ekki að vera óútfyllt ávísun á sjóði skattborg- aranna. Í Morgunblaðinu í gær er fjallað um kynningu Þórðar Víkings Friðgeirssonar, lektors við tækni- og verk- fræðideild Háskólans í Reykjavík, á fundi Verk- fræðingafélagsins í fyrra- dag. Hann greindi frá því að 89% af þeim stærri framkvæmdum ríkis og sveitarfélaga, sem HR hefði gögn um, hefðu farið fram úr áætlun. Almennt væri framúrkeyrslan um 60% yf- ir kostnaðaráætlun. Eitt verkefnið var meira að segja 300% dýrara en gert var ráð fyrir í áætlunum. Aðeins einu sinni kom fyrir að verk væri undir áætlun. Þórður Víkingur segir oft vísað til skorts á upplýs- ingum til að skýra framúr- keyrslur, en bendir réttilega á að slíkar skýr- ingar séu ekki fullnægjandi þar sem þá væri hlutfall fram- kvæmda yfir og undir áætlun jafnara. Hann telur vandann félagslegan og hann sé ekki sér- íslenskur. Margvíslegir hagsmunir stangist á, hvort sem það séu stjórnmála- menn, kjósendur, þrýsti- hópar eða aðrir hags- munaaðilar. Hann nefnir einnig vitsmunaskekkju; á hug- myndastigi ríki bjartsýni, sem leitt geti til sjálfs- blekkingar og þegar fram- kvæmdir hefjist geti þrýst- ingur ólíkra hópa flækt málin. Þórður Víkingur bendir á að Norðmönnum hafi tekist að lækka kostnað við opin- berar framkvæmdir um 14% með því að innleiða opinbera gæðatryggingu. Huga mætti að því hér auk þess að skilgreina betur at- huganir á hagkvæmni og setja skýrari reglur um samskipti verktaka, hönn- uða og annarra við hið op- inbera. Framúrkeyrslur í opin- berum framkvæmdum eru leiður plagsiður. Á meðan aðhald í rekstri stofnana á borð við skóla er þannig að það er engin miskunn, jafn- vel þótt ljóst sé að þeim sé svo naumt skammtað að þær eigi í vandræðum með að sinna lögbundnu hlut- verki sínu, virðist ríkja al- gert refsileysi þegar kemur að framúrkeyrslu við fram- kvæmdir. Ósiðir geta verið fljótir að komast í vana. Ljóst er að í ýmsar fram- kvæmdir yrði einfaldlega ekki ráðist ef vitað væri fyrirfram hver kostnaður- inn yrði í raun. Vonandi má ekki ætla að það sé ástæðan fyrir bjartsýnisáætlunum. Hvernig á að meta áætlanir um kostnað við nýjan Land- spítala? Eða borgarlínu? Samkvæmt niðurstöðum lektorsins er óhætt að taka einfaldlega hverja fyrirhug- aða framkvæmd og bæta 60% við til að fá út raun- verulegan kostnað. Svo mætti líka hafa uppi á þess- um eina, sem var undir áætlun (og það meira að segja fjórðungi), og fela honum fleiri verkefni. Opinberar fram- kvæmdir eiga ekki að vera óútfyllt ávís- un á sjóði skatt- borgaranna} Fram úr á fullri ferð N úverandi og fyrrverandi ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins virðast annaðhvort haldnir minnisleysi af nýrri gráðu eða þá að þeir velja hinn svokallaða „alternative truth“ eða „hinn sannleikann“ sem áhrifamenn vestan við Ísland segja jafn réttan og sjálfan sannleikann. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem nú er orðinn einn helsti talmaður Evr- ópusambandsins, vílar ekki fyrir sér að nota „hinn sannleikann“ til að fá íslenska þjóð til að kyngja svokölluðum þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Björn telur undirritaðan og Sigmund Davíð Gunnlaugsson hafa tryggt innleiðingu þessa pakka, sem er vitanlega ósatt. Þá ákvað nú- verandi utanríkisráðherra að skipa sér í hóp með þessum helsta ráðgjafa sínum og klappstýru þess að í lagi sé að ganga endalaust að fullveldinu. Að minnsta kosti frá árinu 2012 hafa verið uppi við- ræður við Evrópusambandið um þennan pakka. Í júlí 2012 var líklega fyrst komið fram með óskir um undan- þágur og þeirri umleitan haldið áfram næstu árin. Í maí 2014 ritar iðnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins vel rökstutt bréf til Evrópusambandsins þar sem enn er áréttað að Ísland þurfi sérlausnir. Allt frá upphafi þessa máls hafa íslensk stjórnvöld reynt að fá undanþágur sem henta Íslendingum. Því hefur hins vegar verið hafnað. Það sem er líka athyglisvert við þetta mál og snertir hinn valkvæða sannleika þeirra pakkabræðra er að frá árinu 2013 hafa ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í ráðu- neyti orkumála séð um efnislegan þátt málsins enda er það svo að í fagráðuneytinu eru sérfræðing- arnir. Telji þeir bræður að ráðherrar þeirra hafi ekki staðið sig þá hljóta þeir að ræða við þá. Fram kemur í minnisblaði frá árinu 2015 að það var aðallega tvennt sem gerði það erfitt að fá undanþágur. Í fyrsta lagi, þá segir ESB að undanþágur vegna lítilla einangraða raf- orkukerfa eigi ekki við þar sem framleiðsla raforku sé yfir ákveðnu viðmiði. Í öðru lagi er ljóst að Ísland hefur innleitt 2. raforkutilskip- unina (orkupakka 2) að fullu og án vandkvæða og gengið lengra en kröfur tilskipunar með uppskiptingu dreififyrirtækja. Ef þetta eru helstu rökin þá eru þau fátækleg. Þótt hinum annars ágæta utanríkis- ráðherra Noregs hafi tekist að fá kollega sinn á Íslandi í lið með sér getum við hin haldið uppi vörnum og spurt eðlilegra spurninga. Hvað verður í orkupakka 4? Eða þá nr. 5? Hvaða kröf- ur verða þar? Bæði íslenskir og erlendir fræðimenn í lögum hafa varað við innleiðingunni vegna þess framsals sem í henni getur falist. Á að hunsa það? Er ekki rétt að láta fullveldið njóta vafans? Til hvers er 103. gr. EES-samningsins ef ekki er hægt að láta reyna á hana? Ef það rétt að 3. orkupakkinn skipti engu fyrir Ísland, hvers vegna fengum við þá ekki undanþáguna? Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Pakkabræður Höfundur er alþingismaður fyrir SV-kjördæmi og varaformaður Miðflokksins. gunnarbragi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á síðasta fundi borg- arráðs var kynnt að- gerðaáætlun gegn há- vaða í Reykjavík og mun hún ná til áranna 2018- 2023. Næstu fimm árin verður horft til svæða þar sem umferðarhávaði veldur íbúum verulegu ónæði og reiknast yfir 68 dB (desibel), t.d. á stöðum þar sem byggð er í nágrenni við stofnbrautir. Hljóðvarnaraðgerðir verða metnar og framkvæmdar eftir því sem aðstæður og fjárveitingar leyfa. Tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða var innleidd árið 2005 á Íslandi með reglugerð. Sam- kvæmt henni skal kortleggja hávaða og útbúa aðgerðaáætlanir fyrir þétt- býlissvæði með yfir 100.000 íbúa og vegna hávaða frá fjölförnum vegum með ársdagsumferð yfir 8.000 öku- tæki (3 milljónir ökutækja á ári). Reykjavík fellur undir þessa reglu- gerð, enda var íbúafjöldi þar kominn í 123.246 hinn 1. janúar 2017. Niðurstöður hávaðakortlagning- arinnar gefa upplýsingar um hversu margar íbúðir og íbúar verða fyrir áhrifum vegna umferðarhávaða. Hávaðinn kortlagður Hávaðakortlagningu fyrir Reykjavík var lokið fyrr á þessu ári. Þar var hávaði reiknaður við alla vegi og götur í þéttbýli. Hávaði reyndist mestur í íbúðabyggð frá þjóðvega- og stofnbrautakerfi í borginni. Hann mældist 55-65 dB utan við íbúðir hjá um 29.500 íbúum og yfir 65 dB hjá um 6.000 íbúum. Niðurstöður hávaða- kortlagningar sýna að hjá 62 skólum eða leikskólum var hávaði yfir 55 dB og þar af voru 11 þeirra yfir 65 dB. Þegar ráðist verður í aðgerðir gegn hávaða næstu fimm árin verður horft til svæða þar sem umferðar- hávaði veldur íbúum verulegu ónæði og reiknast 68 dB, t.d. á stöðum þar sem byggð er í nágrenni við stofn- brautir. Á þeim svæðum verða skoð- aðar mögulegar hljóðvarnir eða lag- færingar á þegar byggðum hljóð vörnum. Áhersla verður lögð á að bæta hljóðstig á íbúðalóðum. Svæði í forgangi samkvæmt hinni nýju aðgerðaráætlun eru:  Svæði við gatnamót Miklu- brautar/Vesturlandsvegar og Sæ- brautar/Reykjanesbrautar. Þær íbúð- ir sem um ræðir standa við Ásenda, Byggðarenda, Blesugróf og Jöldu- gróf.  Svæði í nágrenni gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubraut- ar. Þær íbúðir sem um ræðir standa við Skaftahlíð, Stigahlíð, Bólstaðahlíð, Skipholt, Álftamýri og Neðstaleiti.  Svæði við Miklubraut. Þær íbúðir sem um ræðir standa við Heið- argerði og Fellsmúla.  Svæði við Sæbraut. Þær íbúð- ir sem um ræðir standa við Njörva- sund, Barðavog og Kleppsveg.  Svæði á Ártúnsholti. Þær íbúðir sem um ræðir standa við Álakvísl, Birtingakvísl, Bröndukvísl og Urriðakvísl.  Svæði í nágrenni við gatnamót Hringbrautar og Snorrabrautar. Þær íbúðir sem um ræðir standa við Gunn- arsbraut , Lönguhlíð og Miklubraut. Til stendur að kynna aðgerða- áætlunina á vef Reykjavíkur borgar þegar hún verður tilbúin. Á árunum 2013-2018 voru settar upp hljóðvarnir á þremur stöðum í borginni. Er áætlað að þær hafi haft áhrif til lækkunar hljóðstigs hjá u.þ.b. 1.000 íbúum skv. upplýsingum um- hverfis- og skipulagssviðs. Enn verður dregið úr hávaða frá umferð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðgerðir gegn hávaða Meðal aðgerða sem borgin hefur gripið til eru miklir steinveggir nálægt Rauðagerði. Framkvæmdir þar eru á lokastigi. Reykjavíkurborg hóf árið 1997 að veita styrki til úrbóta á hljóð- vist til íbúa sem höfðu hljóðstig 65dB við húsvegg og mun borg- in halda áfram að veita slíka styrki. Er þeim ætlað að fækka þeim íbúðum þar sem óvið- unandi hljóðstig er innanhúss, m.a. með því að endurnýja glugga. Íbúðum er skipt í þrjá flokka og er fjárstyrkur breyti- legur milli flokka, þ.e. lægri fjár- hæð eftir því sem hljóðstigið er lægra. Árið 1999 höfðu eigendur 371 íbúðar sótt um úrbætur til borg- arinnar og 173 íbúðir fengið fyr- irheit um styrk. Árið 2009 höfðu ca. 1100 umsóknir borist um styrkveitingu til úrbóta og af þeim hafa um 600 íbúðir uppfyllt skilyrði fyrir fjárstyrk. Í þetta verkefni voru greiddar 180 milljónir á árabilinu 1997- 2009. Árin 2013-2018 hafa ver- ið afgreiddar 75 styrkumsóknir, samtals um 55 milljónir króna. Styrkir til að bæta hljóðvist REYKJAVÍKURBORG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.